Fréttablaðið - 26.10.2006, Page 98
58 26. október 2006 FIMMTUDAGUR
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Enski deildabikarinn
CREWE-MANCHESTER UNITED 1-2
0-1 Solskjær (26.), 1-1 Varney (73.), 1-2 Lee
(119.).
MILTON KEYNES DONS-TOTTENHAM 0-5
0-1 Mido (36.), 0-2 Defoe (44.), 0-3 Defoe (51.),
0-4 Mido (60.), 0-5 Keane (90.).
NEWCASTLE-PORTSMOUTH 3-0
1-0 Rossi (48.), 2-0 Solano (53.), 3-0 Solano
(90.).
BLACKBURN-CHELSEA 0-2
0-1 Joe Cole (53.), 0-2 Kalou (81.).
CHARLTON-BOLTON 1-0
1-0 M. Bent (17.).
LIVERPOOL-READING 4-3
1-0 Fowler (44.), 2-0 Riise (45.), 3-0 Paletta (50.),
3-1 Bikey (75.), 4-1 Crouch (77.), 4-2 Lita (81.),
4-3 Song (85.).
Ítalska úrvalsdeildin
ATALANTA-CAGLIARI 3-3
CHIEVO-AC MILAN 0-1
EMPOLI-UDINESE 1-1
INTER-LIVORNO 4-1
PALERMO-MESSINA 2-1
REGGINA-PARMA 3-2
AS ROMA-ASCOLI 2-2
SAMPDORIA-LAZIO 2-0
SIENA-CATANIA 1-1
TORINO-FIORENTINA 0-1
STAÐA EFSTU LIÐA
INTERN 8 5 3 0 16-9 18
PALERMO 8 6 0 2 18-13 18
AS ROMA 8 4 2 2 13-6 14
UDINESE 8 3 4 1 10-5 13
ATALANTA 8 3 4 1 13-10 13
SIENA 8 3 4 1 9-7 12
LIVORNO 8 3 3 2 7-8 12
SAMPDORIA 8 2 4 2 14-13 10
EMPOLI 8 2 4 2 9-8 10
MESSINA 8 2 3 3 10-11 9
CATANIA 8 2 3 3 11-14 9
AC MILAN 8 4 3 1 7-4 7
CAGLIARI 8 0 6 2 7-9 6
TORINO 8 1 3 4 4-11 6
Spænska bikarkeppnin
PORTUENSE-VALENCIA 1-2
ECIJA-REAL MADRID 1-1
G. SEGOVIANA-SEVILLA 0-1
DEPORTIVO-RACING SANTANDER 1-0
PENA SPORT-OSASUNA 0-0
RAYO VALLECANO-OSASUNA 1-1
MALAGA-REAL SOCIEDAD 4-1
RECREATIVO-REAL BETIS 0-0
CASTELLON-VILLARREAL 0-2
BADALONA-BARCELONA 1-2
Eiður Smári skoraði bæði mörk Barca.
ATHLETIC BILBAO-MALLORCA 1-1
Þýska bikarkeppnin
PFULLENDORF-KICKERS OFFENBACH 0-2
Helgi Kolviðsson sat á varamannabekk Pfullend-
orf allan leikinn.
OSNABRÜCK-GLADBACH 2-1
ROT WEISS ESSEN-EINTRACHT FRANKF. 1-2
DUISBURG-LEVERKUSEN 3-2
Eftir framlengingu.
STUTTGART KICKERS-HERTHA BERLÍN 0-2
BAYERN MÜNCHEN-KAISERSLAUTERN 1-0
Danska úrvalsdeildin
BRÖNDBY-AAB 1-2
Hannes Þ. Sigurðsson lék allan leikinn fyrir
Bröndby.
NORDSJÆLLAND-FC MIDTJYLLAND 1-4
AC HORSENS-ESBJERG 1-1
RANDERS-VEJLE 0-1
SILKEBORG-VIBORG 1-2
Hörður Sveinsson, Bjarni Ólafur Eiríksson og
Hólmar Örn Rúnarsson léku allir allan leikinn
fyrir Silkeborg sem tapaði í gær sínum sjöunda
heimaleik í röð í dönsku úrvalsdeildinni.
