Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 20
nær og fjær
„ORÐRÉTT“ Annasamur tími hjá prestum
Pálmar Vígmundsson safnaði
1.000 krónum á tombólu fyrir
nokkru til styrktar Rauða kross-
inum. Pálmar, sem er 10 ára gam-
all, vonar að peningurinn komi
fátækum börnum í útlöndum til
góða.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Pálmar heldur tombólu en í
fyrsta skipti sem Rauði krossinn
nýtur ágóðans. Hann útilokar
ekki frekara tombóluhald í fram-
tíðinni til styrktar góðum mál-
efnum.
Árni loks fundinn
saklaus
Er ekki meira minna?
195,-
2 rúnstykki, 1 egg, skinka, ostur,
smjör, sulta og heitur drykkur
Þú átt allt gott skilið!
MORGUNMATUR
mánudaga - laugardaga
Veitingastaður IKEA
opnar kl. 9:00
verslun opnar kl. 10:00
Fólk er fólk
Í handbók hins hugmynda-
snauða pistlahöfundar,
Freakonomics, segir frá
könnun sem var gerð á
stefnumótasíðum í Banda-
ríkjunum. Þar kemur í ljós
að efnahagur karla skipt-
ir hvað mestu máli fyrir
konur en fyrir karla skiptir
útlit mestu máli. En á það
sama við á Íslandi?
Á einkamal.is, stærsta íslenska
stefnumótavefnum, er notendum
skipt niður eftir aldri, kyni, hæð
og þyngd, en fólk er ekki beðið um
að tilgreina starf sérstaklega. Af
200 nýjustu auglýsingum eru þess
þó mörg dæmi að konur forvitnist
um fjárhag: „Er að leita af góðum
manni í almennilegri stöðu“ (kvk.
31 árs), „Er að leita að myndarleg-
um, einhleypum, vel stæðum eldri
manni“ (kvk. 22 ára). „Ég er
hugguleg og sæt, fjárhagslega
sjálfstæð, heiðarleg og skemmti-
leg. Leita eftir því sama“ (kvk. 50
ára). Konur minnast einnig oft á
eigið starf: „Ég er hress og lífs-
glöð kona í góðu starfi“ (kvk. 45
ára), „Ég hef óskaplega gaman af
vinnunni minni“ (kvk. 28 ára), í
góðri vinnu og stend á eigin fótum
(kvk. 29 ára), Er í góðu og skemmti-
legu starfi sem bókari hjá skatt-
stjóra. Hann rúlar.“ (kvk. 31 árs). Í
einu tilfelli er sagt að fjárhagur
væntanlegs maka skipti ekki máli:
„Er vel menntuð í ágætu starfi,
ekki að leita að fyrirvinnu“ (kvk.
43 ára).
Þó að karlmenn miði frekar við
aldur en fyrri eða núverandi störf
kvenna eru þeir duglegir að til-
greina eigin vinnusemi eða fjár-
hag: „skemmtilegur, hress og vinn
dálítið mikið“ (kk. 20 ára), „ein-
hleypur og barnlaus og ekki í neinu
rugli af neinu tagi (nema þá kannski
að ég vinn of mikið)“ (kk. 52 ára).
„Áhugamál eru margvísleg, er
fjárhagslega sjálfstæður“ (kk. 33
ára,“ „Er með góða menntun/vinnu,
ákveðinn“ (kk. 31 árs,) „Flottur á
flottum launum að leita að flottri
píu til að eyða laununum sínum í“
(kk. 45 ára), „Ég er metnaðarfullur
í góðri vinnu“ (kk. 28 ára) „nokkuð
myndarlegur, stunda íþróttir, er
vel stæður með sjálfstæðan rekst-
ur“ (kk. 56 ára).
Aðeins eitt dæmi er um að
maður tilkynni sérstaklega að hann
hafi áhuga á fjárhag konunnar:
„Óska eftir að kynnast ríkri konu
með hjartagalla“ (kk. 30 ára). Hér
er þó mögulega um einhvers konar
grín að ræða.
Aðeins eru tvö dæmi þess að
leitað sé eftir ákveðnum starfs-
greinum: „óska eftir barmgóðum
löggildum dómtúlki og skjalaþýð-
anda með skyndikynni í huga“ (karl
28 ára), „væri alveg til í að losna
frá mínum ríka og yfirlætisfulla
eiginmanni, hef áhuga á bókum og
sérstaklega elska ég bókasafns-
verði á aldrinum 50-70“ (kvk 23
ára). Þó má velta því fyrir sér hvort
hér sé aftur einhver gamansemi á
ferð.
Eitt dæmi er um að maður aug-
lýsi starfstitil sinn beint: „halló ég
er 52 ára karlmaður og er að leita
eftir skyndikynnum við konur á
öllum aldri... ég vinn sem bóka-
safnsvörður og finnst það mjög
skemmtilegt“ (kk. 52 ára). Og ætti
hann líklega að hafa samband við
þá hér að ofan.
Af tvö hundruð nýlegustu aug-
lýsingunum eru störf þó sjaldan
tilgreind, en oftar eftir því sem
fólk eldist. Oftar er minnst á
menntun. Leitarorðið menntun
skilar 169 körlum en 125 konum, og
er hún þá annaðhvort í boði eða
sóst eftir aðila sem býr yfir henni.
Á hinn bóginn vilja allir þeir 200
karlar sem koma upp fallegar
konur, og það sama gildir um konur
og fallega menn. Virðist það því
eiga við enn sem komið er að stétta-
skipting sé minni hérlendis en á
einkamálavefjum í Bandaríkjun-
um, nema þá stéttaskipting fegurð-
arinnar, og leggst hún jafnt á bæði
kyn.
Sumar eru þó andlega sinnaðri.
Til dæmis vill 36 ára kona kynnast
„sætum og myndarlegum frelsuð-
um karlmanni á aldrinum 34-40 ára
sem á leiðsögn heilags anda í lífi
sínu og elskar að vera í áætlun og
vilja Guðs.“
Óskar eftir að kynnast
ríkri konu með hjartagalla