Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 30

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 30
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, Orð voru dýr Þingsályktað út í loftið Það er ekki oft sem ég get stigið í pontu á eftir hæstvirtum iðnaðarráð- herra og sagt: Nú er ég sammála hæstvirtum ráðherra. En það er ástæða til að gera það nú. Hér er spurt um hvort eigi að senda út og segja fréttir alla virka daga hjá svæðisútvarpinu á Austurlandi. Á Suður- nesjum brennur aftur á móti spurningin: Á ekki að taka upp útsendingar svæðisútvarps á Suður- nesjum? Heilbrigðisráðherra kynnti í vik- unni áform um að stækka réttar- geðdeildina á Sogni. Nú eru þar sjö rými en iðulega hafa fleiri dvalist á deildinni og þá hafst við í vistarver- um sem ekki eru ætlaðar til dvalar. Margrét Frímannsdóttir Sam- fylkingunni spurði um framtíðar- áform ráðherra um rekstur og upp- byggingu starfsemi réttargeðdeildarinnar að Sogni og sagði stjórnvöld fram til þessa hafa verið sinnulaus gagnvart deildinni. Siv Friðleifsdóttir skýrði frá því í svari sínu að starfshópur hefði, eftir úttekt á húsakynnunum, lagt til úrbætur og hefði hún ákveðið að ráðast í þær. Verður rýmum því fjölgað um þrettán og verða því tut- tugu í framtíðinni. Kosta fram- kvæmdirnar á milli sex og sjö hundruð milljónir króna. Í máli Sivjar kom fram að um fjörutíu sjúklingar hafa verið lagð- ir inn á réttargeðdeildina að Sogni á þeim tæpu fimmtán árum sem deildin hefur starfað. Fjölgað um þrettán rými á réttargeðdeildinni að Sogni Björn Ingi Hrafnsson, varaþingmaður Framsókn- arflokksins, leggur til að Mannanafnanefnd verði lögð niður og að smekk- ur foreldra fyrir nöfnum barna sinna fái að ráða en ekki smekkur opinberra nefndarmanna. „Ég tek undir þá gagnrýni sem sett hefur verið fram á undanförn- um árum á starfsemi Mannanafna- nefndar,“ segir Björn Ingi sem mælir fyrir frumvarpi um breyt- ingar á mannanafnalögum í næstu viku. Hann tekur fram að gagnrýni sín beinist ekki að því fólki sem setið hefur í nefndinni, lögin hafi á hinn bóginn verið of þröng og ekki í samræmi við það nútímaviðhorf að fólk eigi að ráða sínum málum sjálft. „Ég tel að foreldrar hafi almennt til að bera það mikla væntumþykju til barna sinna að þeir velji þeim ekki nöfn sem eru þeim til ama eða koma þeim illa,“ segir Björn Ingi. Eins og lögum er nú háttað gefur Mannanafnanefnd út sam- ræmt yfirlit yfir nöfn sem heimilt er að nota og fundar reglulega um umsóknir um undanþágur. Björn Ingi telur þetta ekki hlutverk rík- isvaldsins og segir að almenna reglan eigi að vera sú að nöfn séu leyfð og aðeins sé hægt að banna þau í algjörum undantekningartil- vikum - þegar um hreinar nafn- leysur er að ræða. „Það hefur lengi verið í lögunum að nafnberi megi ekki hafa ama af nafni sínu og það stendur óhaggað.“ Spurður um einstök dæmi þess að lög um Mannanafnanefnd hafi verið borgurum til trafala nefnir Björn Ingi nafnið Sævarr með tveimur errum. „Það var nýlega samþykkt í nefndinni eftir margra ára þrautagöngu og það eru fjöl- mörg dæmi um nöfn sem hafa lifað með kynslóðum án þess að hljóta náð fyrir augum nefndar- innar. Á sama tíma hefur sumum fundist nöfn sleppa í gegn sem hafa enga tengingu við íslenska tungu.“ Björn Ingi segir að þegar svo hátti til snúist mál um smekk. „Og ég vil frekar að smekkur for- eldranna og barnanna ráði heldur en þess ágæta fólks sem hefur val- ist til setu í Mannanafnanefnd á hverjum tíma.“ Björn Ingi segir þetta mál eitt þeirra sem þjóðin hafi hvað sterk- astar skoðanir á og býst við snar- pri og skemmtilegri umræðu í þinginu í næstu viku.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.