Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 94
54 26. október 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Hlynur Bæringsson er
kominn aftur í íslenska körfu-
boltann eftir ársdvöl í Hollandi og
hann hefur minnt verulega á sig í
fyrstu tveim leikjum Snæfells í
vetur. Í sigurleik gegn Fjölni skor-
aði Hlynur 12 stig og tók 11 fráköst
en hann var enn öflugri í tapleik
gegn KR í Vesturbænum þar sem
hann skoraði 22 stig og reif niður
19 fráköst og þar af 11 sóknar-
fráköst.
„Þetta tímabil verður skemmti-
legt enda lítur út fyrir að deildin
sé mjög jöfn. Það er fínt að hafa
bara einn Kana og svo finnst mér
Evrópubúarnir í deildinni betri
núna en oft áður. Þetta eru ekki
alveg sömu pulsurnar og voru oft
hérna,“ sagði Hlynur og hló við en
Snæfellsliðið sem hann spilar með
í dag er nokkuð breytt frá því
að hann lék siðast. Stærsti munur-
inn er þó að nýr þjálfari er kominn
í brúna en Bandaríkjamaðurinn
Geoff Kotila tók við liðinu af Bárði
Eyþórssyni.
„Hann er frábær. Við erum
ekki alveg farnir að gera eins og
hann vill en það hlýtur að detta inn
því hann er mjög fær í sínu starfi
og mjög vel liðinn af leikmönnum.
Hann er mikill keppnismaður eins
og Bárður og sættir sig ekki við
neitt kjaftæði. Ég er mjög sáttur
við hann og liðið þurfti góðan
þjálfara því það var að missa mjög
góðan þjálfara,“ sagði Hlynur sem
leikur með nýtt númer á bakinu,
10, en hann lék áður í treyju númer
4. „Ég hef verið með mörg númer
í gegnum tíðina og alltaf verið
sama númer hvað ég er.“
Hlynur lék í Hollandi síðasta
vetur ásamt félaga sínum Sigurði
Þorvaldssyni en báðir sneru þeir
til baka eftir árið og gengu í raðir
Snæfells á ný.
„Ég er reynslumeiri í dag og
hef eitthvað bætt mig. Ég var oft-
ast að spila gegn mjög sterkum
leikmönnum úti og maður tekur
framförum við slíkar aðstæður þó
að aðstæðurnar hjá félaginu hafi
ekki verið eins góðar og maður
gerði ráð fyrir. Ég sé ekkert eftir
því að hafa farið út en ég sé eftir
því að hafa ekki vandað valið
betur. Þetta var ekki alveg boðlegt
hjá félaginu. Það var margt furðu-
legt þarna og umgjörðin ekki nógu
góð. Þjálfun og aðstæður voru
ekki góðar. Það voru ágætir pen-
ingar í þessu samt og stærstu liðin
í deildinni hafa nóg af peningum á
milli handanna,“ sagði Hlynur
sem ætlar aftur út. „Það er alveg
pottþétt. Ég fer samt ekki bara út
til einhvers liðs svo ég geti mont-
að mig af því að vera atvinnumað-
ur á sumrin. Ég ætla að vanda
valið betur og fer bara til liðs þar
sem ég veit að allt er í lagi.“
Hlynur segist hafa það gott í
Hólminum og það ríkir virðing og
traust í samstarfi hans og Snæ-
fells sem lýsir sér best í því að
hann hefur ekki einu sinni skrifað
undir samning við félagið. „Það er
heiðursmannasamkomulag í gangi
og ég treysti því,“ sagði Hlynur
sem hefur verið að leika meiddur í
fyrstu leikjunum. „Ég er slæmur í
hnénu og bakinu. Ég er bara eins
og gamalt hrökkbrauð. Nú er bara
að styrkja sig til að losna við
meiðslin. Ég mun síðan bæta mig
eftir því sem líður á tímabilið,“
sagði Sigurður en pressa er á
honum og liðinu að standa sig í
vetur. Hversu langt telur hann að
Snæfell komist í vetur?
„Við höfum ekki sett okkur nein
markmið enn sem komið er. Það
verður erfitt að vera með einn
útlending og taka titil en við eigum
að geta verið í toppbaráttunni.
Mér finnst eðlilegt að stefna á
topp fjögur í deildinni eins og stað-
an er í dag. Svo gætum við gert
einhvern usla í úrslitakeppninni,“
sagði Hlynur Bæringsson.
henry@frettabladid.is
Ætla aftur út í atvinnumennsku
Snæfellingurinn Hlynur Bæringsson er farinn að rífa niður fráköst á ný með Snæfell eftir ársdvöl í Hol-
landi. Hlynur segist vera reynslunni ríkari og stefnir aftur út síðar. Hann mun þó vanda valið betur næst
er hann semur við erlent félag. Hlynur segir að Snæfell verði á meðal fjögurra efstu liða deildarinnar.
