Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 12
12 26. október 2006 FIMMTUDAGUR
FÉLAGSMÁL Lamaður maður fær
ekki fjárstyrk frá Tryggingastofn-
un til að skipta á rafmagnshjóla-
stól sínum og annarri tegund sem
hann telur öruggari.
Manninum var synjað um styrk
til kaupa á stólnum þar sem hann
er eldri en átján ára.
„Hann upplifir óöryggi við að
fara á stólnum yfir hindranir svo
sem háar gangstéttarbrúnir, möl
eða annað ójafnt undirlag,“ segir í
bréfi sérfræðings til Trygginga-
stofnunar þar sem mælt var með
að lamaði maðurinn fengi stól af
tegundinni Permobil Trax Corpus í
stað stóls af Balder-gerð.
„Rafmagnshjólastólar eins og
Balder-stóllinn eru tiltölulega
stuttir og háir sem gerir það að
notandinn finnur mikið fyrir öllum
hreyfingum stólsins í ójöfnum og
halla. Permobil Trax er hins vegar
mun lengri stóll og stöðugri,
hannaður til að þola meiri ójöfnur
en aðrir stólar,“ segir ennfremur í
meðmælabréfinu sem ekki hafði
tilætluð áhrif.
Lamaði maðurinn sagðist vilja
betri stól til að geta viðrað hundinn
sinn, til að fylgja vinum og
vandamönnum á göngutúrum og til
að komast út á golfvöll í heimabæ
sínum.
Úrskurðarnefnd almannatrygg-
inga sagði að þrátt fyrir að öflugri
rafmagnshjólastóll myndi
væntanlega auka lífsgæði
mannsins þá væri reglan sú að
aðeins ungmenni innan átján ára
geti valið um öflugri útihjólastól
eigi þau rétt á rafknúnum
hjólastól. Tilgangurinn sé að efla
þroska og sjálfsbjargarviðleitni
barna og unglinga. Eldri einstakl-
ingar eigi meiri möguleika á að
komast leiðar sinnar í bíl. Lamaði
maðurinn hafi einmitt fengið eina
milljón króna til að kaupa bíl:
„Það að kærandi finni til
óöryggis við að fara yfir ójöfnur
eða hindranir í þeim rafmagns-
hjólastól sem hann hefur, er að
mati úrskurðarnefndar ekki
nægjanleg ástæða til þess að
styrkur til kaupa á öflugri
rafmagnshjólastól sé veittur.“ - gar
HAUSTLITIR Veturinn er ekki kominn
enn í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum,
heldur skarta trén enn sínum fegurstu
haustlitum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fær ekki styrk frá Tryggingastofnun til að eignast stöðugri og öflugri rafmagnshjólastól:
Þykir of gamall fyrir öruggari hjólastól
EVRÓPUMÁL Tvíhliða samningar
Sviss við Evrópusambandið voru
neyðarlausn sem ekki stenst sam-
anburð við EES-samninginn. Þetta
segir Christa Markwalder Bär,
þingmaður á svissneska sam-
bandsþinginu og formaður Evr-
ópusamtakanna í Sviss.
Markwalder Bär hélt erindi á
málfundi á vegum Evrópusamtak-
anna á Grand Hótel á þriðjudag,
en á honum talaði einnig Þorsteinn
Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins.
„Eftir að aðild Sviss að Evr-
ópska efnahagssvæðinu var naum-
lega felld í þjóðaratkvæðagreiðslu
í desember 1992 voru tvíhliða
samningar eina færa leiðin,“ segir
Markwalder Bär í samtali við
Fréttablaðið. Það tók hins vegar
langan tíma að koma tvíhliða
samningunum í höfn – þeir fyrstu
gengu í gildi árið 2002 – og þeir ná
hver fyrir sig aðeins til mjög
afmarkaðs sviðs. Gildissvið EES-
samningsins er miklu víðara og
engin sjálfvirk uppfærsla á sér
stað á tvíhliða samningunum eins
og tilfellið er með EES. Uppfærsla
þeirra – sem í Sviss er kölluð
„sjálfstæð eftirframkvæmd“ á
Evrópulöggjöf – er mun fyrirhafn-
armeira ferli og þingmaðurinn
segir það ferli reyndar tæpast
vera sæmandi sjálfstæðu lýðveldi
með sterka lýðræðishefð.
