Fréttablaðið - 30.12.2006, Page 99
Þrír hörkuleikir fóru fram í
NBA-deildinni í fyrrinótt og unn-
ust þeir allir á heimavelli. Dallas
Mavericks vann nauman sigur á
Phoenix Suns, 101-99, San Antonio
Spurs tók Utah Jazz í bakaríið,
106-83, og Denver Nuggets átti
ekki í vandræðum með Seattle
Supersonics, 112-98.
Dirk Nowitzki skoraði sigur-
körfuna fyrir Dallas gegn Phoenix
þegar rétt rúm ein sekúnda var
eftir af leiknum og tryggði þar
með sigur Dallasliðsins, 101-99.
Nowitzki skoraði samtals 27 stig í
leiknum og hirti 10 fráköst en
Jason Terry var maður leiksins
með 35 stig fyrir Dallas, sem þar
með vann sinn áttunda leik í röð.
„Terry var leiðtogi okkar.
Nowitzki og ég áttum í smá vand-
ræðum, en þegar mest lá við þá
fann Terry okkur báða og við
kláruðum sóknirnar fyrir hann,“
sagði Josh Howard, framherji
Dallas, eftir leikinn en Howard
skoraði 16 stig og hirti 12 fráköst í
leiknum.
Stórleikur fór fram í San Ant-
onio þar sem heimamenn í Spurs
tóku á móti Utah Jazz og fóru með
sigur af hólmi, 106-83. San Anton-
io Spurs hafa nú unnið fimmtán
leiki í röði gegn Utah Jazz á heima-
velli sínum.
Tony Parker var stigahæstur í
liði Spurs með 22 stig og Tim
Duncan skoraði 20 stig. Hjá Utah
voru þeir Deron Williams og Gor-
don Giricek stigahæstir með ein-
ungis 11 stig.
„Spurs-liðið tók okkur í kennslu-
stund í kvöld. Þeir komu í veg
fyrir allt sem við ætluðum að gera.
Við fórum að taka erfið skot og
náðum ekki að klára sóknirnar,“
sagði Jerry Sloan, þjálfari Utah
Jazz.
Allen Iverson kann greinilega
vel við sig hjá sínu nýja félagi,
Denver Nuggets. Iverson átti stór-
leik þegar Denver vann Seattle á
heimavelli, 112-98, og skoraði 44
stig og átti 10 stoðsendingar.
Leikurinn var sigurleikur
númer 800 hjá George Karl, þjálf-
ara Denver. „Þetta er eitthvað sem
maður kann að meta. Það er heið-
ur að hjálpa honum að ná þessum
sigri,“ sagði Iverson eftir leikinn í
fyrrinótt.
Áttundi sigur Dallas í röð
Lið Memphis Grizzlies hefur
ekki farið vel af stað í NBA-
deildinni í vetur og á fimmtudag-
inn ákvað stjórn félagsins að reka
þjálfara liðsins, Mike Fratello.
„Okkur fannst vera kominn
tími á breytingar, byggt á árangri
okkar í vetur og framtíðarmark-
miðum,“ sagði Jerry West, forseti
Memphis Grizzlies sem hefur
aðeins unnið sex af þrjátíu fyrstu
leikjum tímabilsins.
Memphis rak
Mike Fratello
Spænska blaðið Marca
sagði frá því í gær að ítölsku
risarnir í AC Milan hefðu mikinn
áhuga á að fá varnarmanninn
Sergio Ramos til liðs við sig frá
Real Madrid. Samkvæmt fréttinni
funduðu forráðamenn AC Milan
með René Ramos, bróður og
umboðsmanni Sergios Ramos,
nýlega.
AC Milan er tilbúið að bjóða
Sergio Ramos fimm ára samning
en René Ramos segir bróður sinn
ekki hafa áhuga á að fara til
ítalska liðsins og að hann sé
ánægður í herbúðum Real
Madrid.
AC Milan vill fá
Sergio Ramos
Svissneska tennisdrottn-
ingin Martina Hingis og Tékkinn
Radek Stepanek opinberuðu
nýverið trúlofun sína. Hingis var
um tíma efst á styrkleikalista
alþjóða tennissambandsins og hóf
keppni að nýju á síðasta tímabili
eftir þriggja ára hlé. Stepanek er
sem stendur í 19. sæti á styrk-
leikalistanum.
Stepanek og
Hingis trúlofuð
Ítalskt dagblað hafði
samband við sjö þjálfara í efstu
deildinni þar í landi og fékk þá til
að taka þátt í stuttri könnun nú
þegar vetrarfrí er í gangi.
Roberto Mancini, þjálfari
Ítalíumeistara Inter sem eru í
efsta sætinu núna, var meðal
þeirra sem tók þátt í könnuninni.
Athyglisvert er að hann er sá eini
sem nefnir ekki Roma þegar
spurt er út í það lið sem hafi
spilað skemmtilegasta fótboltann.
Í stað þess að nefna það lið sem
er í mestu baráttunni við Inter
um titilinn velur hann fyrrver-
andi lærisveina sína hjá Lazio.
Nokkrir þjálfaranna neituðu að
svara hvaða lið hefði valdið
mestum vonbrigðum, þar á meðal
var Carlo Ancelotti sem þjálfar
AC Milan. Allir sem svöruðu
þeirri spurningu völdu einmitt
Milan en þar á meðal var
Mancini. Þegar kom að því að
velja besta leikmann tímabilsins
til þessa voru svörin mismunandi
en sóknarmennirnir Amauri,
Adrian Mutu og Cristian Riganò
voru allir nefndir. Mancini valdi
Tommaso Rocchi.
Roma spilar
besta boltann
Shaquille O´Neill skaut föst-
um skotum á fyrrverandi þjálf-
ara sinn, Phil Jackson, eftir 101-
85 sigurleik Miami Heat á Los
Angeles Lakers á jóladag. Jack-
son gagnrýndi O´Neill, þegar
hann lék með Lakers, fyrir að
vera of þungur sem og fyrir slaka
nýtingu á vítalínunni.
Jackson sagði svo nýverið að
Shaq væri eini leikmaðurinn sem
hefði ekki nennt að leggja neitt á
sig undir sinni stjórn. „Það gekk
erfiðlega að fá hann til að leggja
eitthvað á sig. Aðrir leikmenn –
Michael [Jordan], Scottie [Pippen],
Dennis Rodman, Horace Grant –
og allir hinir lögðu mjög hart að
sér á æfingum og í leikjum,“ er
haft eftir Jackson í L.A. Times.
O´Neill er greinilega ekki sátt-
ur við þessi ummæli. „Hvernig er
hægt að taka orð Benedicts
Arnold trúanleg?“ spurði O´Neill
aðspurður um orð Jackson eftir
leikinn gegn Lakers á jóladag.
Frasi þessi, um Benedict Arnold,
er þekktur til að lýsa svikurum í
Bandaríkjunum.
O´Neill spilaði ekki með í
leiknum sem var sá 21. í röð sem
hann missir af vegna hnémeiðsla.
Hann var í borgaralegum fötum
þegar hann lét orð sín falla á leið
sinni úr búningsherberginu og
mátti því ekki koma í formlegt
viðtal. Hann skýrði orð sín ekki
frekar.
Gömlu risarnir í orðasennu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
7
8
3
5