Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 6

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 6
69,4 prósent telja rétt af Íslendingum að hefja hval- veiðar nú í atvinnuskyni, sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 30,6 prósent segja hins vegar að það hafi ekki verið rétt. Enginn munur er á svörum eftir kyni, en íbúar landsbyggðarinnar eru því töluvert meira fylgjandi að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni en íbúar höfuðborgarsvæðisins. 75,0 prósent svarenda á landsbyggð- inni segja að það hafi verið rétt að hefja nú veiðar í atvinnuskyni, en 65,6 prósent svarenda á höfuð- borgarsvæðinu eru sama sinnis. Svör hvers kjördæmis fyrir sig eru of fá til að sjá marktækan mun. Þó eru áberandi flestir svarendur Norðvesturkjördæmis hvalveið- unum fylgjandi; rúmt 81 prósent þeirra sem afstöðu tóku. Til sam- anburðar segja um 67 prósent svarenda í Norðausturkjördæmi að rétt hafi verið að hefja hval- veiðar í atvinnuskyni og tæp 79 prósent svarenda í Suðurkjör- dæmi. Í september gerði Capacent könnun fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna, þar sem spurt var: Ertu fylgjandi eða and- víg(ur) því að Íslendingar stundi hvalveiðar í atvinnuskyni? Þar kom í ljós að 73,0 prósent svarenda voru því fylgjandi eða mjög fylgj- andi. 11,5 prósent voru því andvíg eða mjög andvíg. 15,4 prósent voru hvorki andvíg né fylgjandi. Ólíkt könnun Fréttablaðsins, en taka verður fram að spurningarnar eru mismunandi og því ekki fyllilega samanburðarhæfar, er mikill munur á svörum eftir kyni í könn- un Capacent, þar sem karlar voru mun frekar fylgjandi hvalveiðum í atvinnuskyni en konur. Í þeirri könnun sögðust tæp 84 prósent karla mjög eða frekar fylgjandi hvalveiðum í atvinnuskyni, en 69 prósent kvenna. Í könnun Capac- ent kemur einnig fram að stuðn- ingur við hvalveiðar í atvinnu- skyni er meiri í sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins, líkt og í könnun Fréttablaðsins. Hringt var í 800 kjósendur þriðjudaginn 7. nóvember og skipt- ust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var: Var rétt að hefja hval- veiðar í atvinnuskyni? 88,8 prósent svarenda tóku afstöðu til spurning- arinnar. Sjötíu prósent töldu rétt að hefja hvalveiðar nú Mikill meirihluti taldi rétt hjá Íslendingum að hefja hvalveiðar nú í atvinnu- skyni. Enginn munur er á svörum eftir kyni, en fólk sem býr á landsbyggðinni er mun hlynntara hvalveiðum en íbúar höfuðborgarsvæðisins. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórn- málafræði, var í gær sýknaður af öllum kröfum Auðar Laxness, ekkju Halldórs Laxness, en hún höfðaði mál á hendur Hannesi þar sem hún taldi hann hafa brotið lög um höfundarrétt. Í dómi héraðs- dóms kemur fram að fallist sé á að Hannes hafi brotið höfundar- rétt með skrifum sínum um ævi Halldórs og því hafi frágangur hans verið ófullnægjandi. Hannes er sýknaður á grund- velli þess að stefnunni hafi verið skilað inn of seint en samkvæmt almennum hegningarlögum ber að höfða mál innan sex mánaða frá því að vitneskja fæst um brot- ið. Sá frestur var liðinn og því gat dómarinn ekki annað en sýknað Hannes af öllum kröfum. Halldór Þorgeirsson, eigin- maður Guðnýjar Halldórsdóttur, segir dóminn vonbrigði. „Þegar þetta mál komst upp tók um hálft ár að gera sér grein fyrir umfangi málsins og þá var stefnt. Okkur finnst algjörlega út í hött að ætl- ast til þess að eftir að bók Hann- esar um Halldór kom út sé búið að kortleggja næstum 300 höf- undarréttarbrot, með því að lesa nákvæmlega verk Hannesar og bera þau saman við næstum 50 bækur Halldórs. Þetta er gríðar- leg vinna og það var ekki hægt að stefna í málinu fyrr en niður- staða rannsóknar á höfundar- réttabrotum lá fyrir. Það gerði sér enginn grein fyrir því fyrir- fram að brotin væru svona umfangsmikil.“ Að sögn Halldórs verður dómn- um áfrýjað til Hæstaréttar. Ekki náðist í Hannes Hólm- stein Gissurarson í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Sakir Hannesar voru fyrndar Unga konu til áhrifa Bryndís Ísfold 6. sæti kynntu þér ste fnumál in á www.br yndisis fold.com www.torhildur.is Náttúran er verðmæti „Ég fagna þess- ari niðurstöðu og er sammála henni. Þetta fólk sem er að koma hingað undanfarið er að gera það til þess að taka þátt í atvinnulíf- inu. Það hefur verið mikill skort- ur á vinnuafli víða í atvinnulífinu og margir fagnað því að fá þetta vinnuafl til að manna störfin, þannig að þetta er bara mjög jákvætt,“ segir Magnús Stefáns- son félagsmálaráðherra um niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins þar sem kom fram að tæplega 70 prósent þjóðarinn- ar teldu útlendinga hérlendis vera lítið eða ekkert vandamál. Í sömu könnun kom einnig fram að rúm- lega 70 prósent Íslendinga vildu frekari takmarkanir á dvalarleyfum til útlendinga. Magnús segir að skilja verði á milli fólks frá EES-ríkjunum og þeirra sem koma frá öðrum löndum í því samhengi. „Fólk sem kemur frá löndum utan EES þarf að fá hér sérstakt atvinnu- og dvalarleyfi og það hefur verið þrengt og það eru miklar takmarkanir í því. Hins vegar erum við á Evrópska efna- hagssvæðinu og þurfum að hlíta þeim reglum sem við höfum undirgengist í EES-samningnum. Ein meginstoðin í honum er frjálst flæði vinnuafls milli ríkja. Hins vegar getur fólk ekki komið frá EES-ríkjum og verið hér nema í ákveðinn tíma til að leita sér að vinnu. Þegar það hefur fengið starf fær það svo- nefnt EES-dvalarleyfi og þar eru ákveðin skilyrði sem hver og einn þarf að uppfylla, þannig að það eru ákveðnar takmarkanir í þessu líka.“ Þurfum að hlíta reglum EES Norðurlandabúar eiga að tala sænsku hver við aðra. Þetta er skoðun Jógvans vid Keldu, fulltrúa Færeyja í Norðurlandaráði. Fréttavefur Aftonbladet greindi frá þessu í gær. „Flestir á Norður- löndum tala sænsku og því er eðlilegast að allir læri það tungumál,“ segir hann. Jógvan vid Keldu hefur ekki fengið nein viðbrögð við yfirlýs- ingu sinni. „Ég neyðist væntanlega til að hafa samband við ríkisstjórn- irnar til að fá svar,“ segir hann. „Ef við eigum að standast áhrif enskunnar verður þetta að gerast. Annars munum við tala ensku eftir tuttugu ár.“ Vill að allir læri að tala sænsku Á Ísland að slíta stjórnmála- sambandi við Ísrael? Notar þú mannbrodda í hálku?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.