Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 18

Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 18
Verð frá 2.680.000 kr.* ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi. Fjölhæfur eins og þú Það þarf töluverða fjölhæfni til að vera framkvæmdastjórinn á heimilinu, útsjónarsami uppalandinn og meistarinn í hvers kyns útréttingum. Mercedes-Benz B-Class er hinn fullkomni fjölskyldubíll og býr yfir sveigjanleika sem fáir aðrir bílar geta státað af. Hann er ótrúlega rúmgóður miðað við hversu nettur og lipur hann er auk þess að vera kraftmikill, þægilegur og sportlegur, allt í senn. Þessi glæsilegi meðlimur Mercedes-Benz fjölskyldunnar hefur náð frábærum árangri í öryggisprófum og hlaut m.a. 5 stjörnur í EURO-NCAP. Há staða sætanna eykur öryggi farþega verulega og gerir allt aðgengi að bílnum þægilegra. Þá er B-Class frægur fyrir að vera eyðslugrannur og hefur dísilknúni CDI bíllinn unnið til verðlauna í sparaksturskeppnum bæði hér heima og erlendis. Komdu í sýningarsal okkar að Laugavegi 170 og mátaðu bíl sem er fjölhæfur eins og þú. Bæjarstjórn Seltjarnarness segir tillögu stjórnar Strætó bs. um nýja kostnaðarskiptingu stangast á við ákvæði samkomu- lags eigenda Strætó, sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæð- inu. Ekki megi breyta kostnaðar- hlutföllum milli eigenda nema samsvarandi breyting verði á þjónustunni eða um það samið. Seltirningar segja að frá því samkomulagið um Strætó bs. var gert hafi þjónusta Strætó við Seltirninga aðeins breyst óveru- lega. Þá hafi íbúafjöldi bæjarins staðið í stað, öfugt við Reykjavík og Kópavog. Því sé ekki hægt að fallast á að framlag Seltjarnarness hækki um 90 prósent. Neita að borga meira til Strætó Um 90 svæði, sem ná yfir rúmlega 24 þúsund hekt- ara lands, voru notuð til skot- og sprengjuæfinga Bandaríkjahers á þeim tíma sem herinn dvaldi hér á landi. Flest svæðin eru á Reykja- nesi og á höfuðborgarsvæðinu en einnig í öðrum landshlutum. Þetta kom fram í svari Valgerðar Sverr- isdóttur utanríkisráðherra á Alþingi við fyrirspurn Jóns Gunn- arssonar, þingmanns Samfylking- arinnar. Í svari ráðherra kemur einnig fram að þótt mörg svæði séu þekkt þurfi að rannsaka þau mun betur til að áætla magn skota og sprengna á hverju svæði fyrir sig. Af þeim 73 svæðum sem skráð eru, en beðið er upplýsinga frá Bretlandi um önnur 27 svæði, eru greinargóðar upplýsingar til um 29 þeirra. 36 svæði frá því í seinni heimsstyrjöldinni eru ókönnuð. Ekki er heldur útilokað að fleiri svæði bætist við eftir því sem gagnaöflun vindur fram. Land- helgisgæslan fékk árið 2002 tækja- búnað sem leitar að sprengjum undir yfirborði, en það hefur bætt forsendur til gagnaöflunar til muna. Ekki hefur verið áætlað hversu langan tíma gagnaöflun og hreins- un æfingasvæðanna tekur. Til samanburðar á hreinsun á 500 til 1500 hektara svæði á Vogaheiði að ljúka árið 2012. Bandaríski herinn notaði svæðið frá 1952-1960 til að æfa skotárásir með sprengjuvörp- um, fallbyssum, skriðdrekum og öðrum vopnum sem landherir nota. Kostnaður við hreinsunina er ókunnur. Hreinsun mun taka áratugi Íslensk börn eru að meðaltali með tvöfalt fleiri skemmdar tennur en börn í Sví- þjóð og er tannheilsa þeirra sú versta á Norðurlöndum. Þetta er niðurstaða Munnís-rannsóknar- innar sem gerð var um allt land. Niðurstöður rannsóknanna voru birtar í gær. Þar kom meðal ann- ars fram að hjá tólf ára barni á Íslandi eru að meðaltali rúmlega tvær fullorðinstennur skemmdar og þarfnast viðgerða eða hafa þegar verið fylltar. Meðal fimmt- án ára unglinga eru að meðaltali fjórar tennur skemmdar. Skemmd- ir eru algengari hjá strákum en stelpum. Tannheilsu fer því hrakandi og segir í skýrslunni að áhyggjuefni sé hve mikið það færist í vöxt að ekki sé gert við skemmdir. Um 17 prósent barna fara ekki í reglulegt eftirlit hjá tannlækni, verst er ástandið á Vestfjörðum en best í Skagafirði. „Mjög mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir því að aðgengi að tannheilsuþjónustu hér á landi er ekki nægilega gott,“ segir Hólm- fríður Guðmundsdóttir, tannlækn- ir hjá Lýðheilsustöð og heilsugæsl- unni. Hún segir Íslendinga búa við annað kerfi en það sem tíðkast hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Kostnaðarhlutdeild foreldra sé mun meiri hér á landi en áður var og það hafi orðið til þess að dregið hafi úr komu barna til tannlækna. Kerfið þurfi að taka það athugun- ar. Tannskemmdir algengari hjá strákum Áætlun Sameinuðu þjóðanna um framtíðarstöðu Kosovo gengur þvert á óskir Serbíustjórnar um að héraðið verði eftir sem áður formlega innan landamæra Serbíu. Þetta sögðu fulltrúar Serba í viðræðun- um um Kosovomálið í gær, daginn áður en erindreki SÞ, Martti Ahtisaari, kynnir áætlunina fyrir fulltrúum Serbíustjórnar og hinnar kjörnu héraðsstjórnar Kosovo. Slobodan Samardzic, meðlimur serbnesku samninganefndarinn- ar, tjáði serbneska sjónvarpinu að hugmyndir Ahtisaaris „gengju þvert á skilyrði Serbíu“. Segja tillögur þvert á skilyrði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.