Fréttablaðið - 26.10.2006, Side 6
6 26. október 2006 FIMMTUDAGUR
KJÖRKASSINN
,,Svo maður hrósi nú
einhvern
tíma einhverjum, þá
hefur sá
ungi þingmaður fl ut
t furðu
mörg góð mál á þin
ginu.”
Illugi Jökulsson í pist
li í Blaðinu 21. okt. 20
06
Ágúst Ólafur Ágústsson
varaformaður Samfylkingarinnar4. SÆTI
Traustur efnahagur
— aukin velferð
www.agustolafur.is
Afnám fyrningarfresta
í kynferðisafbrotum
gegn börnum
— 22.000 undirskriftir hafa safnast
til stuðnings frumvarpinu
Löggjöf um óháðar
rannsóknarnefndir
Löggjöf gegn
heimilisofbeldi
Aukin vernd
heimildarmanna
fjölmiðla
•
•
•
•
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík 11. nóvember
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
DAIHATSU TERIOS
Nýskr. 05.02 - Sjálfskiptur - Ekinn 80 þús. - Allt að 100% lán.
Verð
890.0
00.-
MENNTAMÁL Inga Dóra Sigfúsdóttir, deildarforseti í
lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík, telur óheppi-
legt og óþarfa að spyrja níu ára gömul börn í prófi
um hvað það merki að drekka hóflega. Hún skilur
ekki tilganginn með slíkri spurningu og telur hana
ekki þjóna neinum tilgangi.
„Mér finnst þetta fáheyrt,“ segir Inga Dóra. „Það
má deila um áhrifin af þessari spurningu og hvort
það hafi varanleg áhrif á börnin. Það er ekki víst að
það geri það, en efnislega hefur þetta ekkert með
próftæknileg atriði að gera.“
Inga Dóra telur að hugsa þurfi próf og prófspurn-
ingar í samhengi. „Ég get ímyndað mér að eina
ástæðan fyrir spurningunni hafi verið sú að hún hafi
þótt mæla vel það sem hafi átt að prófa en það verður
alltaf að gæta sín í nærveru sálar og hugsa hlutina í
samhengi.“
Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsu-
stöðvar, segir ekki gott að ung börn séu spurð um
hófdrykkju. „Það er ábyggilega af nógu að taka þótt
ekki sé fjallað um drykkju og það í fjórða bekk. Við
erum alls ekki ánægð með að vita af þessu. Það er
alls ekki við hæfi barna að leggja mat á það hvað sé
hófleg drykkja og alls ekki tímabært að níu ára börn
geti svarað slíku.“ - ghs
Próf og prófspurningar þarf að hugsa í samhengi og gæta sín í nærveru sálar:
Börn meta ekki hófdrykkju
BAUGSMÁL Jón H. B. Snorrason,
yfirmaður efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra, segir athuga-
semdir Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar, sem hann gerði grein fyrir í
bréfi til Jóns H. B., ekki eiga við
rök að styðjast.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu í gær lagði Jón Ásgeir
Jóhannesson fram bréf við yfir-
heyrslu hjá Ríkislögreglustjóra,
þar sem hann segir embætti ríkis-
lögreglustjóra hafa óskað eftir
aðstoð við rannsókn á tilteknum
atvikum Baugsmálsins á fölskum
forsendum.
Vitnar Jón Ásgeir til sakarefna
sem getið er í réttarbeiðni til lög-
regluyfirvalda í Lúxemborg. Í
henni er tekið fram að Tryggvi
Jónsson, fyrrverandi aðstoðarfor-
stjóri Baugs, og Jón Ásgeir séu
meðal annars grunaðir um pen-
ingaþvætti, fjárdrátt, fjársvik og
innherjasvik.
Segir Jón Ásgeir í bréfinu „með
ólíkindum að íslensk yfirvöld skuli
hætta trausti sínu og trúðverðug-
leika í samskiptum milli ríkja með
„veiðiferðum“ RLS í leit að afbrot-
um“.
Jón H.B. segir ekkert athuga-
vert við málsmeðferð ákæruvalds-
ins hvað þessi tilteknu mál snertir.
