Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 24
greinar@frettabladid.is Rúmlega fimmtug kona þurfti að hætta störfum sökum veikinda fyrir fjórum árum. Hún er öryrki. Hún lifir því af trygg- ingum sem koma annars vegar frá almannatryggingum og hins vegar úr lífeyrissjóðnum sem tíu prósent af launum hennar runnu til á meðan hún gat stundað vinnu, líklega í tuttugu til þrjátíu ár Almannatryggingar eru hluti velferðarkerfisins sem skattpen- ingarnir okkar standa undir. Almennt samkomulag hefur verið hér á landi um að við viljum búa í velferðarþjóðfélagi. Ég hef heyrt það sagt að lífeyrissjóðirnir séu galdurinn á bak við útrásina og hina miklu fjármálastarfsemi sem er hér á landi. Lífeyrissjóðirnir okkar munu jafnvel stærri en olíusjóður- inn Norðmanna og er hann allstór. Konan fékk bréf frá lífeyris- sjóðnum sínum fyrr á árinu. Bréfið færði henni skemmtilegar fréttir og var í leiðinni svolítið montbréf sem stofnunum þykir gjarnan gaman að senda út eða birta. Af því að stjórn sjóðsins hafði staðið sig svo vel í störfum sínum var ávöxtun lífeyrissjóðsins svo góð að greiðslur til konunnar úr sjóðnum mundu hækka um 7 prósent, sagði í bréfinu. Ánægjulegar fréttir – ekki satt? Vissulega var þetta ánægjulegt fyrir konuna, en svo kom að framkvæmdinni. Þegar almanna- tryggingarnar okkar komust að því að greiðslur til konunnar höfðu hækkað þá lækkuðu greiðslurnar til hennar úr þeim sjóðum sem hækkuninni nam, konan skildi þetta ekki og ég skil þetta ekki. Það virðist búið að ákveða það að þeir sem búa við skerta starfsgetu hafi enga möguleika til hækka í tekjum, því það virðist búið að sameina almannatryggingakerfið og lífeyriskerfið í eitt. Svo er sagan af hjónunum sem ætluðu að láta laga hjá sér þakið. Frúin átti 400.000 kr. í séreignalíf- eyrissjóði og ætluðu þau hjónin að nota þessa peninga til þakviðgerða í stað þess að taka lán á þeim vondu vaxtakjörum sem bjóðast hér á landi. Þegar búið var að taka af skatta og lækka greiðslur til hennar og eiginmannsins úr almannatryggingum þá áttu þau eftir 9.000 kr – ég endurtek níu þúsund krónur. Aftur virðist sem lífeyrissjóðir og jafnvel þeir sem kallaðir eru séreignasjóðir og almannatryggingar séu orðin eitt og hið sama. Ég þykist hafa fylgst frekar vel með á vettvangi þjóðmálanna, ekki hafði ég samt gert mér grein fyrir þessu. Viðbrögð stjórnmálamanna við þessari lífreynslu fólksins voru líka svolítið skrýtin fannst mér. Þeir komu allir af fjöllum, enginn þeirra virðist frekar en við hin hafa áttað sig á hvernig þetta virkar, enda þurfa þeir ekki að leggja í neina séreignasjóði, þakka skyldu þeir sjálfum sér. Lífeyrir þeirra er gulltryggður, engin óvissa á þeim bæ. Loks er það sagan af bæjar- stjóranum sem ákvað að fara á þing. Það verður sko ekkert skert af greiðslum sem hann fær úr opinberum sjóðum. Enda maðurinn hvorki gamall né býr hann við skerta starfsorku. Hann fór í prófkjör og eftir því sem ég kemst næst gat hann sinnt því ati í vinnunni, eins og reyndar allir stjórnmálamenn. Honum gekk vel í prófkjörinu og allar líkur eru á því að hann fari á þing eftir kosningarnar til Alþingis í vor. Hann ætlar að segja upp vinnunni sinni, í staðinn ætlar hann að verða formaður bæjar- stjórnarinnar held ég, og hann ætlar í kosningabaráttu. Af fréttum að skilja ætlar hann meðan á þessu stendur að þiggja rúma milljón á mánuði úr opinber- um sjóðum Akureyringa. Honum finnst það sjálfsagðasti hlutur í heimi af því