Fréttablaðið - 05.12.2006, Qupperneq 2
Aukin útbreiðsla
bakteríunnar MÓSA hér á landi er
farin að valda heilbrigðisyfirvöld-
um áhyggjum, að því er Karl G.
Kristinsson, yfirlæknir á sýkla-
fræðideild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss, segir. Bakterían hefur
verið þekkt á sjúkrahúsum hér, en
nú er hún farin að herja á fólk sem
ekki er í tengslum við sjúkrahús
og hefur færst í aukana á milli
ára.
„Þessi baktería er gjarnan fjöl-
ónæm inni á sjúkrahúsum, en síður
þegar hún kemur upp utan þeirra,“
segir Karl. „Utan þeirra er hún
engu að síður ónæm fyrir öllum
flokkum penisilínlyfja og skyldum
lyfjum. Í fyrstu var MÓSA-bakter-
ían nær eingöngu tengd sjúkra-
húsum og einstaklingum sem
höfðu verið þar inni. Síðan hefur
nýgengi hennar aukist utan sjúkra-
húsa, eftir því sem það jókst þar
inni. Enn er hún einkum tengd ein-
staklingum sem hafa verið að fara
inn og út af sjúkrahúsum, til dæmis
öldruðum. Öldrunarstofnanir geta
fengið hana inn til sín sem þýðir að
erfiðara getur reynst að stöðva
útbreiðsluna enda mun erfiðara að
beita ströngum sýkingavörnum á
öldrunarheimilum heldur en á
sjúkrahúsum.“
Karl segir enn fremur að fyrst
hafi farið að bera á bakteríunni
hjá fólki án tengsla við sjúkrahús
á Íslandi á síðasta ári. Á þessu ári
hafi tíðnin aukist á sama hátt og
gerst hefur á hinum Norðurlönd-
unum. Hún sé þó enn ekki orðin
vandamál utan sjúkrahúsa á Norð-
urlöndunum. Á mörgum stöðum í
Bandaríkjunum, Norður-Ameríku
og Kanada sé þessi baktería hins
vegar orðin verulegt vandamál úti
í þjóðfélaginu.
„Við höfum áhyggjur af því að
ónæmið hjá þessum bakteríum
komi til með að þróast nokkuð
hliðstætt utan spítala og innan. Á
sumum stöðum í Bandaríkjunum
er tíðni ónæmu stofnanna komin
allt upp í 70 prósent og þá er þetta
orðið vandamál hvað meðferð
varðar. Menn svara þá ekki hefð-
bundinni meðferð, en geta gengið
með sýkinguna, sem fer ef til vill
versnandi áður en að hægt er að
greina hana réttilega og gefa rétta
meðferð.“
Spurður hvernig þessar sýk-
ingar lýsi sér segir Karl að þetta
séu oftast húð- og sárasýkingar.
Þær geti svo leitt til dýpri ígerða
og alvarlegri sýkinga. Þótt lang-
flestar sýkinganna séu tiltölulega
meinlausar, þá er rétt að benda
læknum á að vera á varðbergi
gagnvart þessari þróun og senda
sýni í ræktun við slæmar sýkingar
og eins ef svörun við meðferð er
lítil eða engin.
Skæð baktería tekin
að breiðast út hér
Illræmda spítalabakterían MÓSA er nú tekin að breiðast út og herja á fólk utan
sjúkrahúsa hér á landi. Hún hefur færst í aukana á milli ára. Þessi þróun veldur
heilbrigðisyfirvöldum áhyggjum, að sögn Karls G. Kristinssonar yfirlæknis.
75.000 KR.
GJAFABRÉF
FRÁ SMÁRALIND FYLGIR NÚNA
ÖLLUM NOTUÐUM BÍLUM FRÁ
INGVARI HELGASYNI
Ritstjóri og
tveir blaðamenn danska blaðsins
Berlingske Tidende voru í gær
sýknaðir fyrir dómi í Kaupmanna-
höfn af ákæru um að hafa mis-
farið með trúnaðargögn ríkisins í
greinaflokki um Íraksmálið sem
birtur var í blaðinu á árinu 2004.
Borgardómur Kaupmannahafn-
ar komst að þeirri niðurstöðu að
Niels Lunde ritstjóri og blaða-
mennirnir Michael Bjerre og
Jesper Larsen hefðu með skrifun-
um höndlað í þágu almannahags-
muna. Ákæran byggði á því að
blaðamennirnir hefðu gerst brot-
legir við lög um öryggi ríkisins
með því að vitna í trúnaðarskýrsl-
ur leyniþjónustu danska hersins.
