Fréttablaðið - 11.11.2006, Síða 29
hvað mesta lukku að heppilegra sé
að einhver annar en sitjandi for-
maður verði forsætisráðherraefni
flokksins í þeim þingkosningum
sem fara í hönd – og spurning
hvort Össur muni slíta hár úr
brosmildum kampi sínum ellegar
muna eyrnafíkjuna forðum ef
bogastrengur núverandi formanns
kynni að bresta.
Hið æðra réttlæti
sér til þess að það er
ekki bara í Samfylk-
ingunni sem menn
súpa seyðið af verk-
um sínum. Núna er komið í ljós að
George Bush (vinur Davíðs) og
félagar hafa fengið verðskuldaða
rassskellingu.
Repúblíkanar eru búnir að tapa
fulltrúadeild þingsins og fyrirsjá-
anlegt er að þeir tapi líka meiri-
hluta í öldungadeildinni.
Bill Clinton fékk að kenna á því
hvað það þýðir fyrir forseta að
hafa ekki meirihluta á þingi þegar
repúblíkanar voru næstum búnir
að flæma hann úr embætti. En það
er ekki ólíklegt að það renni innan
tíðar upp fyrir einhverjum þing-
mönnum að viðundrið frá Texas
(vinur Davíðs) hafi verri hluti á
samviskunni en kvennafar í vinnu-
tímanum.
Venjulega gengur
mér vel að lifa í
núinu og láta hverj-
um degi nægja sína
þjáning. En núna,
aldrei þessu vant, er ég með hug-
ann við atburði helgarinnar.
Fyrst og fremst er ég að hugsa
um málverkasýninguna, en á laug-
ardaginn klukkan þrjú og fjögur
ætla ég að bjóða upp á það sem
mest er í tísku í myndlistarheim-
inum um þessar mundir og ganga
með gestum um sýninguna og
útskýra fyrir þeim tákn og dulin
skilaboð í verkunum. Þetta er
mjög hæfilegur göngutúr. Salur-
inn er 5x14 metrar svo að göngu-
leiðin er samtals um 36 metrar,
aðeins lengri ef fólk er mjög nær-
sýnt. Það er ekki laust við að ég
kvíði fyrir því að jafn einfalt og
það er að búa til myndir er flókið
að tala um þær.
Og í öðru lagi er ég að velta því
fyrir mér hvað ég á að hafa í
sunnudagsmatinn.
Engin þjóð stendur okkur Íslend-ingum nær en Færeyingar. Það
er því mikið fagnaðarefni að nú í lok
árs hafa verið stigin tvö söguleg og
gífurlega mikilvæg skref til nánara
formlegs samstarfs landanna og
áframhaldandi náinna samskipta
þjóðanna.
Í fyrsta lagi tók fríverslunar-
samningur milli Íslands og Færeyja,
svokallaður Hoyvíkur-samningur,
gildi nú um mánaðamótin. Samning-
urinn er einn sá víðtækasti sem
íslensk stjórnvöld hafa gert og sá
fyrsti sem gerir ráð fyrir fullri frí-
verslun með landbúnaðarafurðir.
Hann tryggir íbúum landanna einnig
mikilvæg réttindi í landi hvors ann-
ars, m.a. varðandi frjálsa
för fólks og búseturétt. Í
umræðum um alþjóðavæð-
ingu íslenska hagkerfisins
er oft horft langt yfir
skammt. Þá vill gleymast
að við flytjum út vörur til
Færeyja fyrir um tvo millj-
arða króna á ári og að eyj-
arnar eru mikilvægari
útflutningsmarkaður en
t.d. Kína, Finnland og Kan-
ada. Nú þegar samningur
tekur gildi má auk þess
gera ráð fyrir að viðskiptin
aukist enn frekar, ekki síst varðandi
landbúnaðarvörur. Neysluvenjur
Íslendinga og Færeyinga eru að
mörgu leyti áþekkar og færeyskur
landbúnaður uppfyllir ekki eftir-
spurn markaðarins.
Framleiðendur búnaðar-
vara telja t.d. að útflutn-
ingur á kjöti, eggum og
mjólkurafurða til Fær-
eyja muni aukast veru-
lega nú þegar Hoyvíkur-
samningurinn tekur gildi.
Áform utanríkisráð-
herra um opnun íslenskr-
ar sendiskrifstofu í Fær-
eyjum er annað
mikilvægt skref í sam-
skiptum landanna. Á árs-
fundi Vestnorræna ráðs-
ins í ágúst voru ríkisstjórnir Íslands,
Færeyja og Grænlands hvattar til
þess að opna sendiskrifstofur í
hvers annars landi. Slík skrifstofa í
höfuðborg náfrænda okkar getur
skipt miklu máli við að styrkja sam-
starf landanna, samskipti þjóðanna
og hvetja til aukinna viðskipta
þeirra í milli. Vonandi munu Færey-
ingar í kjölfarið opna sendiskrif-
stofu í Reykjavík.
Í umræðunni um mikilvæg
markaðssvæði í fjarlægum og fjöl-
mennum ríkjum megum við ekki
líta fram hjá næstu nágrönnum
okkar. Hoyvíks-samningurinn og
sendiskrifstofa í Færeyjum eru
mikilvæg skref til þess að tryggja
samskipti landanna og þjóða þeirra
til framtíðar.
Höfundur er alþingismaður
Framsóknarflokksins. (Greinin er
birt í heild á Visir.is)
ÍSLAND OG FÆREYJAR
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/S
IA
.I
S
L
B
I
34
89
7
1
0/
20
06
Maður, náttúra og mynd
Ingálvur av Reyni
Sámal Joensen-Mikines
Zacharias Heinesen
Í Landsbankanum, Austurstræti, í afgreiðslusal og á 2. hæð eru sýnd málverk eftir þrjá af helstu
listamönnum færeysku þjóðarinnar. Um er að ræða skiptisýningu Landsbankans og Færeyjabanka
í tilefni 120 ára afmælis þess fyrrnefnda og 100 ára afmælis þess síðarnefnda á þessu ári.
Á sýningunni í Landsbankanum eru sýnd verk í eigu Færeyjabanka eftir þrjá af helstu listamönnum færeysku þjóðarinnar.
Myndlistarsýningin er öllum opin á afgreiðslutíma Aðalbankans í Austurstræti frá 30. október til 30. nóvember.
Leiðsögn í dag, laugardag
Í dag, laugardaginn 11. nóvember, mun Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur verða með leiðsögn um sýninguna.
Húsið verður opnað kl. 14:30. Leiðsögnin hefst kl. 15:00 og stendur í um klukkustund.