Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 22

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 22
Ráðherrar og þingmenn sitja þessa dagana á fundum og semja um framtíð fjölmiðlunar og afþreyingar á Íslandi. Tæki- færið til alvöru breytinga er núna, allt sem til þarf er áræðni ráðamanna til að horfa til himins og skoða hlutina í stærra sam- hengi en gert hefur verið áður. Ef ríkið hætti afskiptum af fjölmiðlum yrðu líklega til 2-3 nýjar íslenskar sjónvarpsstöðvar og 3-4 útvarpsstöðvar. Íslenskt gæðaefni á sjónvarpsskjám lands- manna myndi margfaldast frá því sem það er í dag. Fyrsta flokks íslenskur afþreyingariðnaður yrði til þar sem íslenskir rithöf- undar, framleiðendur, leikarar, tónlistarmenn, textahöfundar, markaðsmenn og fleiri fengju tækifæri til að framleiða sjón- varps- og útvarpsefni í áður óþekktu magni fyrir Íslendinga og betur en gert er í dag. Íslend- ingar yrðu farnir að flytja út sögur, hugvit, tónlist og leikara í formi afþreyingariðnaðar á 2-3 árum. Endalaus umræða hefur farið fram undanfarin ár um tilgang RÚV, þar sem ráðamenn þjóðar- innar reyna að finna leiðir til að réttlæta rekstur ríkisfjölmiðla. Á sama tíma hafa sömu ráðamenn hætt afskiptum af öðrum fyrir- tækjarekstri og selt ríkisfyrir- tæki með góðum árangri. Um leið og fyrirtækin hafa komist úr rík- iseigu hafa þau blómstrað og rekstur þeirra náð nýjum hæðum, öllum Íslendingum til hagsbóta. Slíkt hið sama myndi gerast á afþreyingar- og fjölmiðlamarkaði ef RÚV yrði lagt niður. Í samningi menntamálaráð- herra og útvarpsstjóra er lögð áhersla á hver sé tilgangur RÚV og hvers sé ætlast til af stofnun- inni. Þeir sem hafa starfað við útvarp og sjónvarp sjá strax að markmiðin eru svo mörg og ólík að aldrei verður hægt að uppfylla þau öll. Ljóst er að engin sjón- varpsstöð getur staðið undir þeim hugmyndum sem ráðamenn hafa um rekstur ríkissjónvarpsins. Ráðherrar og útvarpsstjóri horfa jafnframt gjarnan til ann- arra landa og segja að við Íslend- ingar verðum að fara sömu leiðir og önnur Norður-Evr- ópulönd í rekstri fjöl- miðla, en til fjölmiðlun- ar í Bandaríkjunum er vísað með hryllingi. Staðreyndin er samt sú að frá Bandaríkjunum kemur nær allt vinsæl- asta sjónvarpsefni heimsins, þar á meðal vinsælasta erlenda efnið sem sýnt er á Íslandi. Þrátt fyrir alla hina ríkisstyrktu framleiðslu Evrópu er nær ekkert efni sem hægt er að flytja á milli landa; þ. e.a.s. hugmyndir að sjónvarps- efni sem gengur vel í mismun- andi menningarheimum. Stað- reyndin er sú að ríkispeninganar drepa niður hugvit, dirfsku og framleiðslu sé þeim ráðstafað til einnar stofnunar ár eftir ár. Við Íslendingar berum okkur stundum saman við önnur Norð- urlönd, t.d. Danmörku. Þar er staðan sérstök. Í Danmörku er enginn ljósvakafjölmiðill með sterka markaðshlutdeild fyrir utan þá miðla sem ríkið rekur. Danska ríkið rekur tvö sjónvarps- fyrirtæki, DR og TV2 sem hafa mikinn meirihluta af öllu áhorfi í landinu og reyndar hlustun í útvarpi líka. Það er áhugaverð staðreynd að velta auglýsinga- sölu er hærri hjá Fréttablaðinu á Íslandi en velta allra útvarps- stöðva Dana til samans. Í Dan- mörku búa um 5,5 milljónir manns. Þrátt fyrir nokkra fína spretti í sjónvarpsframleiðslu Dana væri hægt að gera miklu meira. Það kom fram hjá Sven Clausen, helsta framleiðenda á sjónvarpsefni Dana, í fyrirlestri sem Kvikmyndamiðstöð Íslands stóð fyrir, að þeir byrjuðu