Fréttablaðið - 26.10.2006, Side 40
[ ]
Stólar og borð frá fyrirtækinu Flexform.
Skemill og svartur stóll, sem kallast
Mart, hvorir tveggja frá B&B. Borðstofu-
sett einnig frá B&B.
Sófinn Tufti Time og sófaborðin Fat-Fat
frá B&B, með litríkum púðum frá Object
Collection. Gólfmottan er frá Kasthall.
Fallegur lampi frá Object Collection.
Skemill sem kallast Fat Fat og sófinn
Charles, hvorir tveggja frá B&B, og gólf-
motta frá Kasthall.
Ný húsgagna- og gjafavöru-
verslun, Mood, var opnuð fyrir
skemmstu og hafa viðtökurnar
ekki látið á sér standa.
„Í Mood er boðið upp á húsgögn og
gjafavöru í hágæðaflokki,“ segir
Klara Thorarensen, rekstrarstjóri
og einn eigenda verslunarinnar.
„Við erum með vörur frá nokkrum
af þekktustu hönnunarfyrirtækj-
unum í dag, B&B Italia, Flexform
og Cristalia og versluninni er skipt
niður eftir þeim.“
B&B Italia var stofnað árið
1966 og hefur lengi verið leiðandi
í hönnun húsgagna. „Margir af
þekktustu hönnuðum heims starfa
nú hjá fyrirtækinu,“ segir Klara.
„Nútímalegur stíll er helsta ein-
kenni húsgagnanna. Þau eru þó
klassísk sem sést af því að sumir
munirnir byggja á áratuga gam-
alli hönnun.
Við erum einnig með sérstaka
vörulínu frá B&B sem kallast Max
Alto, en hönnuðurinn Antonio Citt-
erio stendur alfarið á bakvið
hana,“ segir Klara ennfremur.
„Þetta eru dökk viðarhúsgögn,
sófar, stólar og svo framvegis. Þau
eru heimilisleg, nýtískuleg og í
hlýlegri kantinum,“ bætir hún
við.
Gjafavara frá B&B, í línunni
Object Collection, er einnig seld í
versluninni. Klara kveður munina
frá fyrirtækinu einstaklega vand-
aða, í raun sé nær að tala um list-
muni.
Vörur frá B&B hafa um árin
verið seldar jöfnum höndum inn á
heimili og hótel að sögn Klöru. Í
því samhengi má geta þess að Bul-
gari-hótelið víðfræga á Ítalíu var
nýlega valið það flottasta í heimi,
en það er eingöngu búið húsgögn-
um frá B&B og Flexform, sem
sýnir vel hversu vönduð þau eru.
Flexform er rótgróið fjölskyldu-
fyrirtæki, sem hefur verið til í
hálfa öld. „Á síðustu tuttugu árum
hefur það skráð sig á spjöld ítalskr-
ar húsgagnasögu og ráðið til sín
virta hönnuði,“ segir Klara. „Ákveð-
in notalegheit einkenna vöruna og
maður er gripinn sterkri löngun til
að kúra í sófunum frá fyrirtæk-
inu.“
Christalia er aftur á móti nýtt
og framsækið fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í hönnun borðstofu- og
skrifstofuhúsgagna að sögn Klöru.
Í búðinni eru einnig sérsniðnar
mottur frá Kasthall og fyrir jól
verða á boðstólum vörur frá
spænska húsgagnafyrirtækinu
Rafemar.
Athygli vekur að Mood er við
Suðurlandsbraut 48, þar sem
verslunin Heima var áður til húsa,
en Klara rak hana einmitt. „Ég er
því enginn nýgræðingur í verslun-
arrekstri, þótt ég sé ung að árum,“
segir hún. „Sjálf átti ég hlut í
Heima á móti föður mínum Kristj-
áni Thorarensen, sem ég seldi
honum nýverið. Hann á ennfrem-
ur Öndvegi húsgagnaverslun, þar
sem ég vann frá átján ára aldri.“
Klara segir ákveðinn mun vera
á rekstri Mood og hinna verslan-
anna, þar sem stór hluti vörunnar
í Mood sé sérpantaður. „Annars á
munurinn eftir að koma betur í
ljós þar sem ekki er lengra síðan
en á mánudag að búðin var
opnuð.“
roald@frettabladid.is
Nýtt og framsækið fyrirtæki
Klara Thorarensen fyrir framan málað veggfóður frá Flexform. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Gluggatjöld geta hjálpað til við að verja heimil-
ið gegn kulda. Munið samt að draga reglulega frá því
annars getur myndast mikill raki á rúðunum.
Hágæða ræstivörur
fyrir nútíma ræstingu
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Brimnes - Nesbakki - Skipavík -
Litabúðin - SR bygingavörur - Byggt og búið - Litaver - Rými - Núpur -
Áfangar Kefl avík - Pottar og prik (Daggir) Akureyri - Takk hreinlæti
Heilsöludreifi ng: Ræstivörur ehf - Stangarhyl 4 -
110 Reykjavík - Sími 567 4142 - www.raestivorur.is