Fréttablaðið - 26.10.2006, Side 2
2 26. október 2006 FIMMTUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
NORÐURLÖND Tveir af hverjum
þremur Norðurlandabúum telja
samstarf við hin Norðurlöndin
mjög mikilvægt. Þetta er meðal
niðurstaðna í nýrri viðhorfskönn-
un sem Norðurlandaráð hefur
látið gera, en niðurstöður hennar
verða birtar í dag, fimmtudag. Síð-
ast var sambærileg könnun gerð
fyrir þrettán árum.
Athygli vekur að spurningu um
það hvort þeir telji samstarf við
tiltekin lönd sérstaklega mikil-
vægt til lengri tíma litið svara 69
prósent Íslendinga með því að
nefna Norðurlönd, 52 prósent
nefna Evrópusambandslönd en
einungis 23 prósent Bandaríkin.
Nærri því sama hlutfall íslenskra
svarenda, 22 prósent, nefnir Kína
í þessu sambandi.
Könnunin var gerð fyrr í þess-
um mánuði með slembiúrtaki úr
símaskrám Norðurlandanna fimm.
Samningu könnunarinnar og
úrvinnslu niðurstaðna annaðist
Research International, í sam-
starfi við skrifstofu Norðurlanda-
ráðs. Könnunin er birt í tengslum
við Norðurlandaráðsþing, sem fer
fram í Kaupmannahöfn um mán-
aðamótin. - aa
NORRÆN SAMSTAÐA Nýja könn-
unin er óbeint framhald af könnun
sem Norðurlandaráð lét gera árið
1993.
Ný viðhorfskönnun meðal Norðurlandabúa til norræns samstarfs:
Samstarfið enn mikils metið
LÖGREGLUMÁL Lúlla, hvítum og
rauðbrúnum Cavalier King Charl-
es Spaniel hundi, var stolið fyrir
utan verslunarmiðstöðina í Gerðu-
bergi á föstudagskvöldið. Eigandi
Lúlla batt hann við grindverk á
meðan hann brá sér inn í verslun-
armiðstöðina; á meðan námu tveir
menn Lúlla á brott að sögn sjónar-
votta.
Tæpum sólarhring eftir ránið
hringdu ræningjarnir í lögregl-
una og sögðust vera með hund „í
óskilum“. Þeir báðu lögregluna að
hafa samband við eigandann og
segja honum að hitta sig á
ákveðnum stað á tilteknum tíma,
en þegar eigandinn mætti á
staðinn hitti hann litla telpu sem
lét hann fá Lúlla og kunni
eigandinn ekki við að vera með
„nein leiðindi“ við telpuna. - ifv
Hundsræningjar gáfust upp:
Lúlli kominn
heim eftir sólar-
hrings prísund
LÚLLI Kominn heim eftir hrakfarirnar.
HVALVEIÐAR Áhöfnin á Hval 9 náði
í sína þriðju langreyði fljótlega
eftir að varð leitarbjart í gær-
morgun. Hvalurinn er talinn vera
62 fet og
veiddist djúpt
vestur af
Snæfellsnesi.
Um vænan hval
er að ræða og
búist er við
Hval 9 í land
með feng sinn í
morgunsárið.
Sigurður
Njálsson,
skipstjóri á Hval 9, var ekki
bjartsýnn þegar hann lagði af
stað á miðin í fyrradag vegna
bræluútlits. Hann var þó sáttur
við að nokkuð var um hval á þeim
stað sem þeir hafa sótt til veiða
að undanförnu. Þar hafa hefur
áhöfnin séð til sandreyðar og
langreyðar auk smáhvala. - shá
Hvalveiðarnar ganga vel:
Þriðja langreyð-
in veidd í gær
SIGURÐUR
NJÁLSSON
Maðurinn sem lést í umferðar-
slysi á fáförnum vegaslóða
ofan við
Hrauneyjar
aðfaranótt
síðastliðins
laugardags
hét Arngrím-
ur Sveins-
son, til
heimilis að
Vindási 4 í
Reykjavík.
Arngrímur
var fæddur
8. mars 1949 og var því 57 ára
þegar hann lést. Hann var
ógiftur en lætur eftir sig einn
uppkominn son.
Arngrímur Sveinsson:
Lét lífið
í bílslysi
ARNGRÍMUR
SVEINSSON
LÖGREGLUMÁL Rúmlega tvítug
stúlka hefur kært mann til lög-
reglu fyrir að hafa nauðgað sér að
morgni síðastliðins sunnudags.
Að sögn Harðar Jóhannessonar
aðstoðaryfirlögregluþjóns hafði
stúlkan verið úti að skemmta sér í
miðborg Reykjavíkur þegar hún
þáði far hjá ókunnugum manni á
Laugaveginum. Þau hafi síðan
keyrt víða um og að endingu farið
út fyrir íbúðabyggð. Þar hafi mað-
urinn ráðist á stúlkuna og nauðg-
að henni.
Stúlkan er erlend en er búsett
hér á landi tímabundið vegna
náms. Hún er því ekki kunnug
staðarháttum í borginni og gat
ekki staðfest hvert maðurinn
hefði farið með hana. Einn af
þeim stöðum sem eru til skoðunar
er Öskjuhlíðin. Þá gat hún hvorki
gefið greinargóða lýsingu á mann-
inum né bílnum sem hann ók að
öðru leyti en að bíllinn hafi verið
ljós á litinn.
Þetta er þriðja nauðgunin sem
er kærð á rúmum tveimur vikum
þar sem ókunnugir menn ráðast
að ungum stúlkum eftir að þær
hafa verið við skemmtanahald um
helgi í miðborginni.
