Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 2
Er ekki sjálfsmyndin í molum eftir þetta, Berglind? Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS FORD ESCAPE Nýskr. 10.04 - Sjálfskiptur - Ekinn 40 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 2.460 .000. - Tugþúsundir Líbana tóku í gær þátt í minningarfund- um um Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, í tilefni af því að rétt tvö ár eru liðin síðan hann var myrtur í Beirút. Mikil spenna er í borginni milli ólíkra fylkinga. Þrír fórust þegar sprengjur sprungu í tveimur strætisvögnum á þriðjudag. Skammt frá gröf Hariris í miðborg Beirút, þar sem fjöl- mennasti útifundurinn var í gær, hafa andstæðingar stjórnarinnar haldið uppi nánast stöðugum mótmælafundum mánuðum saman til að krefjast þess að stjórnin segi af sér. Spenna í Beirút eftir tilræði „Ef formaður KSÍ ætlar ekki að þiggja boð okkar væri gott að hann myndi þá svara nefndinni því,“ segir Marsibil J. Sæmundardóttir, formaður mann- réttindanefndar Reykjavíkur. Eins og fram kom í Fréttablað- inu í gær óskaði mannréttinda- nefndin eftir því fyrir þremur og hálfum mánuði að fá formann KSÍ á fund sinn til að ræða stöðu og kjör karla og kvenna innan vébanda knattspyrnusambandsins. Eggert Magnússon, fyrrver- andi formaður KSÍ, mætti aldrei til fundar og Geir Þorsteinsson, nýkjörinn formaður sambandsins, segist ekki skilja hvað það sé sem mannréttindanefndin vilji ræða. Geir bendir á að misháar dagpen- ingagreiðslur til landsliðskvenna og -karla hafi verið jafnaðar um miðjan síðasta mánuð. „Við erum ekki að biðja for- mann KSÍ að koma á fund ein- göngu út af dagpeningagreiðslun- um. Við erum einfaldlega að óska eftir því að fá formanninn á fund til að ræða almennt hvernig jafn- réttismálum er háttað innan sam- bandsins,“ segir Marsibil, sem enn óskar eftir því að formaður- inn komi til fundar: „Það er ekki verið að boða formann KSÍ til yfirheyrslu og hann er ekki sá eini sem mannréttindanefnd hefur óskað eftir því að mæti til fundar. Flestir hafa komið með glöðu geði og það eru yfirleitt mjög upplýsandi og gagnlegir fundir.“ - Ekki boðaður til yfirheyrslu Erfiðleikar bandaríska hersins við að fá sjálfboðaliða til hermennsku aukast enn. Vandkvæði við að fá sjálfboðaliða sem uppfylla ströngustu kröfur valda því að nú er æ algengara að menn með sakaskrá séu teknir í herinn. Á árinu 2006 veitti herinn tvöfalt fleiri undanþágur en árið 2003 fyrir sjálfboðaliða með brotaferil eða heilsuvandamál eða þá sem koma illa út úr hæfnis- prófum, en þetta myndi að öllu jöfnu útiloka þá frá herþjónustu, að því er fram kemur í gögnum frá bandaríska varnarmálaráðu- neytinu. Fleiri með saka- skrá teknir inn Þrír piltar á ungl- ingsaldri voru handteknir um hádegisbilið í gær vegna gruns um að þeir hafi framið fjöldamörg skemmdarverk víðs vegar í Hafnarfirði nóttina áður. Talið er að tjónið geti numið tugum millj- óna króna. Rúður voru brotnar í að minnsta kosti þrjátíu bifreiðum og margar þeirra dældaðar og rispaðar tölu- vert. Í nokkrum tilfellum voru járnteinar reknir í gegnum hurðir og vélarhlífar bifreiðanna. Þá voru einnig brotnar rúður í heima- húsi og vinnuskúr í bænum auk þess sem grunur leikur á um að piltarnir, sem eru á aldrinum fimmtán til sautján ára, hafi verið á stolnum bíl. Að sögn lögreglu er ekki loku