Fréttablaðið - 02.02.2007, Side 61
{ heima er best } 17
Hér áður fyrr notaðist fólk nánast
eingöngu við rafmagnshellur til að
elda mat. Í dag er úrvalið meira og
hægt að velja um nokkrar tegundir
af hellum. Miklu máli skiptir hversu
mikla orku þarf til að hita upp hell-
urnar og hversu auðvelt er að elda
á þeim. Þó virðist það vera smekkur
hvers og eins sem ræður því hvern-
ig helluborð eru valin í eldhúsið.
Steyptar hellur eru eyðslufrekar og
hætta er á því að maður noti annað
hvort of litla eða of stóra potta.
Of lítill pottur getur valdið því að
hellan rifnar og ofhitnar. Hætta er
á því að of stór pottur verpist þar
sem hann hefur bara stuðning að
hluta botnsins. Hellurnar eru lengi
að hitna og lengi að hita pottinn.
Lítri af vatni að suðu: 14 mínútur.
Keramikhellur eru með tveimur
mismunandi orkugjöfum, rapid og
highlight. Rapid-hellur eru þó að
mestu leyti að hverfa og highlight
hellurnar að taka við. Helmingi
fleiri vafningar eru í highlight per-
unni sem gefur meira afl af minni
orku.
Lítri af vatni að suðu: 8-12 mínút-
ur.
Gasið hefur verið vinsælt undan-
farið en þar sem gaslagnir eru ekki
í húsum þarf að notast við gaskút
og fylla hann reglulega. Hitunin
er hins vegar hraðari og maður er
fljótari að ná upp suðu sem veldur
því að ódýrara er að nota gas en
rafmagn.
Lítri af vatni að suðu: 3-3,5 mín.
Span-hellan hitnar aldrei, bara pott-
urinn og því er engin hætta á að fólk
brenni sig á hellunni. Auk þess er
engin íkveikjuhætta og þegar botn-
inn ofhitnar slekkur helluborðið á
sér. Ef sýður upp úr slekkur hellan
á sér, þannig að öryggið er mikið.
Ekkert brennur heldur á hellunum
því þær eru kaldar. Span-hellan er
heldur hraðvirkari en gasið, og hún
notar innlendan orkugjafa. Ekki er
hægt að nota álpotta á span-hell-
urnar.
Lítri af vatni að suðu: 1-1,5 mín.
Heitt á hellunni
Eldavélarhellur eru til í ýmsum útfærslum.
Gerið góð kaup, mörg húsgögn undir kostnaðarverði,
full búð af nýjum vörum á tilboði.
Útsala
10-70% afsl.
39.900 kr 13.500 kr Frá 16.900 kr 34.000 kr
Touch hárgreiðslustofa
opnar í dag
nýja og glæsilega stofu
í Austurveri, Háaleitisbraut 68.
Tökum vel á móti öllum.
Tímapantanir í síma
553 7171.
Þórdís, Svava og Guðný
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI