Fréttablaðið - 11.11.2006, Side 4

Fréttablaðið - 11.11.2006, Side 4
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS SUBARU LEGACY WAGON Nýskr. 06.04 - Sjálfsskiptur - Ekinn 37 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 2.030 .000. - Svör Marðar Árnasonar Svör þingmannsins Marðar Árnasonar, sem býður sig fram í 4.-6. sæti í prófkjöri Samfylking- arinar í Reykjavík, við tíu spurningum sem lagðar voru fyrir frambjóðendur í fjögur efstu sætin á lista Samfylkingar- innar í Reykjavík í Fréttablaðinu í gær, birtust ekki vegna mistaka við vinnslu. Svör Helga Hjörvar þingmanns birtust í dálki sem eignaður var Merði. „ “ „ “ Innflytjendur á Íslandi sem Fréttablaðið ræddi við segjast flestir verða lítið varir við fordóma en óttast þó að þeir muni ágerast. Flestir viðmælenda vildu ekki koma fram undir nafni eða mynd. Í nýrri könnun Fréttablaðs- ins kemur fram að um 70 prósent Íslendinga vilja takmarkanir á dvalarleyfum útlendinga og tæpur þriðjungur telur fjölda útlendinga á Íslandi vera mikið vandamál. Murat Özkan er frá Tyrklandi og hefur verið búsettur á Íslandi í rúman áratug og rekur Kaffi Kúlt- úra sem er í sama húsi og Alþjóða- húsið. Murat segir fordóma á Íslandi hafa aukist mikið síðustu ár og hafi margir sem til hans koma svipaða reynslu. „Ég skil þetta sjónarmið um að vilja ekki atvinnu- leysi Íslendinga en málið er að útlendingarnir eru að fara í störf sem Íslendingar vilja ekki vinna.“ Ethel er tæplega þrítug kona frá Póllandi sem Fréttablaðið tók tali og hefur verið búsett á Íslandi í fimm og hálft ár. Ethel segist afar hrædd um að fordómar gagnvart innflytjendum muni aukast í kjöl- far umræðunnar núna. „Við sem erum ekki í láglaunastörfum munum kannski fara að eiga erfið- ara með að finna vinnu. Kannski fara vinnuveitendur að hugsa sem svo að betra sé að ráða Íslending heldur en útlending út af umræð- unni sem er að skapast núna bara út af flokki sem segir að loka eigi landinu. Ég tel að þetta muni bitna á okkur.“ Ethel telur að verið sé að bregð- ast of harkalega við aðstæðum á vinnumarkaðnum í dag sem séu tímabundnar. „Ef þú ert meðlimur í EES og skrifar undir sáttmála um að þú þurfir að opna vinnumarkað fyrir erlendu vinnuafli þá er þetta það sem gerist. Og þetta er það sem á að gerast. Og það eru líka Íslendingar sem fara til útlanda til að vinna. Þetta á að fara í báðar áttir. En af því að þetta er nýr vinnumarkaður sem opnast í Evr- ópu núna streymir fólk náttúrulega frekar hingað en á aðra staði um sinn.“ Ethel segir mikilvægast núna að finna lausnir í stað umræðu um hvort loka eigi landinu eða ekki. „Það vantar lausnir fyrir þá inn- flytjendur sem vilja setjast að á Íslandi með fjölskyldu sína og eru ekki hér bara til að vinna og senda peninga heim.“ Útlendingar óttast fordóma Innflytjendur sem Fréttablaðið ræddi við eru flestir sammála um að lítið sé um fordóma á Íslandi en telja að þeir muni fara að aukast. Finna þurfi lausnir fyrir innflytjendur sem koma til Íslands. Í nýjasta hefti tímarit- isins Economist er greint frá rannsóknum parsins Jóns Steinssonar og Emi Nakamura, doktorsnema við Princeton, á verðbreytingum á smásöluverði. Niðurstaða Jóns og Emi er að útsölur og sérstök tilboð hafi æ meira vægi í verðbreytingum. Fjöldi og stærð útsala hafi aukist í Bandaríkjunum. „Við erum að reikna út hversu lengi verðið á dæmigerðri smásöluvöru er óbreytt,“ segir Jón. Verðbreyting á fatnaði sé í 90 prósentum tilvika vegna útsala en verðbreytingar á eldsneyti séu aldrei vegna útsala. Íslensk rannsókn í Economist Um þrjúhundruð sjö- undu og áttundu bekkir á landinu hafa skilað inn tilkynningu um að bekkirnir séu reyklausir en það er Lýðheilsustöð sem heldur utan um verkefnið. Markmið keppninnar er að hvetja nemendur til að byrja ekki að fikta við reykingar og jafn- framt að hvetja þá sem byrjaðir eru til að hætta. Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð, segir að þátttakan hafi haldist nokkuð jöfn í 70 prósentum und- anfarin ár og gerir ráð fyrir svip- aðri þátttöku í ár. „Undanfarin ár hafa á milli 300-400 bekkir tekið þátt í verkefninu árlega og allir bekkir sem skráðir eru til leiks fá litla gjöf fyrir þátttökuna. Þeir bekkir sem taka þátt í verkefninu eiga einnig möguleika á því að skila lokaverkefni en þema þess á að tengjast tóbaks- vörnum á einhvern hátt. Verkefn- in verða til sýnis 31. maí næsta vor í tengslum við dag án tóbaks en skilafrestur verkefnanna renn- ur út 3. maí 2007.“ Dómnefnd mun fara yfir verk- efnin og veitt verða verðlaun fyrir 1.-3. sætið í keppninni en fyrstu verðlaun eru utanlandsferð fyrir allan bekkinn. Viðar segir að reyklausir bekk- ir geti enn skráð sig þó svo form- legri skráningu hafi lokið 10. nóv- ember. 70 prósent bekkja reyklausir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.