Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
69,3%
38,5%
45,8%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í september 2006.
Þriðjudagar
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
höfuðborgarsvæðið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
40
30
50
20
60
70
80
Sími: 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
5. desember 2006 — 326. tölublað — 6. árgangur
Gígja Guðbrandsdóttir læknakandídat söðlaði um fyrir nokkrum árum þegar hún skipti úr dans yfir í júdóÉ
að síður vel í júdóinu, eins og snerp
teygjanleiki “ bæti
Að snúa vörn í sókn
VEÐRIÐ Í DAG
GÍGJA GUÐBRANDSDÓTTIR
Skipti úr
dansi í júdó
Heilsa Jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
Suðurland
[ SÉRBLAÐ UM SUÐURLAND – ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 ]
HRÆDDIR FERÐAMENNDraugasetrið á StokkseyriBLS. 4
ÍSLENSKUR ARKITEKTÚRAxelshús í Hveragerði BLS. 4
EFNISYFIRLIT
SUNNLENSKADEILDINFlekklaust sumar FC Flóa SJÁ BLS. 8
ÍSLENSKI BÆRINNHannes Lárusson reisir torfbæjarstofnun
SJÁ BLS. 2
Rigoletto reynist vel
Ólafur Kjartan Sigurðarson
baritónsöngvari fær lof-
samlega dóma í Bretlandi.
MENNING 32
ÍSLENSKI BÆRINN
Hannes Lárusson reisir
torfbæjarstofnun
Sérblað um Suðurland
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
BJART SYÐRA - Í dag verða norð-
austan 5-13 m/s, stífastur suðaust-
an til og á Vestfjörðum. Bjart veður
á Suður- og Vesturlandi en skúrir
eða slydda norðaustan og austan
til. Kólnandi veður og hiti víðast 0-4
stig með ströndum.
VEÐUR 4
ANNA MJÖLL ÓLAFSDÓTTIR
Samdi þrjú lög fyrir
Hollywood-mynd
Nýtur lífsins með stjörnunum í Los Angeles
FÓLK 50
Storm og Toby tekin
Grínistinn Auðunn
Blöndal hrekkti Rock-
star-gengið meðan
það var á Íslandi.
FÓLK 50
HEILBRIGÐISMÁL Tæplega þriðjung-
ur barna á aldrinum sex til fjór-
tán ára í Efra-Breiðholti er of
þungur eða of feitur. Tíðni
ofþyngdar eða offitu er hæst hjá
börnum í Fellaskóla, þar sem
þriðjungur nemenda á við þetta
vandamál að stríða. Í næsta sæti
er Breiðholtsskóli en þar er hlut-
fallið 30 prósent.
Lægsta prósentuhlutfall
ofþyngdar og offitu eftir hverf-
um er hjá börnum í Hlíðunum;
um 17 prósent.
Þessar niðurstöður koma fram
í rannsókn Ragnheiðar Óskar
Erlendsdóttur hjúkrunarfræð-
ings. Niðurstöðurnar eru byggðar
á sextán þúsund mælingum á
þyngd barna sem framkvæmdar
hafa verið af heilsugæslunni í
grunnskólum á höfuðborgar-
svæðinu síðastliðin tvö ár. Þyngd
barnanna var mæld í 1., 4., 7. og 9.
bekk. Tölurnar voru greindar út
frá sérstökum líkamsþyngdar-
stuðli og voru mælingarnar skráð-
ar í rafrænt forrit sem kallast
Ískrá. Að sögn Ragnheiðar er
þetta í fyrsta skipti sem birtar
eru niðurstöður úr rannsóknun-
um eftir að rafræn skráning
hófst.
Ein af niðurstöðunum í rann-
sókninni er að hugsanlega sé
fylgni á milli félagslegrar stöðu
foreldra og offitu og ofþyngdar
barna. Ragnheiður segir að ef
félagsleg staða foreldra barnanna
sé borin saman eftir póstnúmer-
um, kemur fram að hlutfall offitu
og ofþyngdar er hærra í hverfum
þar sem menntunarstig er lægra.
Samkvæmt tölum frá Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands frá
árinu 2002 er hlutfall háskóla-
genginna foreldra í skólunum þar
sem offita og ofþyngd er mest 11
til 22 prósent, en um 30 til 34 pró-
sent í skólum þar sem ofþyngd og
offita er minnst.
Að þessu leyti svipar Íslandi
til Bandaríkjanna segir Ragn-
heiður. Fylgni á milli félagslegrar
stöðu er öfug í löndum eins og
Kína og Rússlandi þar sem fólk í
betri félagslegri stöðu í samfé-
laginu er feitara.
