Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 74

Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 74
Leikir kvöldsins: Stund sannleikans er runninn upp hjá Evrópumeistur- um Barcelona. Takist þeim ekki að leggja Werder Bremen í kvöld er liðið úr leik í meistaradeildinni. Málið er ekki flóknara en það. Það yrði mikið áfall fyrir Barcelona að falla úr keppni á þessu stigi og ekki síst fjárhagslega enda verður liðið af gríðarlegum tekjum takist því ekki að komast í sextán liða úrslit. Margir vilja kenna erfiðu und- irbúningstímabili um að gengi Barca hafi ekki verið sem skyldi í vetur. „Undirbúningstímabilið hefði getað verið betra. Það var mikið um flug, margir leikir og hreinlega of fáir klukkutímar fyrir marga leikmenn liðsins að hvílast,“ sagði varnarmaðurinn Rafael Marquez en Samuel Eto´o hefur játað að hafa tekið inn svefn- pillur svo hann næði að hvílast á undirbúningstímabilinu. Ekki verður hlustað á slíkar afsakanir í kvöld. Brasilíumaðurinn Edmil- son segir að um sé að ræða úrslita- leik. „Við höfum allt að vinna í þess- um leik. Við eigum að vera nógu góðir til að vinna og við verðum líka að passa varnarleikinn því það væri hrikalegt að hleypa marki inn. Við lítum á þennan leik sem úrslitaleik og við megum ekki tapa. Það er ekki flóknara en það,“ sagði Edmilson en þess má geta að Ronaldinho var hvíldur um helg- ina svo hann yrði ferskur í kvöld. Það mun mikið mæða á hinum 24 ára gamla markverði Bremen, Tim Wiese, en hann gerði hrikaleg mistök gegn Juventus á síðustu leiktíð sem gerðu það að verkum að Bremen féll úr leik. „Ég svaf illa um nóttina en málið var grafið og gleymt daginn eftir,“ sagði Wiese. „Ég held við vinnum þenn- an leik 1-0. Að sjálfsögðu spá fáir okkur góðu gengi í þessum leik en við teljum okkur vera jafngóða og Barcelona. Við eigum möguleika.“ Evrópumeistararar Barcelona verða að vinna Werder Bremen á heimavelli í kvöld ætli liðið sér í sextán liða úrslit meistaradeildarinnar. Ef Barcelona kemst ekki áfram verður það í fyrsta sinn sem meistararnir komast ekki áfram. Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, var allt annað en sáttur við Portúgalann Cristiano Ronaldo eftir leik Boro og Man. Utd um helgina. United fékk víti í leiknum og sást greinilega á myndabandsupptökum að ekki var um neina snertingu að ræða. Hið sama gerðist síðar í leiknum. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ronaldo leikur þennan leik. Markvörðurinn okkar gerði allt til að forðast snertingu en niður fór drengurinn eina ferðina enn,“ sagði Southgate svekktur. „Hann er svindlari og þetta var ekkert víti.“ Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, stendur með sínum manni og segir að vítið hafi verið réttilega dæmt. Ef markvörður Boro hefði ekki verið fyrir hefði Ronaldo skorað. Ronaldo er „raðdýfari“ David Beckham sagði við spænska fjölmiðla í gær að hann væri ekki á förum til Bandaríkj- anna eins og sumir fjölmiðlar hafa haldið fram síðustu vikur. Samningur Beckhams við Real Madrid rennur út næsta sumar og hann virðist ekki vera nálægt því að skrifa undir framlengingu á honum. Í janúar verður honum síðan frjálst að semja við önnur félög. „Heimspressan er alltaf að tala um hitt og þetta. Staðreyndin er sú að ég er ánægður hjá Madrid og er ekki að hugsa um að fara til Bandaríkjanna,“ sagði Beckham sem lék seinni hálfleik með Real á sunnudag gegn Bilbao. „Það var gaman að spila á ný. Ekki var verra að vinna og mér leið vel á miðri miðjunni.“ Ekki á leið til Bandaríkjanna Fyrirliði Manchester United, Gary Neville, hefur gríðarlega trú á sínu liði í vetur og telur það geta farið alla leið í ensku úrvalsdeildinni. „Ég hef þá tilfinningu að við munum ekki misstíga okkur. Leikmenn eru gríðarlega einbeittir og ákveðnir,“ sagði Neville en Chelsea hefur haft yfirburði í ensku deildinni síðustu tvö ár. „Við erum ánægðir með spilamennsku okkar. Okkur finnst við hafa þróað okkar leik síðustu ár og hefur gengið á ýmsu á þeim tíma. Í fyrra náðum við ekki góðum úrslitum í jöfnum leikjum en það er ekki svo lengur.“ Munum ekki misstíga okkur Juventus komst um helgina á topp Serie B þrátt fyrir 1-1 jafntefli gegn Genoa. Þetta er stór áfangi hjá félaginu sem var sent niður um deild með skömm síðasta sumar. Titlar voru einnig teknir af félaginu. Juventus byrjaði Serie B með 17 stig í mínus en sú refsing var minnkuð í 9 mínusstig eftir að tímabilið hófst. Juventus hefur ekki tapað leik í Serie B í vetur enda liðið ógnarsterkt þar sem fjöldi sterkra leikmanna hélt tryggð við það og þar á meðal leikmenn úr heimsmeistaraliði Ítala síðan í sumar. Á hraðri leið upp í Serie A Fátt virðist geta komið í veg fyrir að enska úrvalsdeildar- félagið Liverpool verði selt fjár- festingafyrirtæki á vegum stjórn- valda í Dubai, einu ríkjanna í sameinuðu arabísku furstadæm- unum. Fyrirtækið, Dubai Inter- national Capital, staðfesti í gær að það ætti í viðræðum við stærstu eigendur Liverpool um kaup á á meirihluta hlutabréfa í félaginu upp á 60 milljarða króna eða 450 milljónir punda. „Við vonumst til að ná sam- komulagi sem gerir okkur kleift að fjármagna þau verkefni sem þarfir félagsins gera ráð fyrir,“ sagði Sameer al-Ansari, fram- kvæmdastjóri DIC. Í samningnum mun vera kveðið á um að 200 milljónum punda verði eytt til að byggja nýjan 60 þúsund sæta leikvang auk þess sem skuld- ir verða niðurgreiddar og sjóðir til leikmannakaupa stækkaðir. Hafa fulltrúar fyrirtækisins verið að skoða bókhald félagsins. Landshöfðingi Dubai, Mohammad bin Rashid Al Makt- oum, er talinn aðalmaðurinn á bakvið tilboðið en hann er einnig forsætisráðherra og varaforseti Sameinuðu arabísku furstadæm- anna. Hann er mikill veðhlaupaá- hugamaður og á marga hesta og hestabú. Mohammad er 57 ára gamall, á tvær eiginkonur og sextán börn; sjö syni og níu dætur. Yfirtaka yfirvofandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.