„Jón Ásgeir spyr í bréfi sínu hver
sé skýringin á því að gögnin eru
notuð í málinu sem nú til meðferð-
ar, það er málinu sem byggir á
ákæru Sigurðar Tómasar Magnús-
sonar. Það er ekkert athugavert
við að nota þessi gögn, sem lög-
regluyfirvöld í Lúxemborg öfl-
uðu,“ segir Jón H.B. og ítrekar að
gagnanna hafi verið aflað á grund-
velli þeirra sakarefna sem gerð
var grein fyrir í réttarbeiðni til
lögregluyfirvalda í Lúxemborg.
„Þessara gagna var aflað vegna
rannsóknar þeirra sakarefna sem
getið er í réttarbeiðninni til lög-
regluyfirvalda í Lúxemborg. Síðan
er ákært í málinu, það er málinu
sem nú er fyrir dómstólum, meðal
annars á grundvelli þessara gagna
því þessi gögn eiga heima í þessu
máli, og engu öðru. Þessara gagna
var aflað á grundvelli þeirra saka-
refna, sem að Sigurður Tómas end-
urútgaf ákæruna vegna.“
Jón Ásgeir segir málatilbúning
ákæruvaldsins fyrst og fremst
snúast um að koma sem þyngstu
höggi á hans persónu. „Það kemur
mér ekkert á óvart lengur í þessu
máli. Ákæruvaldið svífst einskis
til þess að koma á mig höggi. Varð-
andi gögnin sem aflað er í Lúxem-
borg, þá liggur fyrir að skattaregl-
ur og lagalegt umhverfi er allt
annað í Lúxemborg en hér á landi.
Sérstaða viðskiptaumhverfisins í
Lúxemborg er meðal annars fólgin
í þessum reglum. En það sem ligg-
ur fyrir er að embætti ríkislög-
reglustjóra kemst yfir gögn á
fölskum forsendum og notar gögn-
in í rannsókn á öðrum hluta máls-
ins. Jóni H.B. Snorrasyni munar
ekki um að ljúga sig út úr þessu,
miðað við önnur afglöp hans í mál-
inu til þessa.“
Sigurður Tómas Magnússon,
settur saksóknari í Baugsmálinu,
var ekki tilbúinn til þess að tjá sig
um þessi málefni frekar en Gestur
Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs.
magnush@frettabladid.is
Segir Ríkislögreglu-
stjóra misnota gögn
Jón Ásgeir Jóhannesson segir Ríkislögreglustjóra hafa óskað eftir aðstoð við
gagnaöflun á fölskum forsendum. Jón H.B. Snorrason segir ekkert athugavert
við málsgagnanotkun embættisins í Baugsmálinu sem er til dómsmeðferðar.
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
JÓN H.B.
SNORRASON
Martine Solovieff, saksóknari í Baugsmálinu, sagðist í
samtali við blaðamann hafa sent bréf til Ríkislögreglu-
stjóra 3. ágúst 2004 til þess að ítreka að aðeins mætti
nota gögnin sem aflað var í Lúxemborg á grundvelli
þeirra sakarefna sem tiltekin voru í réttarbeiðni. „Ég
sendi bréfið til Ríkislögreglustjóra, eftir að Francois Prum,
aðstoðarmaður lögmanna Baugs Group, hafði samband
við okkur og kvartaði yfir því að gögn sem aflað var af
lögregluyfirvöldum í Lúxemborg væru hugsanlega notuð
í röngum tilgangi. Ég brást við með því að senda bréf til
Ríkislögreglustjóra, þar sem ég ítrekaði að ekki mætti
notast við gögn nema þegar sakarefnin væru þau sem
tiltekin voru í beiðni. Ég fékk aldrei svar við mínu bréfi frá
Ríkislögreglustjóra,“ sagði Martine sem ekki var tilbú-
in til þess að svara spurningum er vörðuðu efnisatriði
ákæruliða sem eru til meðferðar fyrir dómi. Gögnin sem
aflað var í Lúxemborg tengjast ákæruliðum 11, 12 og 17 í
ákærunni en þeir falla allir, samkvæmt orðalagi í ákæru,
undir meiriháttar bókhaldsbrot.