KÓNGUR UNDIR KÖRFUNNI Hlynur Bæringsson er þekktur fyrir að rífa niður mörg fráköst í leikjum og hann rífur hér niður eitt af
19 fráköstum sínum gegn KR á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Knattspyrnumaðurinn ungi, Ari Freyr Skúla-
son, er hægt og sígandi að aðlagast lífinu í
Svíþjóð en hann gekk í raðir Häcken frá Val
í sumar. Ari Freyr hefur ekki fengið mikið
að spreyta sig í liði Häcken frá því að hann
kom til liðsins en strákurinn er þó ekki að
örvænta.
„Við erum í mikilli fallbaráttu og þjálf-
arinn er svo hræddur við að breyta liðinu.
Einn stjórnarformannanna skilur ekki af
hverju ég fæ ekkert að spila og mér finnst
ég standa mig vel á æfingum en ég er alltaf
sautjándi maður í liðinu. Ég hita alltaf upp
með liðinu fyrir leiki en svo fer ég inn í
klefa, skipti um föt og horfi á leikina. Það er
frekar svekkjandi. Ég bíð samt bara rólegur
og fæ vonandi að spila meira á næsta ári,
ég er ekkert að stressa mig,“ sagði hinn 19
ára gamli Ari Freyr.
Ari keypti sér Audi bifreið fyrir einni
og hálfri viku síðan, sem væri ekki til
frásögu færandi nema fyrir það að
brotist var inn í bílinn stuttu síðar. „Ég
var nýbúinn að tryggja bílinn minn
og þremur dögum síðar var brotist
inn í hann og loftpúðanum úr bílnum
var stolið, sem mér finnst alveg
fáránlegt. Það er víst eitthvert
sprengiefni í loftpúðabúnaðin-
um í Audi og þeir stela þessu
og nota sprengiefnið til að
sprengja upp öryggisskápa.
Þetta er alls ekki í fyrsta skipt-
ið sem þetta gerist í þessum
Audi bílum og lögreglan lítur á
þetta sem mjög alvarlegt mál,“
sagði Ari Freyr. Hann sagðist
samt mest sakna leðurjakkans
sem einnig var stolið, en hann hafði
Ari fengið í afmælisgjöf frá foreldrum
sínum.
„Ég ætlaði ekki að trúa því að
loftpúðanum hefði verið stolið þegar
ég kom út og sá að búið var að brjótast
inn í bílinn minn, en það er engin
þjófavörn á bílnum þannig að
hann var auðveld bráð. Það er
samt frekar fyndið að segja frá
þessu öllu saman.“
Ari Freyr býr hjá íslenskri
fjölskyldu eins og staðan er
í dag en hann mun líklega
flytja í sina eigin íbúð um
áramótin. „Ég þarf að fara að
læra sænskuna en það er mjög
vel hugsað um mann hérna og
allir vilja allt fyrir mann gera.“
ARI FREYR SKÚLASON: ER HÆGT OG SÍGANDI AÐ KOMA SÉR FYRIR HJÁ HÄCKEN EN LENTI Í LEIÐINLEGRI LÍFSREYNSLU
Loftpúðanum var stolið úr nýja bílnum
FÓTBOLTI Guðjón Baldvinsson,
sóknarmaður Stjörnunnar, hefur
undanfarinn mánuð dvalist hjá
norska úrvalsdeildarliðinu Lill-
eström þar sem hann hefur verið
til reynslu ásamt félaga sínum
úr Stjörnunni, Andrési Má Loga-
syni. Komu þeir heim í gær og
segir Guðjón að hann hafi fengið
jákvæð viðbrögð frá forráða-
mönnum liðsins.
„Þetta byrjaði ekkert allt of
vel en mér gekk betur eftir því
sem á leið og því báðu þeir mig
um að vera lengur. Í gær spilaði
ég æfingaleik með liðinu og náði
að skora mark. Eftir leikinn
sagði þjálfarinn mér að þeir
myndu skoða þetta mál mjög
vandlega og var mjög jákvæður í
minn garð,“ sagði Guðjón.
