Fréttablaðið - 26.10.2006, Page 58
■■■■ { hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■14
Fáir eru á ferli við Hlíðarþúfur.
Ofan úr einni kaffistofunni berast
þó glaðlegar raddir. Þar eru hjón-
in Snorri Dal og Anna Björk með
dætur sínar tvær og góða gesti í
heimsókn. Þau segja hesthúsin oft
ágætis félagsmiðstöðvar.
„Á veturna er mjög mikið líf
hérna. Margt fólk og margir hest-
ar. Oft koma foreldrar með börn-
in sín snemma á laugardags- og
sunnudagsmorgnum. Byrja á að
gefa og svo er farið í útreiðartúr.
Kaffistofurnar eru orðnar svo fínar
og stundum er eldað þar. Það er
gaman hvað hægt er að tvinna
fjölskyldulíf og hestamennsku
saman,“ segir Snorri brosandi.
Kaffistofan sem við sitjum í er
einkar vistleg. Gluggatjöldin eru
alsett hestamyndum og stang-
irnar sem þau hanga á skreyttar
skeifum. Ekki spillir útsýnið – yfir
gæðingana í stíum sínum. Þau
hjón segjast leigja þessa aðstöðu.
„Bærinn er að fara að úthluta
hesthúsalóðum og vonandi fáum
við eina þeirra. Við vorum áður
í Faxabóli í Víðidal en þar sem
við búum hér í Áslandshverfinu
langaði okkur að færa hestana
hingað,“ segir Snorri. „Ég er líka
innfæddur gaflari þannig að það
hefur alltaf togað í mig að vera
hér,“ segir Anna Björk og kveðst
hafa verið félagi í Sörla lengi.
„Hér eru frábærar reiðleiðir í kring
og svæðið er allt mjög gott.“
Bæði segjast þau alin upp við
hestamennsku frá blautu barns-
beini. Snorri er Grindvíkingur að
uppruna en var í sveit hjá ömmu
sinni og afa vestur á Mýrum og
kynntist hestum þar. Meðan hann
var enn í foreldrahúsum flutti hann
í Mosfellsbæinn og fékk sér þá strax
hesta. „Maður losnar ekki svo glatt
við hestabakteríuna þegar hún er á
annað borð búin að taka sér ból-
festu,“ segir hann hlæjandi. Hann
hefur tamningar að aðalstarfi en
Anna Björk er líka í sölumennsku.
Þau segja haustin góð til tamninga
ef veðráttan sé hagstæð. „Hrossin
eru róleg á þessum tíma og fáir á
ferli. Þegar maður er að rassakast-
ast í trippadóti er gott að vera dálít-
ið í friði,“ segir Anna Björk.
Katla Sif fjögurra ára á einn
hest en hann er úti í haga. Hún
segir blaðamanni áhrifamikla
sögu um óþekku hryssuna Vöku
sem beit hana í bakið þegar hún
var að hjálpa pabba sínum að gefa
og hann skrapp að ná í hey. Spurð
hvort hún hafi ekki orðið hrædd
svarar hún hraustlega.
„Nei, en ég meiddi mig. Pabbi
kom bara hlaupandi. Ég gleymdi
að Vaka var þarna.“ Bætir svo við
eftir smá þögn. „Hún er bara svo-
lítil óhemja.“ gun@frettabladid.is
Tvinna saman
fjölskyldulíf og
hestamennsku
Hestamenn í Hafnarfirði hafa góða aðstöðu í Hlíðarþúf-
um og Sörlaskeiði og ekki skortir skemmtilegar reiðleiðir.
Fæstir eru með hesta á húsi á þessum tíma en Snorri
Dal og Anna Björk Ólafsdóttir eru undantekning frá því,
enda atvinnutamningamenn.
Snorri Dal og Anna Björk eru samhent í hestamennskunni og uppeldinu. Dæturnar Sara
Dís og Katla Sif sitja keikar á Hemingi. FRÉTTABLAÐIÐ/