Í skýrslunum kom fram, að
engar vísbendingar hefðu fundist
um að Íraksstjórn Saddams Huss-
ein réði yfir gereyðingarvopnum.
Fyrrverandi leyniþjónustumaður,
sem átti þátt í að semja umræddar
skýrslur, hafði áður hlotið dóm
fyrir að bregðast skyldum sínum
með því að leka þessum trúnaðar-
gögnum til fjölmiðla.
Lunde sagði eftir að dómur féll
í gær að með honum hefði unnist
„mikill sigur fyrir hið opna
samfélag“.
Michael Jørgensen ríkissak-
sóknari hafði ekki ákveðið hvort
hann færi fram á áfrýjun.
Brutu ekki gegn þjóðaröryggi
John Bolton
hættir innan fárra vikna sem
sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum þar sem
öldungadeild Bandaríkjaþings
fæst ekki til þess að staðfesta
tilnefningu hans í embættið.
Bolton hefur gegnt embættinu
til bráðabirgða í meira en ár
samkvæmt tilnefningu frá
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta. Hann sagðist í gær „afar
vonsvikinn vegna þess að fáeinir
bandarískir öldungadeildarþing-
menn hafa komið í veg fyrir að
Bolton sendiherra hafi þá
kosningu sem hann átti skilið í
öldungadeildinni“.
Bush segist vera
afar vonsvikinn
Sjón, finnur þú til samkenndar
með Kertasníki?
Stefanía Katrín Karlsdóttir, sem
lætur senn af störfum sem bæjarstjóri í Árborg, fær
greidd laun í tólf mánuði frá því að hún lætur af
störfum. Hún tók við sem bæjarstjóri fyrir um hálfu
ári er Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur
mynduðu meirihluta í sveitarfélaginu.
Samkvæmt samningi sem hún gerði við sveitarfé-
lagið eru mánaðarlaun hennar um 1.200 þúsund
krónur á mánuði. Samtals munu bæjarstjóraskiptin
því kosta rúmar fjórtán milljónir.
Ragnheiður Hergeirsdóttir, oddviti Samfylking-
arinnar, verður nýr bæjarstjóri í Árborg. Hún segir
samhug ríkja hjá fulltrúum Samfylkingarinnar,
Framsóknarflokks og Vinstri grænna. „Mér líst vel á
þetta samstarf og hef trú á því að við munum standa
saman að því að efla sveitarfélagið enn frekar. Ég
legg áherslu á að eiga gott samstarf við alla þá sem
koma að málefnum sveitarfélagsins. Við munum
beita okkur af hörku fyrir því að Suðurlandsvegur
verði tvöfaldaður svo dæmi sé tekið.“
Þorvaldur Guðmundsson, oddviti Framsóknar-
flokksins í sveitarstjórninni, verður forseti bæjar-
stjórnar en formleg meirihlutaskipti verða á fundi
bæjarstjórnar á fimmtudaginn.
Bilun varð í netkerfi Símans
sem varð til þess að ekki var hægt
að greiða með greiðslukortum í
verslunum víðs vegar um Hafnar-
fjörð á milli klukkan sjö og átta í
gærkvöldi.
Helga Kristjánsdóttir, vaktstjóri
Krónunnar í Hafnarfirði, segir að
nokkur óþægindi hafi skapast
vegna þessa og að nokkrir við-
skiptavinir hafi skilið kerrur sínar
eftir í versluninni vegna bilunar-
innar. „Flestir tóku þessu þó vel og
við buðum viðskiptavinunum upp á
konfekt vegna óþægindanna sem
ástandið skapaði.“
Bilunin stóð yfir í tæpa klukku-
stund.
Kortafærslu-
kerfið bilaði
Karlmaðurinn
sem lést í
umferðarslysi
á Suðurlands-
vegi síðastlið-
inn laugardag
hét Ásgeir Jón
Einarsson, til
heimilis að
Fljótaseli 10 í
Reykjavík.
Ásgeir Jón var
fæddur 1977.
Hann var ókvæntur og
barnlaus.
Lést í umferð-
arslysi
Stúlkan sem
lést í umferð-
arslysi á
Suðurlands-
vegi á laugar-
daginn hét
Svandís Þula
Ásgeirsdóttir,
fædd 26. febrú-
ar árið 2001.
Svandís Þula
var til heimilis
að Sandavaði 1
í Reykjavík.
Foreldrar hennar heita Hrefna
Björk Sigurðardóttir og Ásgeir
Ingvi Jónsson.
Lést í umferð-
arslysi