Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 29
Nú ættu allar konur að geta
fundið buxur við sitt hæfi í
tískuvöruverslunum.
Eflaust gleður það margar konur
að samkvæmt nýjustu tísku-
straumum er mittislínan að fær-
ast aftur ofar. Lágu buxurnar geta
nefnilega komið vel út á sumum
en þær klæða ekki allar konur.
Í flestum verslunum sem selja
tískuvörur er nú hægt að finna
buxur sem eru sæmilega háar í
mittið og margar þeirra eru mjög
flottar. Einnig er hægt að fá pils
sem ná vel upp í mittið svo allar
konur ættu að geta fundið eitthvað
sem þeim líkar.
Mittislínan færist ofar
„Lopinn varð að tískuvöru fyrir
tveimur árum enda finnst varla
betri vara,“ segir Anna Gréta
Baldursdóttir, sem rekur ullar-
vöruverslunina Fold-Önnu í
Hafnarstræti á Akureyri. Anna
selur garn og alls kyns prjónavör-
ur og úrvalið er mikið. Hún segist
stóla mikið á útlendinga sem kaupi
ullarpeysur og tilbúna vöru en
íslenskir viðskiptavinir hennar
kaupi frekar garn og prjóni sjálf-
ir.
„Það hefur orðið mikil vakning
í prjóni og yngri konur eru farnar
að prjóna aftur á börnin sín,“ segir
Anna og bætir við að það sé tíska í
prjóninu eins og öllu öðru. „Í dag
eru peysurnar þröngar og stuttar
með rennilási en þetta fer í hringi.
Þegar ég byrjaði að prjóna prjón-
aði ég svipaðar peysur og eru inni
í dag en svo urðu þær síðar og
víðar,“ segir hún og bætir við að
útlendingarnir séu hrifnari af
þessum víðu. Sjálf hefur Anna
prjónað minna síðan hún opnaði
búðina fyrir átta árum. „Ég prjóna
eina og eina peysu af og til en það
eru mest sérpantanir ef útlending-
arnir sjá peysu sem er ekki í rétt-
um lit eða stærð. Ég sest þá með
prjónana og sendi á eftir þeim en
þeirri sendingu fylgir sú kvöð að
senda mér póstkort til baka um að
peysan hafi skilað sér og að hún
hafi verið í lagi,“ segir Anna Gréta
brosandi. Aðspurð hvort íslenska
ullin stingi segir hún svo ekki
vera. „Hér áður fyrr þótti hún
stinga en í dag þegar hún er orðin
að svona mikilli tískuvöru stingur
engan undan henni.“
Ullin stingur
engan lengur F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
7