Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.10.2006, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 26.10.2006, Qupperneq 8
ALÞJÓÐAMÁL Pétur H. Blöndal alþingismaður hefur að ósk forseta þings Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu tekið að sér að hafa eftirlit með fjármálum stofnunarinnar. Um nýtt starf er að ræða og er því ætlað að tryggja þinginu aukið vægi í umfjöllun um fjárreiður ÖSE. Fyrsta verkefni Péturs verður að móta starfið og yfirfara fjárhags- áætlun ÖSE fyrir árið 2007, en hún nemur um 15 milljörðum króna. Alls eiga 56 þjóðþing frá Evrópu og Norður-Ameríku aðild að ÖSE-þinginu. - þsj Pétur Blöndal í nýju starfi: Falið eftirlit með fjárreiðum PÉTUR BLÖNDAL Dögg Pálsdóttir 4.í sætiðwww.dogg.isPrófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006 Ég vil fjölga hjúkrunarrýmum og stytta markvisst biðtíma eftir hjúkrunarvistun. Kynntu þér áherslumál Daggar á www.dogg.is KOSNINGASKRIFSTOFA Laugavegi 170, 2. hæð opnunartími virka daga kl. 16-22 og um helgar frá kl. 12-18 dogg@dogg.is sími 517-8388 LÁTUM VERKIN TALA 1 Hver hefur verið tilnefndur sem frambjóðandi íslenskra stjórnvalda til embættis framkvæmdastjóra norrænu ráðherranefndarinnar? 2 Hvað heitir fyrsta sameigin- lega breiðskífa Stefáns Hilmars- sonar og Eyjólfs Kristjánssonar? 3 Hver er bæði önnum kafinn og sömuleiðis orðinn afi? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 62 VEISTU SVARIÐ? HVALVEIÐAR Umhverfissamtökin Greenpeace hafa safnað tæplega 90.000 undirskriftum á heimasíðu sinni þar sem fólk heitir því að heimsækja Ísland ef Íslendingar láta af hval- veiðum. Samtökin leggja megináherslu á þessa baráttuaðferð en ætla ekki að senda skip sín til landsins til að reyna að hindra hval- veiðarnar. Greenpeace-samtökin telja að efnahagsleg rök dugi best í baráttu gegn hvalveiðum Íslendinga. Þau segja engan markað vera til fyrir hvalkjöt og benda á að Norðmenn hafi reynt að selja hvalafurðir til Japans í fimm ár án árangurs. Á heimasíðu sinni hvetja sam- tökin fólk til að íhuga Íslandsheimsókn ef Íslendingar láti af hvalveiðum, hvort sem er til vísindarannsókna eða í atvinnuskyni. „Við leggjum áherslu á það val sem Íslendingar hafa á milli þess að veiða nokkrar langreyðar eða stórauka tekjur sínar af ferðaþjónustu með því að hætta veiðum,“ segir Frode Pleym, talsmaður Greenpeace-samtakanna sem er hér á landi til að kynna sjónarmið samtak- anna. 87 þúsund manns eru nú á lista yfir fólk sem segjist vilja koma til Íslands ef hvalveið- um verður hætt en til hans var stofnað árið 2003. „Koma þeirra gæti skilað 100 milljónum bandaríkjadala í tekjur.“ Pleym segir að ferðaskrifstofur áætli að í það minnsta 10 prósent þeirra fyrirheita muni skila sér ef hvalveiðum verður hætt þannig að tekjurnar verði aldrei minni 10 milljónir bandaríkjadala. „Þetta eru meiri tekjur en hvalveiðar hafa nokkru sinni skilað Íslending- um á ársgrundvelli.“ - shá Grænfriðungar eru komnir til landsins og kynntu í gær sjónarmið sín á veitingahúsinu Lækjarbrekku: Íslendingar tapa á hvalveiðunum FRÁ HVALFIRÐI Umhverfissamtökin Greenpeace telja Íslendinga geta haft milljarðatekjur með því að láta af hvalveiðum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILBERG VINNUMARKAÐUR Ögmundur Jón- asson, formaður BSRB, telur stöðuna á vinnumarkaði sér- kennilega. Markaðurinn sé opn- ari en dæmi séu um. Þegar saman fari opinn vinnumarkaður og gíf- urleg þensla þá sé ekki sökum að spyrja – hingað streymi fólk án afláts. „Á þessu ári hafa sjö þúsund manns komið inn á vinnumarkað- inn erlendis frá; í septembermán- uði einum um tólf hundruð ein- staklingar. Er þetta heppileg þróun? Ég segi nei,“ sagði Ögmundur í setningarræðu á þingi BSRB á Grand hótel í gær. Þenslunni sé haldið uppi með viðskiptahalla og gífurlegri skuld- setningu. „Þegar þessu skeiði sleppir og þrengist að, þá skulum við hafa í huga að hinu aðkomna vinnuafli verður ekki hent á haugana. Þetta er lifandi fólk, iðulega með sínar fjölskyldur og að sjálfsögðu allar sínar mann- legu þarfir,“ sagði hann. „Við verðum að gæta okkur á því að fara ekki of geyst í sakirn- ar. Við verðum að geta búið fólki mannsæmandi kjör og réttindi eins og þau gerast best hjá íslenskum þegnum. Að öðrum kosti verður hér klofið samfé- lag,“ sagði Ögmundur og lýsti yfir þungum áhyggjum. Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri ASÍ, segir mikil- vægt að erlent starfsfólk njóti fullra og sömu réttinda og aðrir, „út á það gengur okkar barátta,“ segir hann og telur ekki ástæðu til að þenja hagkerfið svo mikið að kalla þurfi til erlent starfsfólk og búast svo við að fólk hverfi heim til sín. „Þetta fólk er að leita sér að lífsviðurværi og kemur hingað til langdvalar,“ segir hann og spyr hvort Íslendingar séu að aðstoða þetta fólk nógu vel. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, telur að hjöðn- unaraðgerðir ríkisstjórnarinnar séu farnar að skila árangri. Frek- ar dragi úr þenslunni eftir ára- mót. Íslendingar hafi reynt að sýna varúð og vanda vel móttöku nýrra einstaklinga. Það sé ágæt þróun að útlendingar leiti sér vinnu og setjist hér að. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, bendir á að Íslending- ar hafi búið til þetta ástand og telur að stöðugri og jafnari þróun hefði verið æskilegri. „En við ömumst ekki við því að þetta fólk komi og erum ekki talsmenn þess að loka af eða setja upp girðingar,“ segir hann, „en auðvitað erum við hugsi yfir því hversu hratt þetta gerist og hve sveiflurnar eru miklar.“ ghs@frettabladid.is Segir nei við fólksstraumi Formaður BSRB telur óheppilegt að inn á vinnu- markaðinn streymi „fólk án afláts“ og hefur þungar áhyggjur. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, telur móttöku útlendinga vandaða. „ÉG SEGI NEI“ Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, spurði hvort það væri heppileg þróun að inn á íslenskan vinnumarkað streymdu þúsundir manna á þessu ári og svaraði sjálfur: „Ég segi nei.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Við verðum að geta búið fólki mannsæmandi kjör og réttindi eins og þau gerast best hjá íslenskum þegnum. ÖGMUNDUR JÓNASSON FORMAÐUR BSRB UMHVERFISMÁL Umhverfis- og fram- kvæmdasvið Reykjavíkurborgar ætla að ráðast í sameigin- legar aðgerðir til að draga úr notkun á nagladekkjum í borginni á næstu dögum, en dekkin eru vanalega sett undir um komandi mánaða- mót. Hjalti J. Guðmundsson, framkvæmdastjóri stefnu- mörkunar og þróunar á umhverfissviði Reykjavík- urborgar, segir aðgerðirnar fyrst og fremst eiga að höfða til skynsemi almenn- ings með því að veita honum upplýsingar um aðra valkosti í dekkjanotkun yfir vetrarmánuðina. Hann segist ekki vera að hvetja fólk til að fórna örygginu fyrir umhverfið. „Við erum að tala um nagladekkjanotkun í þéttbýli þar sem hægt er að þjónusta fólk með mokstri, söltun og öðru slíku.“ Töluvert hefur dregið úr notkun nagladekkja í borginni á undanförnum árum en að sögn Hjalta er það ekki nóg. „Samkvæmt Evrópureglum þá þurfum við að lækka hlutfall svif- ryks í andrúmslofti tölu- vert á næstu árum. Við erum því að ráðast að rót vandans enda er uppspæn- ing nagladekkja á malbiki helsti orsakavaldur svif- ryksins.“ Hjalti segir það kannski lán í óláni fyrir okkur að á Íslandi sé bæði vindasamt og töluverð úrkoma. „Um leið og það fer að hreyfa vind eða verða úrkomusam- ara þá minnkar svifrykið nánast strax.“ - þsj Skipulagðar aðgerðir til að draga úr nagladekkjanotkun: Höfða til skynsemi NAGLADEKK Dreg- ið hefur úr notkun nagladekkja í höfuðborginni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.