fyrir það skotið að slóð piltanna liggi víðar, en þeir hafa játað skemmdarverkin að hluta. Tilkynningar um spellvirkin tóku að streyma inn til lögreglu snemma í gærmorgun og fór ört fjölgandi eftir því sem leið á dag- inn. Þær fyrstu bárust frá hest- húsahverfinu í Almannadal þar sem fjölmargar bifreiðar höfðu verið skemmdar, en margar þeirra voru nýlegar. Þær tilheyrðu flest- ar verktökum sem eru þar að störfum um þessar mundir. Auk þess brutu skemmdarvargarnir rúður í þeim hesthúsum sem búið var að setja gler í. Síðar um daginn bárust tilkynn- ingar frá iðnaðarsvæðinu í Hellu- hverfi, austan við álverið í Straumsvík, þar sem rúður höfðu verið brotnar í bifreiðum, járn- teinar reknir í gegnum hurðir og vélarhlífar og þær dældaðar á ýmsa aðra vegu. Þar urðu stærri vinnuvélar einnig fyrir töluverð- um skemmdum af hendi spell- virkjanna. Lögreglan telur að sömu aðil- ar hafi verið að verki í öllum til- vikum. Ekki er ljóst hvað þeim gekk til né hvers kyns tól þeir notuðu við verknaðinn. Piltarnir sem eru í haldi hafa allir komið áður við sögu lögreglu. Sökum ungs aldurs þeirra er málið unnið í samvinnu við barnaverndar- yfirvöld en þeir hafa þó allir náð sakhæfisaldri. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu hefur nú fengið málið til með- ferðar og yfirheyrslur yfir piltun- um fóru fram í gærkvöldi. Unglingspiltar hafa játað skemmdarverkin að hluta Skemmdarverk voru framin víðs vegar í Hafnarfirði í fyrrinótt. Á fjórða tug bifreiða voru skemmdar og rúður brotnar víða annars staðar. Þrír piltar á unglingsaldri hafa játað spellvirkin að hluta. Framboðslistar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir komandi alþingiskosningar voru samþykktir á félagsfundi í gærkvöldi. Ögmundur Jónasson alþingis- maður mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi og Guðfríður Lilja Grétars- dóttir verður í öðru sæti. Gestur Svavarsson skipar síðan þriðja sætið. Í Reykjavík- norður er Katrín Jakobs- dóttir í efsta sæti, Árni Þór Sigurðsson skipar annað sætið og Paul Nikolov er í því þriðja. Kolbrún Halldórsdóttir situr í fyrsta sæti í Reykjavík-suður, Álfheiður Ingadóttir kemur þar næst á lista og Auður Lilja Erlingsdóttir verður í þriðja sætinu. Framboðslistar VG samþykktir Íbúar í heimili sem Samhjálp rekur á Miklubraut 18 segja nánast einum rómi að matur sem þar sé á boðstólum sé afar slæmur. Þetta kemur fram í úttekt sem gerð var á starfsemi heimilsins. „Þeir telja allir nema einn að hann sé oft gamall og útrunninn og segja að það komi alltof oft fyrir að hann sé hreinlega skemmdur,“ hefur skýrsluhöfund- ur eftir íbúunum um gæði þess matar sem var borinn á borð á Miklubraut 18. Íbúarnir eru sagðir vilja breytingar, til dæmis að maturinn á stuðningsheimili verði sendur þangað frá utanaðkomandi þjónustueldhúsi. Ráðgjafar sem rætt var við hjá félagsþjónustu Reykjavíkur taka undir gagnrýni íbúanna á matinn. Segir í skýrslunni að þeir telji matinn yfirleitt ekki nógu góðan. Stuðningsbýli Samhjálpar á Miklubraut 18 nýtur rekstrarstyrkja frá Reykjavíkurborg samkvæmt samningi þar um. Í samningnum kemur fram að heimilið er ætlað til þess að styðja fólk sem er hætt neyslu áfengis og vímuefna svo það geti aðlagast samfélaginu á nýjan leik. Átta manns geta búið á heimilinu hverju sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.