Fréttablaðið - 26.10.2006, Side 32

Fréttablaðið - 26.10.2006, Side 32
 26. október 2006 FIMMTUDAGUR32 UMRÆÐAN Íslenskar dæmisögur Ég var staddur í bókabúð um daginn þar sem blekfylling- una hafði þrotið í prentaranum mínum. Í bókabúðinni var enginn starfsmaður sjáanlegur svo ég tók mér stöðu fyrir framan afgreiðsluborðið þar sem ég myndaði einmanalega röð ásamt dóttur minni (10 mánaða) sem ég hélt á á arminum. Nokkrar mínútur liðu og það létti óneitanlega yfir okkur feðg- inum þegar afgreiðslukonan birt- ist. Þetta varð þó skammvinnur léttir. Kona um sextugt kemur inn í búðina og hrópar á stúlkuna hvort hún eigi til vissa gerð af glærum. Starfskonan beit strax á þetta og á nokkrum mínútum hefði ég getað lært allt um glær- ur. Ég vildi það hinsvegar ekki. Af dýpt samræðunnar milli kvennanna, lengd og allskyns útúrdúrum mátti ráða að kerling var alls ekki að flýta sér þegar allt kom til alls. Þetta hefði svosem verið efni nóg í hversdagslega pirru en nú, þegar glærukonan kom upp að afgreiðsluborðinu til að gera upp fyrir sig, keyrði um þverbak. Hún beraði tanngarðinn og sagði: „Fyrirgefðu að ég treð mér svona framfyrir.“ Við brostum ekki á móti. Á leiðinni heim vöknuðu spurn- ingar, því framferði kerlingar á sér hliðstæðu í mörgu því sem maður sér sem nýbúi á Íslandi. Fyrst: Hver var hvöt kerlingar bakvið játninguna? Var hún að koma mér í skiln- ing um að hún vissi að hún væri að gera rangt? Var hún óbeint að segja að hún þekkti leikreglur siðmenntaðs samfélags (að hún væri ekki fáviti) en henni stæði bara á sama um þær? Ég hallast helst að því að þetta hafi verið s.k. meðvituð og upp- lýsandi tvöfeldni, þ.e.a.s. tví- smurður dobbeltmórall, þar sem gerandinn lætur ekki hanka sig á því að vera óvitandi um sína tvöfeldnis- breytni og gerir þetta öðrum skiljan- legt. Hvernig myndi Sókrates hafa brugð- ist við, hann sem kenndi að fólk gerði aldrei rangt nema sökum fávisku? Það er vissulega fáviska bakvið tvöfeldnina, bara djúprættari en vani er. Og hér byrja dæmin að ryðjast á mann. Þetta minnti á ummæli Guðna Ágústssonar að Framsóknarflokkur- inn hafi „mjög umhverfisvæna stefnu“, og á keimlík ummæli Geirs Haarde í setningarræðu hans. Framferði kerlingar minnti á ummæli Jóns Sigurðssonar iðn- aðarráðherra í kvöldfréttum RÚV 27 sept., þ.e. daginn eftir fjölda- mótmælin sem Ómar Ragnarsson leiddi. Jón sagði að mótmælin hefðu ekkert að segja „þar sem vísindamenn hafi ekki komið með neitt nýtt“. Nú er þekkt hvernig ýmsum vísindamönnum hefur verið bannað að tjá sig um fram- kvæmdirnar. 12.000 mótmælend- ur urðu í einu vetfangi einskonar hjátrúarfólk hvers mótmæli voru ráðherranum alls óviðkomandi. En allra mest minnti framferð- ið á upplýsingafulltrúa hjá íslenskum banka sem lýsir fjálg- lega hvernig bankinn græðir hundruð milljóna daglega, meðan sami banki stundar okurlána- starfsemi á sínum viðskiptavin- um, sem á sér engan líka meðal siðmenntaðra þjóða. Það er tvöfeldnis- kerfi sem leyfir fyr- irtækjum en ekki einstaklingum að vera frjálsum. Við lifum enn á tímum einokunar. Það sem er verra við þessa breytni eru hin óbeinu skila- boð sem í felast. Ráðamenn hafa fengið hugmynd, og aðrir sem eru í vegi eru hvorki séðir né virtir, eða: séðir og samt ekki. Talsmenn stóriðju ætla að byggja upp atvinnu- líf og hagvöxt. Bankamenn ætla að græða sem mest: Þetta, hvað sem raular og tautar. 