fyrst að ná góðum árangri í framleiðslu eftir að þeir fóru að framleiða efni eftir bandarískum fram- leiðsluhefðum. Við, Íslendingar, greiðum sam- tals um 2,7 milljarða króna á ári til reksturs RÚV í formi afnota- gjalda. Fyrirtækið greiðir engan arð og því er þetta í raun árleg fjárfesting okkar í dag- skrám félagsins. Ef meðal rekstrartap síð- ustu ára er lagt við, þá erum við að greiða um 3 milljarða króna fyrir eina sjónvarpsstöð og 2 útvarpsrásir á ári. Fyrir alla þessa peninga fáum við ýmislegt ágætt efni, en ekki nóg. Fyrir utan skattfé er RÚV með um 1 milljarð króna í aðrar tekjur, stærstur hluti þessara tekna er auglýsingsala eða um 900 millj- ónir. Hyrfi RÚV af markaði myndu auglýsingarnar finna sér annað heimili og líklega búa til svigrúm fyrir nýja sjónvarps- stöð. Við eigum að leggja RÚV niður. Við eigum að stofna sjóð sem útdeilir RÚV milljörðunum árlega til sjónvarpsframleiðslu, samtals 3 milljörðum á ári, gegn 100% mótframlögum einkaaðila. Samtals væri þetta 6 milljarða innspýting í íslenskan afþreying- ar- og fjölmiðlaiðnað – ekki auka 250 milljónir eins og mennta- málaráðherra og útvarpsstjóri hafa lagt til. Ef við ætlum að breyta umhverfi fjölmiðla og framleiðslu verðum við að vera tilbúin að stíga skrefið til fulls. Við getum skapað nýjan iðnað sem getur, ef rétt er á málum haldið, styrkt ásýnd Íslands á heimsvísu meira en nokkur banki eða lyfjafyrirtæki kemur til með að gera. Afþreyingariðnaðurinn er hraðast stækkandi iðnaður í heimi og eftirspurnin eftir afþreyingarefni eykst stöðugt. Sem dæmi má nefna að fyrir 20 árum voru 90 sjónvarpsstöðvar í Evrópu, í dag (síðast þegar ég vissi) eru þær orðnar yfir 1.500. Fyrir utan sjóðinn og mót- framlag einkastöðva myndu fjár- festar fá áhuga á greininni. Stað- reyndin er nefnilega sú að afþreyingariðnaðurinn getur grætt á tá og fingri og haft mikla framlegð ef framkvæmdar eru „réttu“ efnishugmyndirnar. Fyrir hverja prósentu sem sjóð- urinn afhendir einkastöðvum væri hægt að skylda þær til að framleiða ákveðna prósentu af menningarlegu efni og sýna á besta tíma. Þegar höftin hverfa munu koma fram vel fjármagnað- ir listamenn sem vilja sinna því sem ekki fellur beint undir afþreyingariðnaðinn. Ef t.d. 20% af fé sjóðsins færu til menningar- legs efnis myndi það þýða marg- földun slíks efnis á skjám lands- manna, miðað við framleiðslu RÚV í dag. Hið margboðaða menningarvor hæfist fyrir alvöru. En eru einhverjar líkur á því að þetta gangi eftir? Ráðamenn skilgreina fjölmiðla og afþrey- ingu sem aldrei fyrr þessa dag- ana. Allir á Alþingi hafa skoðun á þessum málaflokki sem ætti að vera gott fyrir hann, eða hvað? Höfundur er fyrrum dagskrár- og markaðsstjóri Skjás eins, þróunarstjóri Dagsbrun Media (sem vinnur að útbreiðslu Fréttablaðsins erlendis) og þróunarstjóri 365 miðla á Íslandi. Leggjum RÚV niður Við getum skapað nýjan iðnað sem getur, ef rétt er á málum haldið, styrkt ásýnd Íslands á heimsvísu meira en nokkur banki eða lyfjafyrirtæki kemur til með að gera. Mikil umræða er í þjóðfélag-inu og út um allan heim hvernig best megi stemma stigu við losun koltvísýrings og annars- konar gróðurhúsalofttegunda. Þetta er mikið áhyggjuefni sem allar þjóðir þurfa að takast á við með myndarlegum hætti og þolir enga bið svo að draga megi úr því sem kallað er „global warming“ eða hlýnandi loftslag. Mörgum hugmynd- um hefur verið varpað fram um hvernig best