Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 73
FIMMTUDAGUR 26. október 2006 33
UMRÆÐAN
Dagur Sameinuðu þjóðanna
Í tíunda og síðasta skipti flyt ég vinum og samstarfsmönnum um allan heim kveðj-
ur mínar á degi Sameinuðu þjóðanna. Ég
hef varið næstum allri starfsævinni hjá
Sameinuðu þjóðunum og þess vegna verður
þessi dagur og þau gildi sem hann stendur
fyrir, mér alltaf kær.
Á síðustu tíu árum höfum við stigið nokk-
ur stór skref fram á við í sameiginlegri bar-
áttu okkar fyrir þróun, öryggi og mannrétt-
indum.
• Aðstoð og skuldauppgjöf hefur aukist og
efnahagslíf heimsins orðið aðeins rétt-
látara.
• Veröldin hefur loks tekið við sér og eflt
átakið gegn HIV/alnæmi.
• Það eru færri
stríð á milli
ríkja en áður og
mörgum borg-
arastyrjöldum
hefur lokið.
• Fleiri ríkis-
stjórnir eru
kosnar af fólk-
inu og bera
ábyrgð gagn-
vart fólkinu
sem þær ríkja
yfir.
• Og öll ríki hafa viðurkennt, að minnsta
kosti í orði, að þær bera ábyrgð á því að
vernda þegna sína fyrir þjóðarmorði,
stríðsglæpum, þjóðernishreinsunum og
glæpum gegn mannkyninu.
En margt er enn ógert:
• Bilið á milli ríkra og fátækra heldur
áfram að breikka.
• Mjög fá ríki eru á áætlun í að ná öllum
átta Þúsaldarmarkmiðunum fyrir árið
2015.
• Margir búa enn við grimmdarverk,
kúgun og mannskæð átök.
• Útbreiðsla kjarnorkuvopna er áhyggju-
efni.
• Hryðjuverk og viðbrögð við hryðjuverk-
um vekja ógn og tortryggni.
Svo virðist sem við séum ekki sammála
um af hverju mest ógn stafar. Þeir sem búa
á litlum eyjum óttast mest hlýnun jarðar.
Þeir sem búa í stórborgum óttast hryðju-
verk og íbúum New York, Mumbai og Istan-
bul kann að þykja brýnna að ráðast til atlögu
gegn hryðjverkum. Enn aðrir kynnu að
nefna fátækt, sjúkdóma eða þjóðarmorð.
Sannleikurinn er sá að allt er þetta ógn
gagnvart öllum jarðarbúum. Við ættum að
ráðast gegn þeim öllum. Ella kann svo að
fara að við höfum ekki árangur sem erfiði í
baráttunni gegn neinni þeirra.
Sérstaklega á þessum tíma, megum við
ekki standa sundruð. Ég veit að þið, þjóðir
heimsins, skiljið það. Þakka ykkur fyrir
þann stuðning og þá hvatningu sem þið
hafið veitt mér á tíu erfiðum en ánægjuleg-
um árum.
Verið svo væn að hvetja leiðtoga ykkar til
að starfa með eftirmanni mínum og gera
Sameinuðu þjóðirnar sterkari og skilvirkari.
Lengi lifi plánetan okkar og þjóðir henn-
ar. Lengi lifi Sameinuðu þjóðirnar!
Höfundur er framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna og ávarpaði framkvæmdastjóra
SÞ 24. október 2006.
Margt ógert á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
KOFI ANNAN
UMRÆÐAN
Athugasemd
Í Fréttablaðinu 18. október síð-astliðinn birtist dálítil grein um
Hið íslenzka fornritafélag, eða
Fornritafélagið eins og það er
nefnt í dag-
legu tali, í
tilefni af
útkomu 25.
bindis í rit-
safni
félagsins. Í
þessu nýja
bindi eru
tvær forn-
ar sögur,
Færeyinga
saga eftir
ókunnan
höfund og Ólafs saga Tryggvason-
ar eftir Odd Snorrason, sem munk-
ur var á Þingeyrum við lok 12.
aldar, og hefur dr. Ólafur Hall-
dórsson búið sögur þessar til
prentunar.
Í grein Fréttablaðsins er saga
Fornritafélagsins rakin í stuttu en
hlýlegu máli, og kunnum við
aðstandendur félagsins blaðinu
þökk fyrir það. Aðeins þykir okkur
ástæða til að gera athugasemd við
niðurlagsorð greinarinnar. Þar er
kvartað yfir því, sem rétt er, að
útgáfan hafi gengið undarlega
hægt fram. Kennir blaðið þetta
einkum „fálæti stjórnvalda“.
„Þeim lætur betur að tala um
menningararfinn en kosta hann,“
segir blaðið.
Þetta er af misskilningi mælt í
garð stjórnvalda. Fornritafélagið
hefur frá öndverðu notið nokkurs
styrks árlega af almanna fé, og
þótt það hafi raunar ekki búið við
allsnægtir á fyrri árum, þá hafa
ýmsar ástæður fleiri en fátæktin
valdið því hve starfsemin hefur
gengið seint. Má sérstaklega
benda á það að útgáfan, sem ætluð
er lestrarfúsum íslenskum
almenningi, er jafnframt vísinda-
leg, og hin mikla undirbúnings-
vinna hvers bindis hefur að miklu
leyti verið unnin í hjáverkum
fræðimanna frá öðrum störfum.
En nú hafa þau gleðilegu tíðindi
gerst að hin síðari ár hafa íslensk
stjórnvöld séð félaginu fyrir ríf-
legum tekjum sem við vonum að
muni haldast um langa framtíð.
Þessi stuðningur hefur gert félag-
inu kleift að ráða í þjónustu sína
allmarga fræðimenn, eldri og
yngri, og hleypa miklum krafti í
starfsemina. Gerð hefur verið föst
áætlun um að ljúka á næstu árum
prentun þeirra níu binda sem eftir
eru til að fylla töluna 35 sem um er
getið í grein Fréttablaðsins, og
verða þá út komnar allar hinar
merkustu íslenskar fornsögur.
Með vorinu kemur Sverris saga í
útgáfu Þorleifs Haukssonar, og
síðan mun hvert bindi reka annað.
Fyrir hinn mikilvæga stuðning
vill Fornritafélagið færa ríkis-
stjórn Íslands og Alþingi innilegar
þakkir.
Fyrir hönd stjórnar Hins íslenzka
fornritafélags, Jónas Kristjánsson.
Fáein
þakkarorð
JÓNAS KRISTJÁNSSON
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
�
�
�
�
�
�
�
��������������������������������������������������
�������
���������������������������������������� ������������������� �������������
������������������������������������������������
�
��������������������������