Fréttablaðið - 11.11.2006, Qupperneq 59
{ heimilið } 10
Heimilishald nútímans er tækni-
væddara en fyrsta tunglferjan.
Tæknin sem til er nú í dag er svo
ótrúleg að hún myndi sóma sér vel
í hvaða framtíðarmynd sem er. Þú
getur gengið að útidyrunum þar
sem lithimnuskanni hleypir þér
inn. Þú segir nafnið þitt í forstof-
unni og ljósin kvikna eftir þínu
höfði, sjónvarpið býður gott kvöld
og kaffivélin fer í gang um leið
og þú segir orðið latte. Ísskápur-
inn, sem rétt áðan sendi þér SMS
þar sem stóð að mjólkin væri
búin, lætur þig vita hvar
börnin þín eru með þeirra eigin
rödd, og tónlistarmiðstöðin setur á
rólega tónlist enda klukkan orðin
margt.
Þetta er allt hægt í dag en kostar
því miður handlegg og fót auk yfir-
vinnu næstu 30 árin. Sumt þarf að
sérsmíða og annað sérpanta. Sumt
af þessu fæst aftur á móti í næstu
verslun.
Securitas eða Öryggismiðstöðin
geta séð um lyklalausa aðgengið
án teljandi vandræða. Tónlistar-
miðstöðin fæst
hjá Heimilistækjum og hvað varðar
sjónvarpið er hægt að fá risastóra
HD flatskjái í flestum raftækjabúð-
um. Sjónvarpið býður þér kannski
ekki góðan dag en hver vill svo
sem að það tali við mann. Látum
heldur þá sem í sjónvarpinu eru um
að tala.
Ísskápar með snertiskjá þar sem
hægt er að geyma uppskriftir, taka
upp skilaboð og fá upplýsingar um
næringarinnihald fæðutegunda eru
til í næstu heimilistækjaverslun,
t.d. í Rafha.
Til að toppa þetta allt geturðu
keypt spansuðuborð.
Spansuðuborð er helluborð
sem hitar potta og bara potta.
Borðið lítur út eins og spegil-
slétt plastplata þar sem búið
er að merkja fyrir hellum.
Borðið notast við segul-
svið sem kemur hreyfingu á
öreindir atóma og myndar
þannig hita. Galdurinn er
að borðið hitar bara seg-
ulmálma og ekkert annað.
Þú getur haft bullsjóðandi
vatn í potti, tekið hann
upp og skellt hendinni
beint á borðið þar sem
potturinn stóð án þess að
brenna. Ylurinn er bara
frekar þægilegur.
Þessi tækni hefur verið
til í 20 ár en aðeins á síðustu
árum hefur hún orðið nógu
ódýr til almenningsnota. Til
að kóróna þetta allt er spans-
uðuborð allt að helmingi
fljótara að hita innihald potta
en aðrar gerðir helluborða og
tekur mun minni orku í það.
tryggvi@frettabladid.is
Hátæknivædd heimili
Raddstýrð stjórntæki, lyklalaust aðgengi, talandi tölvur og kaldur hiti.
Á Netinu er að finna skemmtilega
vefverslun sem heitir www.wallt-
er.com. Vefverslun þessi sérhæfir
sig í margskonar veggskreyting-
um en slíkar skreytingar geta ger-
breytt útliti herbergis á örskömm-
um tíma. Á vefsíðunni er hægt að
kaupa allskonar skraut, m.a. hringi,
dropa, ferhyrninga, sexhyrninga,
stjörnur og fleira. Skreytingarnar
koma grunnaðar til kaupandans,
sem þarf þá ekki að gera annað en
að mála þær í sama lit og fyrir er
á herbergisveggnum, eða í öðrum
lit vilji fólk fá öflugri áhrif fram.
Svona skreytingar gætu verið sér-
lega flottar fyrir ofan rúm til að
koma í stað rúmgafls en einnig
myndu þær sóma sér vel á stofu-
vegg, gangi eða hreinlega hvar
sem fólki finnst skreytingar þörf.
Skreytingarnar eru sjálflímandi og
festast vel á veggina, en athuga
þarf þó að vanda vel til verksins
og vera búin að ákveða hvernig
mótin skulu raðast áður en ráðist
er í upplímingarnar.
mhg
Öðruvísi veggir
Upphleypt munstur gefa herberginu nýja vídd