Jón H. B. Snorrason segir það alveg skýrt að gögn sem
aflað var á grundvelli sakarefna sem tiltekin voru í beiðni
hafi ekki verið notuð við rannsókn á meintu broti Jóns
Ásgeirs á skattalögum, sem hann var nýverið yfirheyrður
vegna.
„Það er alveg ljóst, að við notumst ekki við þau gögn
sem aflað var á grundvelli sakarefna sem tiltekin voru í
beiðni til lögregluyfirvalda í Lúxemborg. Það er óheimilt.“
- mh
Saksóknari í Lúxemborg sendi bréf eftir kvartanir frá lögmanni Baugs Group hf.:
Fékk aldrei svar við ítrekunarbréfi
FERILL BEIÐNI LÖGREGLU
Í byrjun janúar, 4. mars
og 23. apríl 2004
Embætti Ríkislögreglustjóra óskar eftir því, með bréfum, að lögregluyfirvöld í Lúx-
emborg aðstoði við rannsókn á hendur Tryggva Jónssyni og Jóni Ásgeir Jóhannes-
syni. Í beiðninni eru Tryggvi og Jón Ásgeir sagðir meðal annars grunaðir um fjárdrátt,
fjársvik, innherjasvik og peningaþvætti í tengslum við viðskipti við Kaupthing
Lúxemborg.
12. júlí og 26. júlí 2004
Francois Prum, lögfræðilegur aðstoðarmaður Baugs Group hf., sendir Martine
Solovieff, saksóknara í Lúxemborg, bréf þess efnis að nauðsynlegt sé að ítreka það
við embætti ríkislögreglustjóra að aðeins sé hægt að nota gögnin sem aflað var í
Lúxemborg í tengslum við áðurnefnd sakarefni.
3. ágúst 2004
Saksóknari í Lúxemborg sendir ítrekunarbréf til embættis ríkislögreglustjóra, þar
sem tekið er sérstaklega fram að ekki sé hægt að nota gögnin sem aflað var í Lúx-
emborg í málum sem ekki snerta fyrrnefnd sakarefni. Embætti ríkislögreglustjóra
hefur ekki svarað ítrekunarbréfinu.
23. október 2004
Jón Ásgeir afhendir bréf, stílað á Jón H.B. Snorrason, lögregluyfirvöldum í yfirheyrslu
vegna meintra brota á skattalögum sem snerta starfsemi Fjárfestingafélagsins
Gaums ehf. og Baugs Group hf. árið 2004. Jón Ásgeir biður embætti ríkislögreglu-
stjóra að upplýsa um það, hvaða gagna var aflað í aðgerðunum í Lúxemborg árið
2004.
����� �������������������������
Viltu aðskilnað ríkis og kirkju?
Já 71,3%
Nei 28,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Var í lagi að spyrja um hóf-
drykkju í prófi 9 ára barna?
Segðu skoðun þína á visir.is
SKÓLABÖRN AÐ LEIK Inga Dóra Sigfúsdóttir segist ekki skilja
tilganginn með prófspurningunni.
VINNUMARKAÐUR Grétar Þorsteins-
son, forseti ASÍ, óskaði eftir
samstarfi ASÍ og BSRB við
undirbúning næstu kjarasamninga
í ræðu sinni á þingi BSRB í gær.
Hann sagði að fordæmi og
fyrirmyndir væru fyrir samstarfi
samtaka launafólks á vinnumark-
aði á hinum Norðurlöndunum og
að tækifæri væri til að mynda
slíkt samband hérlendis milli
BSRB, ASÍ og jafnvel annarra
samtaka opinberra starfsmanna í
aðdraganda næstu kjarasamninga.
„Hér er sögulegt tækifæri sem við
skulum ekki láta ganga okkur úr
greipum. Stóra málið í þessu
sambandi er að tala saman.“ - þsj
ASÍ vill samstarf við BSRB:
Stóra málið
að tala saman