Fréttablaðið - 30.12.2006, Side 1
56%
37%
42%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006.
Laugardagur
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
20
10
50
40
0
60
Smáauglýsingasími550 5000
Jóel Kristinn Pálsson var vanur að lenda í slysi um
áramót og því fastagestur uppi á slysavarðstofu á
gamlárskvöld.
Þegar Jóel er spurður hvað sé það fyrsta sem honum dettur
í hug í sambandi við áramótin er það slysavarðstofan. „Það
varð einhvern veginn fastur liður hjá mér um áramót að
fara upp á slysavarðstofu,“ segir Jóel. „Eitt árið datt ég og
annað fékk ég eitthvað í augað og það þriðja fékk ég gat á
hausinn.“
Eitthvað hefur Jóel róast með árunum og hefur slysun-
um fækkað í takt við það. Vaknar þá sú spurning hvort þessi
fækkun sé samfara minnkandi áhuga á flugeldum og tengdu
fikti. „Ég var alltaf mikið fyrir flugelda þegar ég var yngri
en það voru ekki þeir sem ollu slysunum,“ segir Jóel sem
kann enga skýringu á fyrri áramótaklaufaskap.
Jóel á tvo drengi með konu sinni Bergþóru Guðnadóttur
og með þeim hefur minnkandi áhugi á flugeldunum vaknað
aftur. „Sá eldri er orðinn átta ára og hann heimtar stærsta
flugeldapakkann í ár,“ segir Jóel. „Ég fann alveg fyrir því í
fyrra að sprengiáhuginn kviknaði aftur gegnum son minn.
Þetta er svolítið eins og með jólin. Maður upplifir þau aftur
upp á nýtt gegnum börnin sín.“Jóel ætlar sér að eyða áramótunum á Ægisíðunni en það
hefur hann gert allt frá barnæsku. „Við röltum út að brennu
og þar hittir maður mikið af fólki sem maður þekkir,“ segir
Jóel. „Svona eru þessir vesturbæingar. Þeir snúa alltaf
aftur.“
Er óheppinn
á áramótum
í aldanna skaut
[ SÉRBLAÐ UM ÁRAMÓTIN – LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 ]
HATTUR Á HVERN HAUSEngin eru áramót án fallegs höfuðskrauts SJÁ BLS. 6
ÁRAMÓTIN MEÐFJÖLSKYLDUNNIAlfa Dröfn Jóhannsdóttir SJÁ BLS. 10
EFNISYFIRLIT
ÁRAMÓTAÚTSÝNISSTAÐIRBesta sætið í ReykjavíkBLS. 2
DÝRIN UM ÁRAMÓTINHræddir ferfætlingar BLS. 4
MEÐHÖNDLUN FLUGELDAÖryggið ofar öllu BLS. 4
KJÓLL OG HVÍTT
Áramótaklæðnaður BLS. 6
Engin áramót án
skemmtilegs höfuðfats
Þrisvar sinnum fleiri sitja nú í fang-
elsum hér á landi vegna fíkniefnabrota en
fyrir tólf árum. Árið 1994 afplánuðu 34 dóma
vegna slíkra brota, eða 10,7 prósent heildar-
hlutfalls allra fanga það árið. Í bráðabirgða-
tölum frá Fangelsismálastofnun fyrir árið
2006 kemur fram að fjöldi þeirra sem sitja
inni fyrir slík brot í dag sé 110 manns, eða
33,6 prósent heildarhlutfalls fanga.
Dómar í fíkniefnamálum þyngdust mjög
frá því að fíkniefnalöggjöfin var sett og fram
til 2002 en frá 2003 hafa þeir heldur mildast.
Refsiramminn vegna fíkniefnabrota hefur
verið hækkaður úr tíu árum í tólf.
Lagt hefur verið hald á meira magn fíkni-
efna á árinu sem er að líða en nokkru sinni
fyrr. Tæplega þrettán kíló af kókaíni hafa verið
gerð upptæk og rúmlega 46 kíló af amfetamíni.
Þá hefur hlutfall kókaínneytenda sem leita sér
hjálpar á Vogi tuttugufaldast á örfáum árum
og amfetamínfíklar í meðferð þar aldrei verið
fleiri.