megi ná árangri í þess- um efnum, en sitt sýn- ist hverjum. Nokkrir hafa velt upp þeirri hugmynd að hækka beri vörugjöld á stærri bifreiðar er hafi aflmeiri vélar. Fleiri hallast að þeirri hugmynd – og nú nýver- ið Bretar – að best sé að ná tökum á eldsneytisnotkuninni – þ.e.a.s. á notkun jarðolíu með gjöldum á sjálft eldsneytið, eða með öðrum orðum notkunina. Segja má að mörg rök styðji þá aðgerð umfram aðrar. Markmiðið með mengunar- gjöldum er að hvetja til sparnaðar á eldsneyti er virki m.a. sem hvati til kaupa á sem sparneytnustum bifreiðum. Samdóma álit bifreiðainnflytj- enda er að eldsneytisverðið eitt og sér stjórni miklu um bifreiða- kaup. Um leið og verð á eldsneyti hækki líti fólk frekar til eyðslu- grennri bifreiða. Ef sú leið væri farinn að innheimta „mengunar- skatt“ með vörugjöldum þ.e. á verð bifreiðarinnar, þá er skatt- lagt út frá öðrum þáttum en elds- neytissparnaði. Eldsneytiseyðsla bifreiðar fer nefnilega fyrst og fremst eftir hversu mikið henni er ekið eða notkun hennar. Til skýringar má nefna dæmi: A. kaupir stóra jeppabifreið og ekur henni innan við 5.000 km á ári, en B. kaupir lítinn fólksbíl og ekur honum 50.000 km. á ári. Þar með er A. að niðurgreiða mengunina sem B. veldur með sínum mikla akstri. Einnig má benda á að sumar fjölskyldur verða að eiga stóran bíl, vegna stærðar fjölskyldunnar sem þá er oftast með stórri vél. Með því að hafa há vörugjöld á slíkum bílum er verið að gera barnmörgum fjölskyldum ill- mögulegt að eignast bifreið sem mætir þeirra þörfum. Taka þarf líka tillit til þess að við búum í strjálbýlu landi þar sem samgöngur eru erfiðar og gæði veganna langt undir meðallagi miðað við önnur lönd. Þessar staðreyndir gera ferða- lög á litlum bílum oft og tíðum erfið og jafn- vel varhugaverð í sumum tilfellum, en margir þurfa búsetu eða verka sinna vegna að ferðast mikið við erfiðar aðstæður, bæði sumar og vetur. Verði sú leið farin að hækka vörugjöld á þær bifreiðar sem sannar- lega eyða meiri eldsneyti, reyna menn í lengstu lög að nota gamla bíla frekar en að endurnýja, þar sem stofnkostnaður yrði mikill. Þar með er verið að draga úr end- urnýjun bifreiðaflotans og við- halda mikið mengandi og jafnvel hættulegum bifreiðum í umferð lengur en góðu hófi gegnir. Þróunin er gríðarlega hröð í dag hjá bifreiðaframleiðendum og keppast þeir um að framleiða bifreiðar sem eru sparneytnar og minna mengandi fyrir umhverfið, hvort sem þær eru knúnar með litlum vélum eða stórum. Ávallt þarf að gæta jafnræðis varðandi álögur þannig að fólk verði látið borga fyrir notkun eða losun á magni mengandi efna út í umhverfið. Ekki er sanngjarnt að sá þjóðfélagshópur sem vill eða þarf að nota stórar einkabifreiðar borgi niður eldsneytisnotkun ann- arra og þar með mengun, eða líði fyrir búsetu sína. Mengunargjöld eldsneytis ættu að tryggja slíkt. Að síðustu er rétt að taka fram að álögur á bílgreinina í heild eru nú þegar alltof háar, þannig að nauð- synlegt er að taka allt gjaldaum- hverfi greinarinnar til gagngerr- ar endurskoðunar. Höfundur er framkvæmdastóri Bílgreinasambandsins. Vörugjöld á bifreið- ar, röng hugsun! Rýmingarsala Laugardag og sunnudag kl. 11 til 16 Faxafeni 10 – austurhlið Faxafeni 10, hús Framtíðarinnar 108 Reykjavík Sími 517 8000 www.golfefnaval.is Gólfefnaval allt að 4 0% afs látturFRU M Nudd-baðtæki á frábæru verði !
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.