68-kynslóðin tók að sér verk- efnið að bjarga okkur frá mold- búahættinum, iðulega nefndum með glotti þegar einhver mót- mælir markaðsbarbarismanum sem hefur einkennt hugmynda- fræði téðrar kynslóðar. Þetta er kynslóðin sem ruddi burt gamla burstabænum sem stóð á land- námstóftunum af því hann var svo ljótur og bara moldargólf þar. Af þessari kynslóð eru þeir sem vilja gera allt að einkavæddri féþúfu nokkurra. Skilaboðin eru send: Hagur banka, fyrirtækja og álbræðslu er mikilvægari en hagur fólksins í landinu almennt. Mikið er til af dæmisögum af slíku framferði. Meðal norrænna heiðingja eru til kvæði sem greina frá niðurlægjandi endalokum hins drambsama konungs, sem rækti sína hugmynd meir en sitt eigið fólk. Hinsvegar eru skugga- legri sagnirnar af því þegar lýðn- um gleymist að það er hann sem ræður. Lýðurinn kýs yfir sig kerfi sem tryggir hag sem flestra. Þegar kerfið hættir að þjóna því hlutverki ætti lýðurinn að knýja fram betrumbætur. Höfundur er rithöfundur og norrænufræðingur. UMRÆÐAN Samskipti Þar sem tímaskortur vegna anna er víða vilja margir gefa því gaum með hvaða hætti samskipt- um við börnin sé best háttað þannig að þau gagnist þeim sem best. Ég held að það að hafa aðgengi að for- eldrum sínum með einum eða öðrum hætti sé með því mikil- vægasta fyrir þau. Heilbrigð skynsemi segir auðvitað að sitt lítið af hverju s.s. aðgengi, samvera, að tala saman og gera eitthvað saman hlýtur að vera far- sælast. En ef það er nú svo að það þyrfti að forgangsraða vegna tímaskorts eða einhvers annars þá er ekki ósennilegt að aðgengið kunni að vera býsna ofarlega. Það að barnið og unglingurinn viti hvar foreldrarnir eru, hvernig hægt er að ná í þá þegar þau lang- ar að spjalla eða þegar mikið ligg- ur við er afar mikilvægt. Þegar börn og foreldrar eru saman heima er það ekki hvað síst ein- faldlega nærveran sem börnin kunna hvað mest að meta. Höfundur gefur kost á sér í 6. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. (Greinin er birt í heild á Vísir.is undir Skoðanir.) Samskipti barna og foreldra UMRÆÐAN Samkeppnishæfni Stjórnvöld gegna stóru hlut-verki í alþjóðlegri samkeppni. Stefna stjórnvalda hefur áhrif á samkeppnisstöðu þjóðarinnar bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. Markmið stjórnvalda á að vera að skapa umhverfi þar sem fyrirtæki geta uppfært samkeppnisyf- irburði í grein- um sem fyrir eru en einnig að auðvelda fyrirtækjum inngöngu í nýjar atvinnugreinar með möguleika á mikilli framlegð. Mikilvægt hlut- verk hins opinbera er að stuðla að þróun framleiðsluþáttanna með því að efla og styðja við menntun, rannsóknir og nýsköp- un. Beinum ríkisafskiptum á að halda í lágmarki. Hlutverk stjórnvalda á sviði upplýsingar- miðlunar er þó mikilvægt. Vaxtarmöguleikar felast í holl- ustu og gæðum afurða ef tekst að skapa hreina og náttúruvæna ímynd landsins á alþjóðavett- vangi. Vísindaleg nýting auðlinda er nauðsyn í þeirri viðleitni. Höfundur gefur kost á sér í 3.