Auk þess nefnir Markwalder
Bär að réttarvernd sé tilfinnan-
lega ábótavant í tvíhliða samning-
unum; svissneskir aðilar geti ekki
skotið málum til Evrópudómstóls-
ins, telji þeir á sér brotið. Í tví-
hliða samningunum er ekki kveðið
á um neina stofnun hliðstæða
EFTA-dómstólnum.
Markwalder Bär segir þó
reynsluna af tvíhliða samningun-
um hingað til hafa verið jákvæða,
og þeir njóti stuðnings öruggs
meirihluta kjósenda í landinu; það
hafi ítrekaðar atkvæðagreiðslur
um samningana sýnt og sannað.
Hún bendir hins vegar á að
stuðningur við tvíhliða samning-
ana geti snúist á skömmum tíma,
þar sem „fallaxarákvæðið“ geti
valdið því að samningarnir komist
allir í uppnám af tiltölulega litlu
tilefni. Dæmi um slíkt tilefni er
atkvæðagreiðsla sem fer fram í
landinu þann 27. nóvember, þar
sem Svisslendingar taka afstöðu
til þess hvort þeir leggi blessun
sína yfir að Sviss leggi meira fé til
þróunarsjóða til handa nýjum
aðildarríkjum ESB í austri. ESB
lítur svo á að samþykki Svisslend-
ingar þetta ekki muni samning-
arnir um aðild Sviss að Schengen-
vegabréfasamstarfinu, sem voru
samþykktir í þjóðaratkvæða-
greiðslu þar í fyrra, ekki taka gildi
heldur.
Markwälder Bär segir að lík-
legasta leiðin sem ýtt gæti Sviss
inn í ESB – ríkisstjórnin á aðildar-
umsókn tilbúna í skúffunni – væri
ef slík alvarleg vandkvæði kæmu
upp við framkvæmd tvíhliða
samninganna. audunn@frettabladid.is
CHRISTA MARKWALDER BÄR Segir
tvíhliða samninga tímabundna millibils-
lausn. Til lengri tíma litið sé hagsmun-
um Sviss best borgið með fullri aðild að
Evrópusambandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tvíhliða
neyðarlausn
Svissneski þingmaðurinn Christa Markwalder Bär
segir tvíhliða samninga Sviss við Evrópusambandið
vera neyðarlausn sem ekki standist samanburð við EES.
„Eftir að aðild Sviss að
Evrópska efnahagssvæð-
inu var felld í þjóðaratkvæða-
greiðslu árið 1992 voru tvíhliða
samningar eina færa leiðin“
CHRISTA MARKWALDER
ÞINGMAÐUR Í SVISS
HJÓLASTÓLARNIR Til vinstri sést
hjólastóll af tegundinni Permobil trax
corpus en til hægri Balder-rafmagns-
hjólastóll eins og maðurinn á í dag.
Tímamótaverk frá einu helsta
ljóðskáldi þjóðarinnar, bók sem
kallast á við fyrstu ljóðabækur
hans í dirfsku og róttækni
– og húmor
Einar Már Guðmundsson
edda.is
Ný ljóðabók eftir Einar Má
NÝTT & BETRA
NÝR OG BETRI JÚMBÓ Í NÆSTU VERSLUN
Kársnesbraut 112 | 220 Kópavogi | Sími 554 6999 | Fax 554 6239 | jumbo@jumbo.is | www.jumbo.is
NÁTTÚRAN Björgunarsveitin
Kyndill frá Kirkjubæjarklaustri
var kölluð út um áttaleytið á
þriðjudagskvöldið.
Vegfarandi hringdi í Neyðar-
línuna eftir að hafa séð ljós, sem
hann taldi vera neyðarblys, á
heiðskírum himninum yfir Núps-
staðaskógi.
Þrír liðsmennn Kyndils fóru í
björgunarleiðangurinn inn í
Núpsstaðaskóg en fundu engin
merki um að slys hefði átt sér
stað. Einn meðlimur björgunar-
sveitarinnar sá stjörnuhrap um
svipað leyti og vegfarandinn sá
ljósið á himninum, og þykir Eiði
Ingólfssyni í Kyndli líklegt að
vegfarandinn hafi ruglast á því
og neyðarblysi. - ifv
Björgunarsveitin Kyndill var kölluð út:
Stjörnuhrap – ekki slys