Ragnheiður segir að miðað við
niðurstöður úr hliðstæðum
erlendum rannsóknum sé offita
og ofþyngd íslenskra barna minni
hér á landi en í mörgum öðrum
löndum, eða tæplega 21 prósent.
Þetta hlutfall er 24 prósent í Eng-
landi og 27 prósent á Ítalíu svo
dæmi séu tekin.
sjá síðu 8 /- ifv
Offita barna mest í Breiðholti
Lægsta tíðni offitu og ofþyngdar hjá börnum í Hlíðahverfinu. Á Íslandi er hugsanlega fylgni á milli félags-
legrar stöðu foreldra og ofþyngdar og offitu barna. Offita er sjaldgæfari hér en meðal erlendra barna.
HJÁLPARSTARF Jóhannes Jónsson,
forstjóri Bónuss, afhenti í gær
Hjálparstarfi kirkjunnar og
Mæðrastyrksnefnd 4.200 gjafa-
bréf í verslunum sínum, hvert bréf
er 5.000 króna virði. Gjafabréfun-
um munu hjálparstofnanirnar
útdeila til skjólstæðinga sinna, til
að létta undir við hátíðahöld um
jólin.
Samtals hljóðar aðstoðin upp á
21 milljón. Jóhannes segir að
upphæðin hafi verið ákveðin til að
minna á 21 milljónar króna
aukafjárveitingu sem dómsmála-
ráðuneytið fékk í haust til að ráða
sérstakan saksóknara í Baugsmál-
inu svokallaða.
Karl Sigurbjörnsson, biskup
Íslands, þakkaði höfðinglega gjöf
og lýsti ánægju með samstarf
hjálparstofnananna og minnti á
boðskap jólanna; að sælla sé að
gefa en þiggja. - kóþ
Jóhannes í Bónus:
Gaf 21 milljón
til bágstaddra
BAGDAD, AP Kofi Annan, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, sagði í gær að ástandið í Írak væri
ekkert annað en borgarastyrjöld og hún væri jafn-
vel mannskæðari en borgarastríðið sem geisaði í
Líbanon á árunum 1975 til 1990.
Hann sagði einnig að ástandið í Írak núna væri
verra fyrir almenning heldur en þegar Saddam
Hussein var þar við völd.
„Ofbeldið er það alvarlegt, átökin og biturleikinn
það mikill,“ sagði Annan og benti á að hliðstæð átök
í Líbanon hefðu verið kölluð borgarastríð. „Þetta er
miklu verra,“ sagði Annan í viðtali við breska
útvarpið BBC.
Herlið Bandaríkjanna viðurkenndi nýlega að
hertar aðgerðir til þess að stöðva ofbeldisöldu í átök-
um súnnía og sjía í höfuðborginni Bagdad hefðu
misheppnast.
Þetta varð ljóst þann 23. nóvember þegar 215
manns féllu í sprengjuárásum á hverfi sjía í Bagdad,
en það var mannskæðasta árásin frá því stríðið í
Írak hófst.
„Við fordæmum harðlega bílasprengjur, árásir
og hefndarmorð öfgamanna gegn friðsömum Írök-
um í Bagdad,“ sögðu þeir Zalmay Khalilzad, sendi-
herra Bandaríkjanna, og George W. Casey, æðsti
yfirmaður Bandaríkjahers í Írak, í sameiginlegri
yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í gær. - gb
Kofi Annan segir borgarastríð geisa í Írak:
Verra en þegar Saddam ríkti
Misjöfn kjör
Viðbrögð stjórnmálamanna við
þessari lífreynslu fólksins voru
líka svolítið skrýtin fannst mér,
þeir komu allir af fjöllum, enginn
þeirra virðist frekar en við hin hafa
áttað sig á hvernig þetta virkar,
segir Valgerður Bjarnadóttir.
Í DAG 24
MARGIR HJÁLPAR ÞURFI Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, sagði mikla þörf fyrir aðstoð nefndar-
innar fyrir jólin og var að vonum ánægð með gjöf Jóhannesar Jónssonar, forstjóra Bónuss. Á myndinni sjást frá vinstri Vilborg
Oddsdóttir og Jónas Þórir Þórisson frá Hjálparstarfi kirkjunnar, Ragnhildur, Jóhannes og Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á GÖTUM BAGDAD
Myndin er tekin á
sunnudaginn eftir að
þrjár bílasprengjur
höfðu sprungið á mat-
vælamarkaði og meira
en 50 manns fórust.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Íhuga framboð
Gunnar Sigurðsson
og Viðar Halldórsson
íhuga að bjóða sig
fram til for-
mennsku í KSÍ.
ÍÞRÓTTIR 42