Fréttablaðið - 05.12.2006, Side 6

Fréttablaðið - 05.12.2006, Side 6
Viðskiptavinir athugið! Hef fest kaup á Hárgreiðslu- stofunni Greiðunni að Háaleitisbraut 58-60. Hægt er að panta tíma hjá mér í síma 581-3090. Bestu kveðjur, Hrafnhildur Arnardóttir „Það er lykilatriði að aðgreina akstursstefnur á umferðaræðunum í grennd við höfuðborgarsvæðið, hvort sem það er með tvöföldun eða öðrum lausnum,“ segir Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rannsóknar- nefndar umferðarslysa. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær hafa 54 látið lífið í umferðar- slysum á Suðurlandsvegi frá árinu 1972. Ung stúlka og tæplega þrítug- ur maður létust í hörðum árekstri tveggja bíla á Sandskeiði síðast- liðinn laugardag en átta ára gam- all drengur slasaðist alvarlega í árekstrinum. Hann dvelur nú á Barnaspítala Hringsins en líðan hans er stöðug. Ágúst segir nauðsynlegt að vinna hratt og vel að aðgreiningu akstursstefna á helstu umferða- ræðum í grennd við höfuðborgar- svæðið. „Það hefur verið sjónar- mið nefndarinnar, allt frá því árið 2001, að það sé nauðsynlegt að aðgreina akstursstefnur á Suður- landsvegi, Vesturlandsvegi og Reykjanesbraut. Það er lykilat- riði að aðgreina akstursstefnur hvort sem það verður gert með tvöföldun eða öðrum lausnum. Það þarf að flýta þessum fram- kvæmdum eins og kostur er en að lokum er þetta alltaf spurning um pólitískan vilja ráðamanna og for- gangsröðun þeirra.“ Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar- stjóri í Hverwagerði, telur stjórn- völd þurfa að bregðast tafarlaust við tíðum umferðarslysum með róttækum samgöngumúrbótum. „Það er samstaða meðal Sunn- lendinga um að það sé forgangs- mál að tvöfalda Suðurlandsveg. Ég furða mig á þeim ummælum [Jóns Rögnvaldssonar] vegamála- stjóra að óþarft sé að tvöfalda Suðurlandsveg. Allar upplýsingar benda til þess að nauðsynlegt sé að tvö- falda veginn. Þegar ákvörðun var tekin um að tvöfalda Reykjanes- braut var umferð þar minni en hún mælist nú um Suðurlands- veg. Á þeim forsendum finnst mér sérkennilegt að halda því fram að umferð á Suðurlandsvegi sé ekki nægilega mikil svo að réttlætanlegt sé að ráðast í tvö- földun vegarins.“ Jón Rögnvaldsson segir stjórn- málamenn ráða för en þeirra verk sé vandmeðfarið. „Stjórnmála- menn ráða för í þessu eins og öðru þegar kemur að vegafram- kvæmdum. Það er í þeirra hönd- um að ákveða hvernig fé er varið og í hvaða framkvæmdir á að ráð- ast á hverjum tíma. Ég er auðvit- að hlynntur því að auka öryggi á vegum landsins sem allra mest. En grundvallaspurningin er þessi: hvenær er verið að auka umferð- aröryggi og hvenær hættir maður að fá eitthvað fyrir viðbótar- kostnaðinn? Þetta er viðkvæmur málaflokkur og það þurfa allir, sem að honum koma, að vanda til verka.“ Akstursstefnur verði aðgreindar sem fyrst Það á að vera forgangsmál að tvöfalda Suðurlandsveg, segir bæjarstjórinn í Hveragerði. Nauðsynlegt að aðgreina akstursstefnur á vegunum í grennd við höfuðborgarsvæðið. Spurning um forgangsröðun, segir vegamálstjóri. Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra segir það stefnu sína að tvöfalda Suðurlandsveg. Jafnframt séu í undirbúningi aðgerðir til að bæta umferðarör- yggi á veginum, í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar um milljarðs króna framlag til umferð- aröryggisframkvæmda á Suður- landsvegi og Vesturlandsvegi. „Stefnan er tvöföldun,“ segir Sturla en bendir á að slík fram- kvæmd taki um fjögur ár og kosti 5-7 milljarða króna. Það sé því á endanum undir Alþingi komið hvort peningar fáist til verksins. „Ég tel óhjákvæmilegt að gera það sem við getum til að aðskilja akst- ursstefnur og breikka veginn þar sem það er hægt á sama tíma og við vinnum að því að tvöfalda allan veginn.“ Til athugunar er hvort ráðast ber í tvöföldun Suðurlandsvegar undir formerkum einkafram- kvæmdar eða með hefðbundnum hætti. Einkaframkvæmd gæti orðið til að hraða verkinu en hún sé dýrari. Sturla segir verkfræðiúttekt Línuhönnunar sýna að afkastageta og öryggi svonefnds 2+1 vegar sé nægileg til næstu ára en krafa margra, meðal annars sveitar- stjórnarmanna, sé tvöföldun. Hann sé sama sinnis. Verstu kaflarnir lagaðir strax Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að sjúklingar og aðrir geti treyst því að ekki séu hagsmunatengsl milli geðlækna og lyfjafyrirtækja. Hjálmar Árnason Framsóknar- flokki gerði slík tengsl að umræðuefni á Alþingi í gær vegna frétta Morgunblaðsins af aðkomu lyfjafyrirtækis að jólafundi Geðlæknafélagsins. Sagði hann mikilvægt að línur væru hreinar þar sem miklir hagsmunir væru í húfi. Siv tók undir hvert orð og sagði mikilvægt að skorið væri á öll slík hagsmunatengsl. Vill höfða til siðferðis lækna Á að tvöfalda Suðurlandsveg? Bakar þú smákökur fyrir jólin? 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.