Aðfaranótt 8. október neyddu
tveir menn tvítuga stúlku inn í
húsasund bak við Menntaskólann
í Reykjavík. Þar hélt annar mann-
anna stúlkunni á meðan hinn
nauðgaði henni.
Snemma morguns síðastliðinn
laugardag réðust síðan tveir menn
að átján ára stúlku við Þjóðleik-
húsið á Hverfisgötu. Mennirnir
þvinguðu stúlkuna inn á svæði
þar sem ekki sást til þeirra og
nauðguðu henni báðir. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu er ekkert
sem bendir til þess að málin teng-
ist á nokkur hátt þótt ekki sé hægt
að útiloka það. Öll þrjú málin eru
óupplýst og hafa vakið mikinn
óhug meðal borgarbúa.
Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta, segir að 20 til 30 pró-
sent nauðgana séu framin af
ókunnugum og því sé þetta því
miður ekkert nýtt. Hún segir að
það sé algerlega óþolandi að
konur geti ekki gengið um götur
óhultar og öruggar líkt og aðrir
frjálsir borgarar. Þó sé erfitt að
ráðleggja konum sérstaklega um
hvernig þær ættu að beita sér til
að reyna að fyrirbyggja árásir
sem þessar. „Ef nauðgarar ætla
að nauðga þá nauðga þeir. Ég held
að maður eigi ekki að beina
varnarorðum til kvenna heldur til
mögulegra nauðgara.“
thordur@frettabladid.is
Lögregla rannsakar
þrjú nauðgunarmál
Þrjár nauðganir hafa verið kærðar til lögreglu á tveimur vikum. Þær eiga það
sameiginlegt að vera sérlega harkalegar og að vera framdar af mönnum sem
eru fórnarlömbum sínum ókunnugir. Ekkert bendir til þess að málin tengist.
MIÐBORG REYKJAVÍKUR Þrjár nauðganir hafa verið kærðar á síðustu tveimur vikum. Í
öllum tilvikum höfðu fórnarlömbin verið að vera að skemmta sér í miðborginni.
Ef nauðgarar ætla að
nauðga þá nauðga þeir.“
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
TALSKONA STÍGAMÓTA
FLUGUMFERÐ Farþegaþota lenti óvænt á Keflavíkur-
flugvelli laust eftir klukkan fjögur í gær vegna þess
að flugstjórinn hafði þurft að drepa á öðrum
hreyflinum út af truflunum í mælitækjum.
Þotan, sem er frá bandaríska flugfélaginu
Continental Airlines, var á leið frá Gatwick-flugvelli
í Englandi til New Ark á austurströnd Bandaríkj-
anna þegar bilunarinnar varð vart. Vélin var stödd
583 sjómílur suðvestur af Íslandi þegar flugstjórinn
lýsti yfir neyðarástandi og óskaði eftir að fá að
lenda á Keflavíkurflugvelli. Þá vantaði klukkuna
fimmtán mínútur í þrjú. Vélin lenti síðan í Keflavík
tæpum einum og hálfum tíma síðar, eða klukkan tíu
mínútur yfir fjögur.
Á landi niðri var viðbúnaður settur á hættustig.
Skipum og bátum á hafi úti var gert viðvart.
Skömmu áður en flugstjórinn lenti þotunni í
Keflavík tókst honum að ræsa hreyfilinn að nýju.
Lendingin gekk eðlilega og engan af 172 farþegum
eða 8 manna áhöfn sakaði.
Við skoðun flugvirkja á búnaði vélarinnar sem er
af gerðinni Boeing 757 kom í ljós að bilun í tölvubún-
aði hafði orsakað það að hreyfillinn stöðvaðist. Eftir
að því hafði verið kippt í liðinn var ákveðið að vélin
héldi áfram á upprunalegan áfangastað og var henni
flogið á braut eftir að flugvallarstarfsmenn höfðu
bætt eldsneyti á tanka hennar. - gar
Öryggislending bandarískrar þotu á Keflavíkurflugvelli:
Hreyfill drap á sér vegna tölvubilunar
ÞOTAN VIÐ LEIFSSTÖÐ Enginn sem var í Continental-vélinni, að
undanskildum flugstjóranum einum, fór frá borði hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Steingrímur, eiga hagamýs
yfirhöfuð eitthvert erindi í
jólaboð?
„Þær verða þá að halda sig við malt
og appelsín.“
Í Fréttablaðinu í gær kom fram að níu
ára börn læsu um hagamýs sem drekka
áfengi í jólaboðum í samræmdum próf-
um sínum. Steingrímur Sigurgeirsson er
aðstoðarmaður menntamálaráðherra.
NOREGUR Berklasmit er nú
algengara í Noregi en þekkst hefur
í hálfa öld. Faraldursins hefur
einkum orðið vart í Björgvin og
flestir hinna smituðu eru innflytj-
endur, sem voru með sjúkdóminn
áður en þeir komu til Noregs.
Norska dagblaðið Aftenposten
skýrði frá þessu í gær. Þar kemur
einnig fram að milli 250 og 300 ný
smit greinist á hverju ári í Noregi.
Heilbrigðisyfirvöld hafa þó
einkum áhyggjur af því að
hælisleitendur, sem eru berkla-
smitaðir, láti sig hverfa áður en
meðferðinni er lokið, en það eykur
hættu á útbreiðslu sjúkdómsins.
- gb
Berklafaraldur í Noregi:
Innflytjendur í
mestri hættu
Fjórir dæmdir
Fjórir einstaklingar voru dæmdir í
Héraðsdómi Norðurlands eystra í
sektargreiðslur fyrir að hafa fíkniefni
undir höndum. Greiðslurnar voru
frá 40 þúsundum upp í 120 þúsund
krónur.
HÉRAÐSDÓMUR