OB-FC KAUPMANNAHÖFN 0-0
STAÐAN
FCK 13 9 3 1 24-8 30
MIDTJYLLAND 14 8 3 3 29-17 27
AAB 14 8 2 4 20-14 26
OB 14 7 5 2 18-12 26
NORDSÆLL. 14 7 2 5 29-18 23
BRÖNDBY 14 5 6 3 20-14 21
ESBJERG 14 5 4 5 26-25 19
RANDERS 13 4 3 6 16-19 15
HORSENS 14 2 7 5 10-16 13
VIBORG 14 4 1 9 14-30 13
SILKEBORG 14 2 2 10 13-28 8
VEJLE 14 2 2 10 17-35 8
Sænska úrvalsdeildin
ÖRGRYTE-DJURGÅRDEN 1-1
Sölvi Geir Ottesen spilaði fyrri hálfleikinn fyrir
Djurgården en Kári Árnason var ekki með vegna
meiðsla.
ÖSTER-MALMÖ FF 2-1
Emil Hallfreðsson jafnaði metin fyrir Malmö á
43. mínútu leiksins. Helgi Valur Daníelsson lék
allan leikinn fyrir Öster.
Heimsbikarinn í handbolta
A-RIÐILL
GRIKKLAND-SPÁNN 16-22
SVÍÞJÓÐ-TÚNIS 33-34
B-RIÐILL
DANMÖRK-SERBÍA 37-31
ÞÝSKALAND-KRÓATÍA 27-30
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Iceland Express deild kv.
GRINDAVÍK-KEFLAVÍK 69-72
Stig Grindavíkur: Tamara Bowie 33 (16 frák.),
Hildur Sigurðardóttir 14 (10 frák., 8 stoðs.), Pet-
rúnella Skúladóttir 10 (8 frák.), Jovana L. Stefáns-
dóttir 6, Lilja Ó. Sigmarsdóttir 2, Íris Sverrisdóttir 2,
Alma R. Garðarsdóttir 1.
Stig Keflavíkur: Takesha Watson 35 (8 frák.),
María Ben Erlingsdóttir 17, Margrét Sturludóttir 8
(13 frák.), Svava Stefánsdóttir 5 (12 frák.), Bryndís
Guðmundsdóttir 3, Ingibjörg Vilbergsdóttir 2, Bára
Bragadóttir 2.
HAMAR-ÍS 60-68
BREIÐABLIK-HAUKAR 52-100
DHL-deild kvenna
ÍBV-HAUKAR 26-29
Mörk ÍBV: Pavla Plaminkova 10, Valentina Radu
6, Pavla Nevarilova 4, Sæunn Magnúsdóttir 2,
Andrea Löw 2, Renata Horvath 2.
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 9, Erna Þrá-
insdóttir 6, Harpa Melsted 5, Sandra Stojkovic 4,
Anna Stefánsdóttir 3, Sigrún Brynjólfsdóttir 2.
SS-bikarkeppni kvenna
STJARNAN-HK 38-25
Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 3, Rakel
Bragadóttir 8, Kristín Clausen 7, Kristín Guð-
mundsdóttir 3, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 6,
Sólveig Lára Kjærnested 3, Anna Blöndal 3, Harpa
Sif Eyjólfsdóttir 1, Björk Gunnarsdóttir 1, Elísabet
Gunnarsdóttir 1, Júlíanna Þórðardóttir 1.
Mörk HK: Aukse Vysniauskaite 7, Rut Jónsdóttir 4,
Arna Sif Pálsdóttir 4, Tatjana Zukovska 5, Hjördís
Rafnsdóttir 1, Elísa Viðarsdóttir 4.
FH-AKUREYRI 25-16
HANDBOLTI Handboltamaðurinn
Arnór Atlason hefur verið að gera
það gott með danska félaginu FC
Kaupmannahöfn upp á síðkastið
og skorað grimmt. Arnór skoraði
til að mynda sex mörk í sigri Kaup-
mannahafnarliðsins um síðustu
helgi þegar liðið vann sinn sjö-
unda leik í röð. Arnór og félagar
hans í íslenska landsliðinu eru
þessa dagana við æfingar í Þýska-
landi en landsliðið mætir Ungverj-
um í tveimur leikjum ytra um
næstu helgi.