Að sögn Valtýs Sigurðssonar, forstjóra
Fangelsimálastofnunar, er þessi þróun svipuð
og sú sem er að eiga sér stað á hinum Norður-
löndunum og víða annars staðar. „En það er
ekki nóg að dæma menn í fangelsi. Ekki nóg
að taka þá bara úr umferð. Þess vegna höfum
við lagt áherslu á það að reyna að sinna með-
ferðum sem fyrst þegar menn koma í afplán-
un.“
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags-
fræði, efast um að áherslur í baráttunni gegn
fíkniefnum séu réttar. „Það fylgir því auðvit-
að mikill kostnaður fyrir samfélagið að vera
með þunga fangelsisdóma yfir borgurum
sínum í ríkum mæli. Það er að sjálfsögðu
alveg spurning hvort ekki sé hægt að verja
því fé öðruvísi til að takast á við fíkniefna-
vandann í samfélaginu, því það blasir við að
fíkniefnin eru ennþá á markaðnum.“
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra,
segir að hert löggæsla og aukið eftirlit hafi
leitt til þess að fleiri náist en ella og að hertar
refsingar leiði síðan til þess að fleiri séu
dæmdir til lengri setu í fangelsi. „Mestu
skiptir að búa þannig um hnúta að ná til fólks
á undan þeim sem leitast við að gera það að
fíklum. Í því efni duga forvirkar aðgerðir
best hvort sem er á vegum lögreglu eða ann-
arra aðila. Markmið refsivörslu á að vera
betrun og að henni verður best staðið innan
fangelsa af þaulreyndu fólki og menntuðu.“
Þrefalt fleiri sitja í fangelsi
vegna fíkniefnabrota
Fjöldi þeirra sem sitja í fangelsi hér á landi vegna fíkniefnabrota hefur þrefaldast á síðustu 12 árum. Það er
svipuð þróun og á Norðurlöndunum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir forvirkar aðgerðir vegnast best.
Mikil fjölgun hefur
orðið á erlendum ferðamönnum
sem koma til Íslands í kringum jól
og áramót. Á nýársnótt munu 3.300
ferðamenn dvelja hér.
Að sögn Ernu Hauksdóttur,
framkvæmdastjóra Samtaka
ferðaþjónustunnar, hefur þeim
fjölgað jafnt og þétt sem kjósa að
dvelja á Íslandi yfir jól, áramót
eða á milli hátíða. Ber þar
markaðsstarf ferðaþjónustunnar
ávöxt.
Um 1.200 ferðamenn voru hér
um jólin og fjölgaði þeim um 50
prósent á milli ára. Fjölgun þeirra
sem verða hér yfir áramót nemur
um tíu prósentum frá í fyrra.
„Hvergi í heiminum er að finna
viðlíka flugeldasýningu og hér og
það hefur spurst út meðal,“ segir
Erna.
Dvalið er í velflestum her-
bergjum helstu hótela og gisti-
heimila höfuðborgarinnar um ára-
mót. Dagskrá flestra gestanna er
með svipuðu móti. Snæddur verð-
ur hátíðarkvöldverður og ekið
með hópbílum á milli brenna.
Þeir útlendingar sem hér dvelja
um áramótin koma víða. Erna
segir að samkvæmt hefð verði hér
fjöldi Breta, Bandaríkjamanna,
Þjóðverja og Skandinava en
athygli veki að Rússar og Japanar
séu einnig fjölmennir.
Margir Rússar og Japanar
Opið 10–18
í dag
Fæddi dóttur á
fimmtudag
Dönsk og sænsk
yfirvöld hafa nú miklar áhyggjur
af Eyrarsundsbrúnni því sprung-
ur hafa myndast í steinsteypunni
og steypuklumpar eru farnir að
hrynja í sjóinn. Hafa áhafnir
skipa og báta verið varaðar við að
sigla undir skemmd svæði
brúarinnar, því óttast er að
steinsteypubútar geti fallið á skip
og valdið slysum eða miklu tjóni.
Við athugun nýverið kom í ljós
að sprungurnar myndast í
steypuna þegar lestir fara yfir
brúna.
Viðgerð mun hefjast 8. janúar
og talið er að hún muni taka
minnst hálft ár, segir í frétt
sænska blaðsins Dagens Nyheter.
Brúin, sem opnuð var árið
2000, er tæplega sextán kílómetra
löng og tengir Danmörku við
Svíþjóð.
Hrynur úr
Eyrarsundsbrú