samningarnir hans eru þannig. Biðlaun eru réttindi fólks ef það missir skyndilega vinnuna. Þegar fólk missir skyndilega pólitískan stuðning og um leið vinnuna má vel vera sjálfsagt og eðlilegt að það fái biðlaun. Þegar fólk á hinn bóginn segir upp vinnunni sinni af því að það ætlar að fara að gera eitthvað annað á það ekki rétt á biðlaunum í mínum huga. Svo ég tali nú ekki um ef það ætlar að vera í annarri vinnu á meðan. Siðferði þeirra sem gegna opinberum störfum er hins vegar orðið þannig að þegar gerðar eru athugasemdir af því tagi sem ég hef gert hér, þá segja opinberu starfsmennirnir með þjósti að það sé alltaf til fólk sem vill upphefja sjálft sig með rausi af þessu tagi. Ég mun halda áfram að rausa, ég lofa því. Auk þess legg ég til að eftir- launaósóminn verði afnuminn með lögum. Misjöfn kjör meðal þjóðarinnar BRESTIR Í BROOKLYN PAUL AUSTER „Stútfull af skemmtilegum sögum …“ Blaðið „Ef þú vilt láta þér líða verulega vel skaltu lesa Bresti í Brooklyn“ Silja Aðalsteinsdóttir, TMM „grípandi og skemmtileg mannlífs- könnun sem ferðast upp og niður allan tilfinningaskalann...“ Morgunblaðið „Ég var að leita að rólegum stað til að deyja á. Einhver mælti með Brooklyn ... „ÁHRIFARÍK OG HEILLANDI SKÁLDSAGA EFTIR EINN VIRTASTA OG VINSÆLASTA HÖFUND BANDARÍKJANNA“ Þýðandi: Jón Karl Helgason Þ að er ekki sjálfgefið að kjósendur styðji sama stjórn- málaflokkinn aftur og aftur. Hins vegar hafa þeir sem vilja sjá frelsi einstaklingsins sem mest og lágmarka ríkisafskipti ekki haft um annan stjórnmálaflokk að velja í kosningum en Sjálfstæðisflokkinn. Forystumenn flokksins hafa líka unnið í takt við þá hugmyndafræði frá árinu 1991. En hvaða mynd blasir nú við þeim kjósendum sem vilja sjá fram haldið á sömu braut? Að hvaða málum hefur Sjálfstæðis- flokkurinn staðið undanfarna mánuði í meirihlutasamstarfi við Framsóknarflokkinn? Fyrst ber að nefna tilhneigingu til að ríkisvæða stjórnmálin. Hækka á ríkisstyrki til stjórnmálaflokka um leið og einstakling- um eru sett takmörk um styrki til þeirra. Er réttlátt að einstakl- ingar greiði fyrir starfsemi stjórnmálaflokka sem halda frammi skoðunum sem eru jafnvel andstæðar þeirra eigin lífsskoðun? Er sanngjarnt að ný pólitísk öfl þurfi að berjast í kosningum við rík- isstyrkta stjórnmálaflokka? Á Alþingi er til meðferðar frumvarp um RÚV sem miðar að því að stórefla ríkisrekinn fjölmiðil í samkeppni við einkarekna fjölmiðla. Áður voru gerðar tilraunir til að setja takmarkandi lagareglur um eignarhald á frjálsum fjölmiðlum sem myndi hafa íþyngjandi áhrif á rekstur þeirra. Er það hluti af hugsjónum sjálf- stæðismanna um frjálsa fjölmiðla, að stórefla ríkisfjölmiðil og veikja þá einkareknu? Þá hefur verið ákveðið að sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli taki yfir ákveðinn hluta af öryggiseftirliti, sem áður var í höndum Securitas og Öryggismiðstöðvar Íslands. Engar skýringar hafa verið gefnar aðrar en að opinberir löggæslumenn séu betur til starfans fallnir. Með þegjandi samþykki ríkisstjórnarinnar keypti ríkisfyrir- tækið Íslandspóstur prentsmiðjuna Samskipti. Óþarfi er að benda á að fjölmörg einkafyrirtæki hafa sinnt prentþjónustu á Íslandi í áratugi. Stutt er síðan Íslandspóstur keypti hlut í hugbúnaðarfyr- irtækinu Modernus. Eru þessi dæmi einkennandi fyrir stjórnmálamenn sem vilja draga úr opinberum umsvifum í atvinnulífinu? Ríkisstjórnin hefur einnig gengið harkalega fram gagnvart landeigendum víða