Fréttablaðið náði tali af Arnóri
sem segist kunna vel við sig í
Kaupmannahöfn. „Það er alltaf
gaman þegar vel gengur og ég
kann rosalega við mig þarna. Þetta
er ekki eins sterk deild og í Þýska-
landi en hún er öðruvísi. Það eru
mörg góð lið þarna,“ sagði Arnór
sem eignaðist son fyrir þremur
vikum.
Arnór hefur verið að spila
ýmist sem vinstri skytta eða leik-
stjórnandi hjá FC Kaupmanna-
höfn. „Við skiptum þessu með
okkur, ég og Martin Boquist. Það
er nákvæmlega eins og ég vil hafa
það. Mér líkar betur við þetta en
að spila alltaf sömu stöðuna,“
sagði Arnór sem er með tveggja
ára samning við danska liðið.
FC Kaupmannahöfn er sem
stendur í efsta sæti deildarinnar
og Arnór segir að stefnan sé sett
hátt hjá félaginu.
„Þetta er hörkuklúbbur, með
háleit markmið og það ætti að vera
spennandi að vera þarna lengur en
þessi tvö ár. Markmið félagsins er
að verða stórlið á evrópskan mæli-
kvarða. Við erum á toppnum núna
ásamt Kolding, en bæði Kolding
og GOG eru að standa sig vel í
Meistaradeildinni. Svo eru líka
mjög góð lið þarna eins og Skjern,
Århus og Álaborg en við erum á
réttri leið.
Knattspyrnulið félagsins er
búið að vera yfirburðalið hérna í
mörg ár og nú á að leggja aukna
áherslu á handboltann. Þannig að
það er mikil pressa,“ sagði Arnór
en þess má einnig geta að Gísli
Kristjánsson, fyrrverandi leik-
maður Gróttu/KR, leikur einnig
með FC Kaupmannahöfn.
Það er erfiður nóvembermán-
uður framundan hjá Arnór og
félögum hans í FC Kaupmanna-
höfn, liðið leikur sjö leiki í nóvem-
ber og mætir meðal annars Kold-
ing, GOG og Skjern.
dagur@frettabladid.is
Við stefnum á að vera stórlið á
evrópskan mælikvarða
Akureyringurinn Arnór Atlason hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með danska
handknattleiksliðinu FC Kaupmannahöfn á þessari leiktíð.
MEÐ LANDSLIÐINU Hér er Arnór í leik með íslenska landsliðinu gegn Slóvenum á
HM í Túnis.
FÓTBOLTI Tíu úrvalsdeildarlið voru
í eldlínunni í þeim sex leikjum
sem fram fóru í enska deildabik-
arnum í gær.
Manchester United átti í erfið-
leikum með Crewe á útivelli og
heimamenn skoruðu mark á 15.
mínútu sem réttilega var dæmt af
vegna rangstöðu. Það var svo
Norðmaðurinn Ole Gunnar Sol-
skjær sem kom Manchester Unit-
ed yfir tíu mínútum síðar með
góðu marki. Heimamenn mættu
ákveðnir til síðari hálfleiks og
sókn þeirra bar árangur á 73. mín-
útu þegar Luke Varney jafnaði
metin og staðan var 1-1 eftir
venjulegan leiktíma. Allt stefndi í
vítaspyrnukeppni þegar Kieran
Lee skoraði sigurmarkið á síðustu
mínútu leiksins, 2-1.