Hann segir að sér hafi litist
mjög vel á liðið og að atvinnu-
mennskan heilli. „Þetta var mikil
reynsla að vera þarna úti og er
þetta mjög spennandi.“
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að þó nokkur lið í efstu
deild hér á landi hafi sett sig í
samband við Stjörnuna með það
fyrir augum að ræða við Guð-
jón. - esá
Guðjón Baldvinsson var í mánuð hjá Lilleström:
Ánægja með Guð-
jón hjá Lilleström
FÓTBOLTI Matthías Guðmundsson
er kominn heim á nýjan leik eftir
að hafa verið til reynslu hjá AGF í
Danmörku og Álasundi í Noregi.
Norska félagið virtist áhugasamt
um Matthías sem býst þó ekki við
tilboði frá félaginu á næstu dögum.
„Álasund er að skoða sín mál eins
og er og það verður væntanlega
einhver bið á mínum málum þar.
Ég get hins vegar ekki beðið mikið
lengur og er því að skoða mín mál
hér á Íslandi,“ sagði Matthías.
Hann er uppalinn hjá Val en rifti
samningi sínum við félagið eftir
að tímabilinu lauk í haust.
Aðspurður segir hann að flest
lið í úrvalsdeildinni hafi sett sig í
samband við hann. „Það eru ýmsar
þreifingar í gangi eins og er. Ég er
þó ekki búinn að útiloka neitt og ef
eitthvað spennandi kemur upp
mun ég skoða það vel.“ - esá
MATTHÍAS GUÐMUNDSSON Leikur
sennilega ekki með Val næsta sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Matthías Guðmundsson eftirsóttur:
Mörg íslensk lið á
eftir Matthíasi
FÓTBOLTI Kári Árnason á enn við
meiðsli að stríða en hann meidd-
ist í landsleik Lettlands og Íslands
fyrr í mánuðinum. Hann hefur
ekkert leikið með Djurgården í
sænsku úrvalsdeildinni síðan þá
og missti af leik liðsins gegn
Örgryte í gær.
„Þetta batnaði frekar fljótt í
upphafi en nú finnst mér eins og
meiðslin hafi staðið í stað í eina
viku. Ég missi pottþétt af leiknum
á sunnudag en gæti hugsanlega
náð þeim næsta sem er síðasti
leikur tímabilsins,“ sagði Kári.
Helgi Valur Daníelsson hefur
einnig átt við meiðsli síðan í
landsleiknum en lék með Öster í
gær. - esá
Kári Árnason:
Tímabilið hugs-
anlega búið
KÁRI ÁRNASON Á æfingu með íslenska
landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL.
FÓTBOLTI Símun Eiler Samuelsen,
færeyski landsliðsmaðurinn í
röðum Keflavíkur, fór í síðustu
viku til reynslu hjá danska
úrvalsdeildarliðinu OB. Rúnar
Arnarson, formaður knattspyrnu-
deildar Keflavíkur, sagði í samtali
við Víkurfréttir að tilboð bærist í
hann í janúar og að hann færi
aftur utan og æfði með liðinu.
Símun, sem er 21 árs, er samn-
ingsbundinn Keflavík í eitt ár til
viðbótar. - esá
Símun Samuelsen:
Til reynslu hjá
OB í Danmörku
SÍMUN SAMUELSEN Hér í leik með
Keflavík gegn KR í sumar. MYND/VÍKURFRÉTTIR
> Ásthildur tilnefnd sem besti framherjinn
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir hefur
farið mikinn með Malmö í sænska boltanum í vetur og
verið potturinn og pannan í leik liðsins. Frammistaða
hennar hefur vakið verðskuldaða athygli og nú er búið að
útnefna Ásthildi sem eina af þremur bestu framherjum
sænsku deildarinnar. Hinar tvær sem eru tilnefndar eru
sænsku landsliðskonurnar Victoria Svensson og Lotta
Schelin. Ásthildur hefur skorað
mest af þessum þremur stúlkum
á tímabilinu, eða 19 mörk. Þetta
er mikil viðurkenning fyrir Ásthildi
og verður spennandi að sjá
hvort hún hreppir hnossið þegar
kjörinu verður lýst þann 13.
nóvember næstkomandi.
FÓTBOLTI Roland Andersson,
aðstoðarþjálfari sænska lands-
liðsins, sagði í sjónvarpsviðtali í
vikunni að óskað yrði eftir því að
Zlatan Ibrahimovic kæmi í
sænska landsliðið á nýjan leik
fyrir næsta leik. Svíar mæta þá
liði Fílabeinsstrandarinnar í
vináttulandsleik í næsta mánuði.
Zlatan var rekinn úr liðinu
vegna agabrots í september og
gaf ekki kost á sér í næstu leiki
Svía. - esá
Sænska landsliðið:
Vill fá Zlatan í
næsta leik