Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 81
Ein er sú stétt manna sem algjörlega hefur gleymst í
umræðunni. Íslenskir njósnarar
sem alla daga vörðu hagsmuni
lands og þjóðar með því að liggja
á símalínum vandræðafólks og
þeirra sem yfirvöld töldu að gætu
orðið til vandræða.
hlerararnir sem
aldrei gátu borið sig upp vegna
starfsumhverfis síns eða kjara-
mála yfirhöfuð. Vinnan algjört
leyndó, tilvera þeirra kannski
líka. Ég sé þá í anda mæta í vinn-
una þögla og þjakaða, kinka
kannski kolli til kollega á næsta
bás í gluggalausri kompunni, van-
ari að hlusta en tala. Setjast
mædda við slitin segulbönd á
aflóga skólaborðum og láta á sig
heyrnartólin. Byrja að bíða. Og
bíða.
á neglurnar vaxa, glugga
í blöðin. Grípa kannski í prjóna til
að láta tímann líða hraðar. Nú
erum við að tala um hlerara kalda
stríðsins og þá var ekki búið að
finna upp heimilistölvur og inter-
net svo ekki gátu þeir dundað við
blogg. Enda ekkert sem þeir máttu
blogga um. Um hádegisbil hring-
ir síminn loksins hjá skotmarkinu
og fiðrildin flögra um í maga
hlerarans þegar hann grípur
penna og blokk og hlustar af öllum
kröftum. En þá er það bara amma
sem vildi heyra í barnabarninu
um hvernig gekk í stærðfræði-
prófinu.
kaffileytið telur hlerarinn
saman niðurstöður dagsins. Fyrir
utan ömmuna sem hringdi aftur
og nú til að láta vita að ættarmót-
inu væri frestað um eina helgi, er
afraksturinn rýr. Samtals fjögur
símtöl út, fimm inn og þar af eitt
skakkt númer. Læknirinn ætlar
að símsenda augndropana í apó-
tekið, Sigga frænka aftur dottin í
það og hringir í alla til að röfla.
Ekki múkk um skipulögð ólæti á
almannafæri, engin launráð um
mótmæli við sendiráð eða
skemmdarverk á eignum ríkis-
ins. Kannski yrði þetta skárra á
morgun.
til vill eru íslenskir hlerarar
að mestu atvinnulausir núorðið,
að minnsta kosti vilja ráðandi
yfirvöld gera óskaplega lítið úr
tilvist þeirra. Kannski eru þeir
líka bara orðnir rafrænir, símtöl
okkar allra skönnuð með tölvu-
tækni og þau grunsamlegu sjálf-
krafa rannsökuð nánar. Hinir
einu sönnu íslensku hlerarar
fallnir í gleymsku og dá og eng-
inn vill gangast við þeim. Laun
heimsins eru sannarlega van-
þakklæti.
Laun heimsins
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alla daga
- Lifið heil