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. (Greinin er birt í heild á Vísir.is undir Skoðanir.) Ísland og alþjóðleg samkeppni UMRÆÐAN Framboð Það kom flestum á óvart þegar Guðfinna S. Bjarnadóttir, núverandi rektor Háskólans í Reykjavík, bauð sig fram til starfa í stjórnmálum. Það er mikið fagnað- arefni að fólk á borð við Guð- finnu skuli gefa kost á sér til þingsetu og líklegt er að hún muni laða margan nýjan kjósandann að í prófkjöri sjálfstæðis- manna í Reykjavík sem og í kosningum í vor. Guðfinna hefur stýrt Háskólanum í Reykjavík í gegn- um árangursríka uppbyggingu síðastliðin 8 ár og markað djúp spor í menntasögu okkar þjóðar. Áður starfaði Guðfinna um langt skeið sem ráðgjafi alþjóðlegra stórfyrirtækja í Bandaríkjunum eftir að hún lauk þaðan doktors- námi í atferlisfræði. Guðfinna hefur hvarvetna getið sér gott orð fyrir góðan árangur, áræðni, kraft og bjartsýni. Innkoma hennar er öðrum öflugum ein- staklingum hvatning til að stíga slíkt skref. Höfundur er framkvæmdastjóri Verslunarráðs. (Greinin er birt í heild á Vísir.is undir Skoðanir.) Með fjöl- breytni að vopni KOLBRÚN BALDURS- DÓTTIR STEINN KÁRASON HALLA TÓMAS- DÓTTIR UMRÆÐAN Launamunur Það er dapurlegt að heyra í for-manni VR og félagsmálaráð- herra þegar þeir eru spurðir út í launamun kynjanna sem er 15% þriðja árið í röð. Báðir segjast þeir ráðalausir. Undrun þess- ara manna und- irstrikar það sem margur femínistinn hefur stagglast á í mörg ár. Eitt eða tvö góð átök breyta ekki miklu, ekki frekar en í umferðinni – því miður. Samhengi hlutanna virðist ekki öllum ljóst og það að ætla sér að lagfæra jafn- rétti kynjanna með þó vel meintri auglýsingaherferð er langt frá því að vera það eina sem þarf til. Þegar aðeins má tala um einn anga óréttlætis og reynt er að vinna bug á honum einangrað er fyrir- sjáanlegt að árangurinn verður ekki ýkja mikill. Við þurfum að setja kynjagler- augun á nefið í öllum málaflokk- um. Þegar sett eru ný lög á Alþingi séu þau skoðuð sérstaklega með tilliti til áhrifa þeirra á konur og karla. Höfundur býður sig fram í 6. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. (Greinin er birt í heild á Vísir.is undir Skoðanir.) Kynjagler- augun á nefið UMRÆÐAN Líknarfélög Líknarfélög hér á landi vinna margvísleg þjóðþrifaverk. Þau njóta samt ekki sömu skattfríðinda og líknarfélög í Evrópu og Banda- ríkjunum. Þegar ég sat á Alþingi lagði ég fram þingsályktunar- tillögu um skatt- frelsi íslenskra líknarfélaga. Í henni er lagt til að fjármálaráð- herra leggi fyrir Alþingi frum- varp um að skattreglum verði breytt þannig að íslensk líknarfélög njóti sömu skattfríðinda og erlendis. Ég hef lagt mesta áherslu á undanþágu vegna fjármagnstekjuskatts, því löng reynsla mín af starfi fyrir líkn- arfélög sýnir mér, að það er stærsti bitinn sem ríkið klípur af þeim með skattheimtu. Líknarfélög ættu ekki að þurfa að greiða fjármagnstekjuskatt og erfðafjárskatt. Auk þess ættu þau að fá lagalegan rétt til endur- greiðslu á virðisaukaskatti á aðföng- um, og einstaklingar ættu að fá rúma heimild til að draga frá skatt- stofni sínum framlög til líknarfé- laga. Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV- kjördæmi. (Greinin er birt í heild á Vísir.is undir Skoðanir.) Skattfrelsi líknarfé- laga BRYNDÍS ÍSFOLD SANDRA FRANKS Tvísmurður dobbeltmórall UMRÆÐAN Leiðara svarað Í leiðara Fréttablaðs-ins föstudaginn 13. október gagnrýnir Björgvin Guðmunds- son orð Magnúsar Stefánssonar, félags- málaráðherra, um að hækka þurfi hlutfall hámarkslána Íbúða- lánasjóðs (ÍLS) aftur í 90 prósent og ákvörðun ríkisstjórn- arinnar að auka umsvif ÍLS. Sjóður- inn gegnir því mikil- væga hlutverki að tryggja aðgang almennings, óháð búsetu, að láns- fé til íbúðarkaupa á eins góðum kjörum og hægt er. Tekju- og eignaminni einstaklingum hefur þannig verið gefinn kostur á að eignast þak yfir höfuðið á viðráð- anlegu verði og kjörum. Það að félagsmálaráðherra muni leggja fram frumvarp nú í haust, sem bæði styrkir og við- heldur þessum félagslegu mark- miðum, er því mikið fagnaðarefni fyrir áðurnefnda þjóðfélagshópa og ekki síður þá sem búa á lands- byggðinni. Fasteignaverð er þar í flestum tilvikum mun lægra og alls óvíst að markmið ríkisstjórn- arinnar um að tryggja öllum lands- mönnum jafnan aðgang að lánum til íbúðarkaupa á sömu kjörum hvar sem er á landinu fari nokk- urn tímann saman með hagsmun- um fjármálafyrirtækja þar sem lánveitingar hljóta alltaf að vera á markaðslegum forsendum. Leiðarahöfundur segir að breyt- ingarnar, einar og sér, séu til þess fallnar að auka eftirspurn eftir fasteignum og kynda undir hag- kerfinu meira en ella. Þessi niður- staða er röng og villandi. Það eru mun fleiri þættir sem líta verður til þegar skoðað er hvað veldur hita í hagkerfinu. Ef ÍLS verður lagður niður er líklegt að efnaminni einstakling- ar og fólk á lands- byggðinni ætti erfitt með að fá lán hjá bönk- um og sparisjóðum. Við þær aðstæður neyðast ríki og sveit- arfélög til að skerast í leikinn og endurvakið yrði úrelt félagslegt kerfi sem lagt var niður þegar ÍLS var komið á fót. Það myndi eðlilega hafa slæm áhrif á verðbólgu líka. Þær fullyrðingar leið- arahöfundar, að áform um að auka umsvif ÍLS og að hækka íbúðalán aftur í 90% eru stórfurðulegar og langt frá því að vera á rökum reistar. Þessar aðgerðir einar og sér munu ekki hafa aukna verðbólgu í för með sér. Viðbrögð fjármálastofnana við hækkuninni koma til með að ráða mestu þar um. Þá verður einnig að teljast afar ósanngjarnt að þeim sem minnst áhrif hafa haft á aukna verðbólgu eins og þeir lægst laun- uðu og fólk á landsbyggðinni skuli vera ætlað að taka á sig skellinn við að halda verðbólgunni í skefj- um enda er ÍLS ekki síst ætlað að gæta hagmuna þeirra þjóðfélags- hópa. Ég fagna því þeim áformum félagsmálaráðherra að viðhalda og styrkja ÍLS. Sú ráðstöfun stuðl- ar að bættum lífskjörum og jöfn- um tækifærum allra landsmanna að eignast hús yfir höfuðið. Með framlagningu frumvarps- ins hefur félagsmálaráðherra gefið tóninn á komandi kosninga- vetri með styrkingu á þeim félags- legu markmiðum sem ÍLS er gert að standa vörð um. Framsóknar- flokkurinn er og á að vera félags- hyggjuflokkur. Með þessu útspili hefur hann staðfest það í verki. Höfundur er Akureyringur og framsóknarmaður. Styrking Íbúðalána- sjóðs góðar fréttir HÖSKULDUR ÞÓR ÞÓR- HALLSSON BERGSVEINN BIRGISSON Á leiðinni heim vöknuðu spurn- ingar, því framferði kerlingar á sér hliðstæðu í mörgu því sem maður sér sem nýbúi á Íslandi. Fyrst: Hver var hvöt kerlingar bakvið játninguna?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.