Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 37
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
langur laugardagur heilsa börn nám ferðir matur bílar tíska atvinna jólin koma tilboð o.fl.
sólarupprás hádegi sólarlag
reykjavík 10.45 13.17 15.48
akureyri 10.52 13.01 15.10
góðan dag!
í dag er föstudagurinn
1. desember, 335. dagur
ársins 2006.
Vestrið og austrið
mætast
Á veitingastaðnum Domo
er boðið upp á sambland
af japanskri og evrópskri
matargerð.
matur Guðrún Jóhannsdóttir matgæðingur hefur skrifað
tvær handhægar matreiðslubækur, Hollt og ódýrt og
Hollt og fljótlegt sem Salka gefur út.
„Í mínum huga er hollur matur fyrst og fremst fólginn í
fjölbreytni,“ segir Guðrún sem er óhrædd við að prófa nýj-
ungar í matargerð og lítur á það sem ævintýri að fara í sér-
staka leiðangra að leita að kryddi.
Lesendur Fréttablaðsins þekkja Guðrúnu að góðu. Hún
hefur verið með matarpistla og uppskriftir í blaðinu í rúm
þrjú ár undir yfirskriftinni Til hnífs og skeiðar. Lengi vel
miðuðust hráefniskaup við þúsundkallinn og hafa áreiðan-
lega margir blessað Guðrúnu í huganum fyrir lækkaðan
matarreikning. Nú eru þessar uppskriftir komnar út á bók
sem heitir Hollt og ódýrt.
„Sumar uppskriftirnar hafði ég notað sjálf í mörg ár en
aðrar voru þróaðar næstum jafnóðum með tilraunastarf-
semi því ég hef alla tíð verið forvitin og óhrædd við að prófa
mig áfram. Mér þykir gaman að sækja í matreiðsluhefðir
annarra landa og gera mínar útfærslur á réttunum og finnst
líka frábært hversu framboð af góðu og fjölbreyttu hráefni
hefur aukist hér á landi. Í þeim meðbyr sem ég haft í sam-
bandi við pistlana finn ég að margir eru opnir fyrir því að
prófa uppskriftir og spennandi krydd úr fjarlægum álfum.
Mér finnst hugmyndin um að ferðast með bragðlaukunum
heillandi.“
Spurð hvernig gangi að halda kostnaði niðri en vera samt
með framandi hráefni svarar hún: „Margt af því sem til-
heyrir ítalskri og austurlenskri matargerð er frekar ódýrt
en í bókinni Hollt og fljótlegt einskorða ég mig ekki bara
við ódýru uppskriftirnar.
Guðrún tekur sjálf myndirnar í bækurnar. „Þegar ég
byrjaði á pistlunum þá vildi ég ekki binda mig við að fá ljós-
myndara á ákveðnum tíma heldur elda réttinn þegar það
hentaði mér og innblásturinn kom. Ég hafði föndrað við
ljósmyndun og ákvað að taka myndirnar sjálf. Svo hefur
það þróast yfir í mikla ástríðu og áhuga á matarljósmynd-
un. Það má því segja að hér sé algert tilraunaeldhús.“
Guðrún gefur lesendum Fréttablaðsins uppskrift að
ítölskum tvíbökum á bls. 6. gun@frettabladid
Óhrædd við að
prófa sig áfram
Guðrún hefur gaman af því að baka og hér er hún að baka ítalskar tvíbökur. fréttablaðið/Gva
gallerý kjöt býður upp á gjafa-
öskjur í þremur stærðum fyrir þá
sem vilja gleðja með góðu kjöti.
Í öskjurnar er hægt að fá sérvalið
nautakjöt, villibráðarpaté, krydd-
grafna vöðva og margt fleira
girnilegt.
vox býður upp á jólamatseðill
með íslenskri villigæs í aðalrétt
frá og með deginum í dag.
amerískir GE
kæliskápar eru
á þrjátíu pró-
senta afslætti í
Eirvík.
júmbó léttir
þeim lífið sem
þurfa að halda
veislu því hægt
er að panta
veislubakka
með litlum fyrirvara þaðan. Þrír
bakkar eru í boði, samlokubakki,
tortillubakki og blandaður bakki.
spar er með helgartilboð á
grilluðum kjúklingi, frönskum og
tveimur lítrum af kóki og kostar
allt þetta aðeins 998 krónur.
allt hitt
[ matur tilboð jólin koma langur laugardagur SS hEfur SEtt á markað Enn Eina nýjunG Í hElGar-
StEikum.
Safarík og bragðgóð
lambasteik bíður
þess sem skellir nýju
CajP helgarsteikinni
í ofn. á það jafnt við
hvort sem hann stillir
ofninn á venjulega
steikingu eða grill. hér
er um að ræða sérvalinn og snyrtan lambaframpart sem er
marineraður í CajP-grillsósu.
ný helgarsteik
töfraland í
mýVatnssVeit
Jólasveinarnir fara í
sitt árlega jólabað
í jarðböðum við
Mývatn.
jólin koma 10