um land í þjóðlendumálinu svokallaða. Mark- miðið er að eyða óvissu um mörk eignarlanda. En væri ekki heppi- legra að fara fram af meiri hógværð þegar um jafnviðkvæmt deilumál og eignarréttindi er að ræða? Ríkisvæðingin má ekki ganga of langt. Rétt er að minna á að lækkun skatta og sala ríkisfyrirtækja hafa haft verulega þýðingu fyrir þróun lífskjara í landinu. Það er líka sjálfsagt mál að lækka skatta þegar tekjur ríkissjóðs hafa vaxið jafnmikið og raun ber vitni á undanförnum árum. Aðhald í útgjöldum hins opinbera hefur hins vegar verið ábótavant. Sú gagnrýni er ekki eingöngu sett fram á efnahagslegum forsendum. Og nú er gerð tillaga um að auka útgjöld um fjórtán milljarða frá því sem ákveðið var í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa í mörgum kosningum náð að toga kjósendur á miðjunni til fylgis við sig. Breytist það er hætta á að hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins skili auðu í næstu alþingiskosningum. Það er ekki sjálfgefið að kjósendur styðji sama stjórnmálaflokkinn aftur og aftur. Að skila auðu Mikill hiti hefur verið í umræðum um vernd og nýtingu auðlinda í íslenskri náttúru. Oftast snýst hún um endanlega nið- urstöðu í einstökum deilumálum. Það hvort virkja eigi jökulá, sökkva gróðri í dal, reisa mannvirki við náttúruperlu, veiða villt dýr eða láta allt saman vera. Minni áhugi hefur verið á skipulaginu. Hvort það sé til þess fall- ið að ná markmiðinu um sátt og jafnvægi í vernd og nýtingu náttúrunnar. Tilraunir til sáttar hafa flestar falið í sér hugmynd- ir um miðstýringu. Að tiltekinn hópur sérfræðinga, hagsmunaaðila, stjórnmála- og áhugamanna setjist hringinn í kringum borð og tali saman þar til niður- staða fáist um ramma sem sjónarmið allra rúmist innan, sem er tæplega raunhæft í miðstýrðu kerfi. Í náttúrunni felast stórkostleg tækifæri fyrir Íslendinga. Við lifum á tímum þar sem við sjálf og vel efnum búnir heimshornaflakkarar sækjumst eftir að njóta náttúrufegurðar og meðvitaðir neytendur um allan heim gera auknar kröfur um hvað þeir láta ofan í sig og hverjum þeir tengjast. Spurningin er bara þessi: Verða þau tækifæri sem blasa við okkur best nýtt ef hið opinbera er bæði upp- hafið og endirinn, þar sem aðalatriðið er hver hefur mest pólitísk ítök til að ná fram þóknanlegri niðurstöðu? Skapar skipulag eignarréttar og frjálsra viðskipta ef til vill meira jafnvægi, skynsamlegri lausnir og betri sátt? Er ef til vill heppilegra stjórnin sé í höndum eigenda, hvort sem þeir eru bændur, fyrirtæki í öðrum rekstri, nátt- úruverndarsamtök eða aðrir, sem semji sín á milli í frjálsum samningum? Getur verið að það auki líkur á málamiðlunum og samvinnu, auki fjölbreytni og tilrauna- starfsemi, ef skapaður er farvegur fyrir viðskipti í stað pólitísks lobbíisma? Hér gætu legið gífurleg tækifæri, ekki síst fyrir náttúruverndarsinna, sjálf- sagt meiri en þeir gera sér grein fyrir. Á morgun, miðvikudag, mun RSE spyrja þessara spurninga á ráðstefnu um eignarrétt á náttúruauð- lindum (sjá nánar www.rse.is): Hver á íslenska nátt- úru? Hvort er heppilegri ríkiseign eða einkaeign? Hvernig hefur einkaframtak nýst við náttúruvernd? Ráðstefnan fer fram á Grand hóteli og hefst kl. 13. Fólk er hvatt til að kynna sér þessar hugmyndir með jákvæðum og opnum huga. Höfundur er framkvæmdastjóri Rannsóknarmið- stöðvar um samfélags- og efnahagsmál (RSE) Hver á íslenska náttúru?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.