Ívar Ingimarsson og Brynjar
Björn Gunnarsson voru báðir í
byrjunarliði Reading sem sótti
Liverpool heim í gær. Robbie Fow-
ler var að leika sinn fyrsta leik í
langan tíma og það var hann sem
skoraði fyrsta mark leiksins á síð-
ustu mínútu fyrri hálfleik. John
Arne Riise skoraði mark stuttu
síðar og Liverpool hafði yfir í hálf-
leik, 2-0. Gabriel Paletta skoraði
þriðja mark Liverpool í leiknum
áður en Andre Bikey klóraði í
bakkann fyrir Reading. Peter
Crouch kom Liverpool í 4-1 en
Reading-menn voru hvergi af baki
dottnir. Leroy Lite og Shane Long
náðu að minnka muninn í eitt mark
en lengra komust þeir ekki. Loka-
tölur því 4-3.
Englandsmeistarar Chelsea
heimsóttu Blackburn. Jafnræði
var með liðunum í fyrri hálfleik en
Joe Cole kom Chelsea yfir á 53.
mínútu. Salomon Kalou skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Chelsea þegar
hann kom gestunum í 2-0 níu mín-
útum fyrir leikslok og þar við sat.
Newcastle tók á móti Ports-
mouth á heimavelli sínum í gær og
það var Guiseppe Rossi, sem er í
láni frá Manchester United, sem
kom Newcastle yfir leiknum í upp-
hafi síðari hálfleiks. Perúmaðurinn
Nolberto Solano skoraði tvö mörk
fyrir heimamenn áður en yfir
lauk.
Charlton fékk Bolton í heim-
sókn. Marcus Bent skoraði sigur-
mark Charlton eftir sautján mín-
útna leik. Hermann Hreiðarsson
lék allan leikinn í vörn Charlton og
fékk tvö ágæt færi til að skora í
leiknum en tókst ekki að koma
tuðrunni í netið. - dsd
Sex leikir fóru fram í enska deildabikarnum í gær og þar af voru tíu úrvalsdeildarlið í eldlínunni:
Manchester United marði sigur á Crewe
COLE ER MÆTTUR AFTUR Joe Cole lék sinn fyrsta leik á tímabilinu í gær og skoraði
fyrra mark Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fóru fram í
Iceland Express deild kvenna í
gærkvöldi þar sem hæst bar leik-
ur Grindavíkur og Keflavíkur
suður með sjó. Skemmst er frá því
að segja að Keflavík vann þriggja
stiga sigur í æsispennandi leik en
liðið var þar að auki án Birnu Val-
garðsdóttur sem er meidd.
Stúdínur unnu góðan sigur á
Hamar í Hveragerði, 68-60, og
Íslandsmeistarar Hauka unnu létt-
an sigur á Breiðabliki, 100-52.
Keflavík var sem fyrr segir án
Birnu Valgarðsdóttur og munar
um minna í liði Keflavíkur. Það
var greinilega mikil taugaspenna
hjá báðum liðum því leikmenn
gerðu mörg mistök. En leikurinn
var jafn og spennandi og komst
hvorugt liðið langt fram úr.
Grindavík var með forystu
eftir þriðja leikhluta en byrjaði
þann fjórða mjög illa. Keflavík
vann fyrstu sex mínúturnar í leik-
hlutanum 13-3. Þær María Ben
Erlingsdóttir og Svava Stefáns-
dóttir komu sterkar inn á þessum
leikkafla og skoruðu ellefu stig af
þessum þrettán. Takesha Watson
skoraði 35 stig fyrir Keflavík en
30 þeirra komu á fyrstu 25 mínút-
um leiksins. Eftir það varð hún
þreytt og gat ekki haldið keyrsl-
unni uppi. Keflavík hélt forystunni
allt til loka og vann, 72-69.
Hildur Sigurðardóttir átti mjög
góðan leik hjá Grindavík framan
af en missti dampinn í fjórða leik-
hluta er henni tókst ekki að skora
stig. Stigahæst hjá Grindavík var
Tamara Bowie með 33 stig.
Haukar og Keflavík eru með
fullt hús stiga eftir fyrstu tvær
umferðirnar en Hamar og Breiða-
blik eru enn án stiga.
- esá
HELENA SVERRISDÓTTIR Fór fyrir Haukum sem unnu léttan sigur á liði Breiðabliks.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Heil umferð í Iceland Express deild kvenna í gærkvöldi:
Þriggja stiga sigur Keflavíkur