Fréttablaðið - 26.10.2006, Page 38
[ ]
Alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld
hafa lýst yfir áhyggjum af yfir-
vofandi berklafaraldri, vegna
fjölgunar tilfella þar sem hefð-
bundin berklalyf virka ekki.
„Berklar eru óalgengir á Íslandi
og tíðni tilfella með þeirri allra
lægstu í veröldinni, en á undan-
förnum árum hafa ekki nema um
það bil tíu berklatilfelli greinst á
ári,“ segir Tryggvi Ásmundsson,
lungnalæknir hjá Heilsuverndar-
stöðinni í Reykjavík.
Að sögn Tryggva geta menn
smitast af berklum í samvistum
við hóstandi berklasjúkling.
Berklabakterían smitast þá í gegn-
um öndunarveg og niður í lungu.
„Yfirleitt veikjast þó ekki nema
tíu prósent hinna smituðu,“ útskýr-
ir hann. „Þannig eru tíu prósent
líkur á því að sá smitaði muni
veikjast einhvern tímann í fram-
tíðinni. Hættan á veikindum er þó
mest fyrst.“
Tryggvi bætir við að veikindi, á
borð við alnæmi, eða lyf, til dæmis
krabbameinslyf, sem minnka mót-
stöðuna auki líkur á að berklarnir
blossi upp. „Þetta er ástæða þess
að menn beita svokallaðri varn-
andi meðferð eftir að berklasmit
greinist, en hún byggir á níu mán-
aða lyfjameðferð,“ segir hann.
„Hún miðar að því að minnka þess-
ar 10 prósent líkur niður í um það
bil 1 prósent til að koma í veg fyrir
veikindi.“
Tryggvi ítrekar að þótt berkla-
baktería hafi tekið sér bólfestu í
líkama einhvers, þýði það ekki að
sá hinn sami veikist né smiti hann
frá sér.
„Veikist einhver fær hann hins
vegar berklameðferð,“ segir hann.
„Viðkomandi fær þá fjórar lyfja-
tegundir, á meðan verið er að
kanna hversu vel næm bakterían
er fyrir lyfjagjöf. Það tekur yfir-
leitt tvo mánuði áður en niður-
staða fæst, en að svo búnu er yfir-
leitt hægt að fækka lyfjum niður
í tvær tegundir.“
Undanfarið hefur tilfellum
fjölgað í Eystrasalts-ríkjum þar
sem upp hafa komið berklaaf-
brigði, sem ekki svara hefðbund-
um lyfjameðferðum og kallast
fjölónæm. Tryggvi segir ákveðnar
líkur á því að flytjist berklasjúkl-
ingur með fjölónæman stofn hing-
að til lands geti hann smitað frá
sér.
„Miðað við núverandi lög er
innflytjendum skylt að fara í
læknisskoðun hyggjist þeir setj-
ast að hérlendis,“ segir Tryggvi.
„Þau ná þó ekki yfir innflytjendur
frá aðildarríkjum að Evrópusam-
bandinu, þar á meðal Eystrasalts-
löndum sem gengu nýlega í það,
en þar hafa þessi fjölónæma stofn-
ar verið að greinast eins og áður
sagði.“
Eins og staðan er nú þá er hlut-
fall innflytjenda á meðal berkla-
smitaðra hátt að sögn Tryggva.
„Það er þó ekki einskorðað við
Ísland heldur í hinum vestræna
heimi almennt,“ heldur hann
áfram. „Ekki er hægt að tengja til-
fellin við einhver ákveðin þjóð-
erni, þótt þau séu algengari hjá
innflytjendum frá þróunarlönd-
um.“
Tryggvi segir enga ástæðu til
að óttast að berklafaraldur gangi
yfir landið en bætir við að næðu
þessir fjölónæmu stofnar að skjóta
rótum hérlendis gæti hættuástand
skapast. „Okkur yrði svipaður
vandi á höndum og á öndverðri 20.
öld þegar við bjuggum ekki yfir
lyfjum til að vinna á berklunum.
Við skulum hins vegar ekki mála
skrattann á vegginn, á meðan við
höfum svona góða stjórn á ástand-
inu.“
roald@frettabladid.is
Berklatilfelli fleiri
meðal innflytjenda
Tryggvi segir Íslendinga ekki þurfa að óttast berklafaraldur eins og staðan er nú.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fótheilsa er okkur mikilvæg. Fótaaðgerðafræðingar mæla með
reglulegu eftirliti á fótum rétt eins og venja er að fara til tannlæknis
einu sinni á ári.
Útsölustaðir: Apótek, Heilsubúðir, Fjarðarkaup og Hagkaup
1 til 2 tsk. 5 mínútur fyrir
t.d. morgunmat og
kvöldmat
Það veldur mettunartilfinningu,
jafnar blóðsykur og kemur
meltingunni í jafnvægi.
Duftið er troðfullt af öllum
helstu vítamínum, steinefnum,
ammónísýrum, góðum fitusýrum
og próteinum. Lífrænt ræktað,
eykur orku, úthald og vellíðan!
Gott ráð er að taka
inn Living Food
Engergy duftið frá
dr. Gillian McKeith.
Sækir þú mikið í sætindi,
halda þér engin bönd?
�������
• Sjálfsvirðingu og það að setja mörk
• Ást, bæði heilbrigða og sjúka
• Andlegan þroska
• Skapandi hugsun í samskiptum
Helgarnámskeið
fyrir konur um hluti
sem skipta máli
Námskeiðshaldarar:
Ásta Kristrún Ólafsdóttir, B.A., C.C.D.P. Ráðgjafi
Lilja Ósk Úlfarsdóttir Ph.D. Sálfræðingur.
Staðsetning:
Námskeiðið verður haldið í Síðumúla 33, 2. hæð,
föstudaginn 3. nóvember frá kl. 18:00 til kl. 20:00 og
laugardaginn 4. nóvember frá klukkan 10:00 til klukkan 14:00.
Verð og upplýsingar:
Verð kr. 7.000.- Innifalið í verðinu eru námsgögn og hressing.
Upplýsingar og skráning í símum: 869 0907 og 694 7997.
Fjallað
verður um
eftirfarandi