Fréttablaðið - 26.10.2006, Page 104
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
���������
����������
Við Íslendingar erum rosalega uppteknir af því að bera okkur
saman við aðrar þjóðir og kunn er
tilhneiging okkar til að vilja skora
hátt á ýmsum listum, oftar en ekki
„miðað við höfðatölu“. Þannig séð
erum við bara eins og til dæmis
Súðvíkingar sem eru rígmontnir
af sínu plássi og finnst allt á Ísa-
firði hálf slappt. Ísland er fullt af
krummaskuðum sem þykjast nafli
Íslands og samanlagt erum við
krummaskuð sem þykist nafli
alheimsins. Því finnst okkur nán-
ast minnkun í því að vinna á smá-
þjóðarleikunum en flott ef við
mjökumst aðeins upp lista bestu
knattspyrnuþjóða í heimi. Við
berum okkur bara saman við þá
bestu.
ÞÓTT við næðum 300.000 manns á
dögunum erum við ennþá bara í
178. sæti yfir stærstu þjóðir heims.
Þessi staðreynd er auðvitað reið-
arslag og ámóta mikið spark í pung
þjóðarstoltsins og þegar kom upp
úr kafinu að handbolti er í 126.
sæti yfir vinsælustu íþróttagrein-
ar heimsins, einu sæti á eftir mex-
íkósku hanaati. Alls konar lúsera-
þjóðir eru fjölmennari en við. Til
dæmis Vestur-Sahara, sem er einn
stór sandkassi og ekki fræg fyrir
annað en að þangað eru í boði dags-
ferðir frá Kanaríeyjum; Lúxem-
borg er miklu fjölmennari en
Ísland, en það eina merkilega þar
eru vinsældir íslensku söngkon-
unnar Þórunnar; og Möltumenn
eru hundrað þúsund hræðum fleiri
en við. Samt er Maltasúkkulaði
það eina merkilega við Möltu og
Harrison Ford hefur örugglega
aldrei komið þangað.
BEST væri því ef við einbeitum
okkur að þessum 52 löndum sem
eru fámennari en við. Ef við berum
okkum sífellt saman við þau getum
við örugglega haldið brjóstkössun-
um þöndum. Fyrir neðan okkur á
listanum eru upp til hópa aðrar
einmanalegar eyjar en ólíkt Íslandi
eru þær snauðar af ólgandi krafti
og glæsilegri menningu. Eiga Bar-
badosar til dæmis einhvern sem er
jafn frægur og Björk? Er einhver
Kári Stefánsson að gera góða hluti
á Samóaeyjum? Er stórfengleg
útrás í gangi hjá hlutabréfaliðinu á
Tonga? Nei! Við skörum fram úr
þessum dvergum í öllu tilliti!
Íslandi allt!
EINU sinni fór ég til útlanda í
miðju „fjölmiðlafrumvarpsmál-
inu“, sem hafði skekið þjóðfélagið
vikum saman. Það var ótrúlegt að
vera þar sem enginn minntist einu
orði á það mál eftir allan hama-
ganginn. Þá uppgötvaði ég nauð-
syn þess að komast úr sveittri
naflalónni. Í naflanum er nefni-
lega oftar en ekki óþefur.
Nafli alheimsins
Fí
to
n/
S
ÍA
����� ���� ������� ��������� ����� ������������
������������������������������������������������������������������������������������ ���
������������������������ ����������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������� �����������������������
���������������������������� ���
www.sigridurandersen.is
Einfaldar og skýrar reglur styrkja
réttarríkið og auðvelda löggæslu.
Kosningaskrifstofa stuðningsmanna Sigríðar
Andersen er í Landssímahúsinu við Austurvöll.
Síminn er 561 4567. Alltaf heitt á könnunni.
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík, 27. og 28. október.
Sigríður Andersen
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
19. HOLAN!