Fréttablaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 40
Himinninn lýsist upp um ára-
mót þegar marglitir flugeldar
skjótast á loft. Við kveðjum
það gamla og höldum inn í nýtt
ár með fögur fyrirheit. Flug-
eldasalan er helsta fjáröflun-
arleið Flugbjörgunarsveitar
Reykjavíkur og salan eykst
með hverju ári sem líður.
Flugbjörgunarsveitin hefur staðið
vörð um öryggi landsmanna í yfir
55 ár. Allt starf sveitarinnar er
unnið í sjálfboðastarfi þar sem
stærsta fjáröflunarleið sveitar-
innar er flugeldasala sem hefst á
morgun.
„Flugeldasalan er órjúfanlegur
hluti af jólahátíðinni fyrir okkur
sem erum í Flugbjörgunarsveit-
inni og við höfum selt síðan 1998,“
segir Sóley Guðmundsdóttir, sölu-
stjóri og liðsmaður leitar og
sjúkradeildar sveitarinnar. Sóley
hefur nýlokið tveggja ára nýliða-
prógrammi og varð fullgildur
meðlimur í vor. Flugeldasalan
ásamt öðrum fjáröflunarleiðum er
forsenda starfs sveitarinnar svo
Sóley vonast til að landsmenn
leggi leið sína til hennar í ár að
kaupa flugelda. „Ágóði af flug-
eldasölunni fer meðal annars í
rekstur húsnæðis, þjálfun liðs-
manna og bílaflota til að nefna fátt
eitt,“ segir Sóley. Flugbjörgunar-
sveitin er með öflugt nýliðastarf
þar sem byrjendur eru á fjöllum
og í ferðum aðra hvora helgi ásamt
því að sækja fræðslu og fyrir-
lestra. Það tekur á bæði andlega
og líkamlega að vera í leitar- og
björgunarstarfi og Sóley segir að
nýliðar fái einstaklega góða þjálf-
un frá reyndari meðlimum. „Við
hugsum vel um hvert annað ásamt
því að vera í stöðugri þjálfun bæði
hérlendis og erlendis. Árlega fara
liðsmenn utan í þjálfun og má þar
nefna til dæmis þjálfun í snjó-
flóðaleit og hópstjórnun,“ segir
Sóley. Björgunarsveitin er ávallt
meðal fyrstu á vettvang slysa en
einnig þegar ferðafólk á hálendi
Íslands kemst í sjálfheldu. „Fólk
er stöðugt á betri jeppum sem
komast lengra, svo við þurfum
alltaf að vera á bílum sem komast
enn lengra til að geta bjargað
þeim,“ segir Sóley. Flugbjörgun-
arsveitin stendur í miklu upp-
byggingarstarfi og Sóley segir
mikið spennandi starf framund-
an.
Flugeldasalan hefst 28. desem-
ber og verður á fimm stöðum: Í
húsi sveitarinnar við Flugvallar-
veg, B & L Grjóthálsi 1, í húsnæði
Bandalags íslenskra skáta í Hraun-
bæ 123, við Hólagarð Lóuhólum 2-
6 og við Jafnasel (Krónuna). Salan
er opin frá kl. 10.00-22.00 og kl.
10.00-16.00 á gamlársdag.
Flugeldar bjarga
mannslífum
Su›urlandsbraut 26
Reykjavík
Sími: 510 0000
Brekkustíg 39
Njar›vík
Sími: 420 0000
Mi݇si 7
Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Grundargötu 61
Grundarfir›i
Sími: 430 0000
www.besta.is
SKEMMTU fiÉR VEL
UM ÁRAMÓTIN
GAMLÁRSKVÖLD
Kveiktu á útikertum
2 stk. saman í pakka
Pússa›u skóna fyrir veisluna
me› Max skóábur›i
Helltu í glösin
10 stk. saman í pakka
N†ÁRSDAGUR
Hreinsa›u skóstrikin
af gólfinu me› SD-20
Hreinsa›u rau›víni›
úr teppinu/sófanum
me› Contempo Spotting
Solution
fivo›u upp me›
svampburstanum
Eyddu reykjarlyktinni
me› Airlift
Skelltu á flig
Wild Glove hönskum,
margar ger›ir fáanlegar
Ekki fagna allir jarðarbúar
nýju ári þann 1. janúar. Öll
menningarsvæði hafa sín tíma-
töl og mikilvægar hefðir fylgja
oft áramótum.
Stórar hátíðir fylgja oft áramótum
og geta staðið yfir í marga daga
fyrir eða eftir áramótin. Áramót
eru stundum tengd árstíðum, til
dæmis til að fagna komu vorsins,
eða þau eiga hreinan trúarlegan
uppruna.
Á Íslandi er auðvitað haldið
upp á komu nýja ársins kvöldið
fyrir nýársdag, sem er 1. janúar
eins og víðast hvar á Vesturlönd-
um. Afganir og Kúrdar halda hins
vegar sín áramót í kringum jafn-
dægur á vori þann 21. mars.
Múslimar fagna komu ársins
1428 þann 20. janúar og ár svíns-
ins gengur í garð í Kína 18. febrú-
ar. Eþíópíubúar taka á móti nýju
ári 11. september og gyðingar
þann 12. en þá hefst árið 5768 hjá
þeim.
Nýtt ár hefst ekki
alltaf 1. janúar