Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 10
Hagur barna í iðnríkj-
unum mælist að meðaltali verstur
í Bretlandi og Bandaríkjunum
samkvæmt skýrslu Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF)
sem kom út í gær. Skýrslan er sú
fyrsta sinnar tegundar þar sem
velferð barna í iðnríkjum er mæld
út frá sex flokkum.
Norðurlöndin, að Íslandi und-
anskildu, röðuðu sér ofarlega á
heildarlistann. Svíþjóð, Danmörk
og Finnland voru í 2., 3. og 4. sæti
og Noregur var í 7. sæti. Holland
er í efsta sæti af 21 þjóð sem mæld
var í öllum flokkunum sex og var
á topp tíu í þeim öllum. Níu þjóðir,
þar á meðal Ísland, skiluðu ekki
inn upplýsingum fyrir alla flokka
og eru því ekki taldar með á
heildarlistanum yfir meðaltal
flokkanna.
Flokkarnir sex sem voru notað-
ir til að mæla velferð eru efnisleg-
ur auður, heilsa og öryggi, mennt-
un, samband við jafningja og
fjölskyldu, hegðun og áhætta, og
huglægur skilningur barnanna á
velferð.
Staða Íslands var greind í
þremur flokkum: heilsa og öryggi,
menntun og huglægur skilningur
barna á velferð. Ísland var í öðru
sæti þjóða í flokknum um heilsu
og öryggi á eftir Svíum og í þrett-
ánda sæti í menntunarflokknum,
neðst Norðurlandanna. Ísland
komst ekki í sæti í þriðja flokkn-
um þar sem upplýsingar voru ekki
fullnægjandi.
Athygli vekur að engin augljós
tengsl voru á milli velferðar barna
og vergrar þjóðarframleiðslu ríkj-
anna samkvæmt niðurstöðum
skýrslunnar. Til dæmis var Tékk-
land, sem var í 15. sæti, með hærra
meðaltal í flokkunum heldur en
mun ríkari lönd á borð við Frakk-
land, Austurríki, Bandaríkin og
Bretland, sem voru neðar á listan-
um.
Velferð barna mest í
norðurhluta Evrópu
Bretland er neðst á lista iðnvæddra ríkja yfir velferð barna samkvæmt skýrslu
Barnahjálpar SÞ. Norðurlöndin eru í efstu sætum utan Íslands, sem skilaði ekki
nægum upplýsingum. Ekki virðast tengsl á milli þjóðarframleiðslu og velferðar.
Heldur hallaði á krónuna
á málþingi sem nemendafélag við-
skiptafræðinema við Háskólann í
Reykjavík boðaði til í hádeginu í
gær undir yfirskriftinni „Evran
eða krónan“.
Ólafur Ísleifsson, lektor við
HR, hvatti til fordómalausrar
umræðu um gengismál hér og
kallaði eftir hlutlausri úttekt þar
sem metinn yrði kostnaður við að
taka upp evru og borinn saman við
kostnað sem því fylgdi að búa við
núverandi kerfi áfram. Hann benti
á að verðbólgumarkmið með fljót-
andi gengi sem hér var tekið upp
árið 2001 hafi í raun verið „þving-
aður leikur“ og mætti kalla tilraun
þar sem slíkt hafi ekki verið reynt
í jafnlitlu hagkerfi áður. „Og
árangurinn liggur fyrir,“ segir
hann. „Háir vextir, mikill vaxta-
munur við útlönd, óstöðugleiki í
gengi krónunnar, óviðunandi við-
skiptahalli, hættumerki á vett-
vangi fjármálastöðugleika.“ Þarna
segir hann kominn aðdraganda
þeirra efasemda sem vart verði
víðs vegar í þjóðfélaginu um ágæti
núverandi fyrirkomulags.
Yngvi Örn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri verðbréfasviðs
Landsbankans, benti á að gengi
evrunnar ætti líklega eftir að
lækka og það hentaði ekki ríkjum
með mikinn hagvöxt líkt og hér
væri. Aðalsteinn Leifsson, lektor
við HR, taldi ráð að huga að Evr-
ópusambandsaðild og Bjarni Már
Gylfason, hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins, taldi rétt að horfa á
aðra möguleika en krónuna þar
sem peningastefnan sem hér væri
rekin skilaði ekki því sem vonast
hafði verið til.
Peningastefnan virkar ekki
Fjórir karlmenn
um tvítugt voru handteknir í
Reykjavík aðfaranótt miðviku-
dags, grunaðir um innbrot.
Lögregla stöðvaði bíl eins
þeirra í venjubundnu eftirliti og
fann töluvert af þýfi sem talið er
að hafi verið stolið í nokkrum
innbrotum.
Fulltrúi lögreglunnar segir
mennina vera góðkunningja
lögreglunnar og voru þeir
yfirheyrðir í gær. Ekki er ljóst
hvaðan þýfið kemur en vonast
er til að hægt sé að tengja það
við innbrot sem hafa verið
framin í höfuðborginni á síðustu
dögum.
Með fullan bíl
af innbrotsþýfi
Í Japan stendur nú yfir
ráðstefna þar sem rætt er
hvernig færa megi Alþjóðahval-
veiðiráðið aftur nær upprunalegu
markmiði sínu; að stýra hvalveið-
um.
Japanar hófu ráðstefnuna á
þriðjudag á því að ávíta fulltrúa
þeirra þjóða sem eru andvígar
hvalveiðum fyrir að vera
fjarverandi. Öllum 72 aðildar-
þjóðum ráðsins var boðið og
ákváðu 38 þjóðir að sniðganga
ráðstefnuna, þar á meðal Bretar,
Ástralar og Bandaríkjamenn.
Fulltrúi Japans í ráðinu,
Minoru Morimoti, sagði fjarveru
þjóðanna gera viðræður um
umbætur á ráðinu „nánast
ómögulegar“.
Ræða Alþjóða-
hvalveiðiráðið
Karlmaður hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Vestur-
lands fyrir að hafa valdið
hneykslan sakir ölvunar á
almannafæri, meðal annars með
öskrum og grjótkasti.
Atvikið átti sér stað í júlí, bæði
á Fellabrekku og við veitingastað-
inn Kaffi 59 í Grundarfjarðarbæ.
Árið 2006 gekkst maðurinn undir
lögreglustjórasátt vegna brots á
lögum um ávana- og fíkniefni.
Hann var dæmdur til að greiða tíu
þúsund króna sekt til ríkissjóðs
eða sæta tveggja daga fangelsi
ella.
Sekt fyrir öskur
og grjótkast
Fulltrúi Vinstri grænna
í umhverfisráði Reykjavíkur lagði
til að 3.350 milljónir króna sem
Vegagerðin eyrnamerkir mislægum
gatnamótum við Miklubraut og
Kringlumýrarbraut færu frekar í
almenningssamgöngur og öryggis-
úrbætur. Þar af rynnu 2.800
milljónir til að leggja forgangsa-
kreinar fyrir strætisvagna.
Fulltrúar Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks sögðu tillögu
Vinstri grænna lýsa „ótrúlegum
kreddum“. Fulltrúar Samfylkingar-
innar sögðust vilja Öskjuhlíðar-
göng í forgang og höfnuðu áherslu
meirihlutans á mislæg gatnamót
við Kringlumýrarbraut og
Miklubraut.
Vilja ekki mis-
læg gatnamót
Bæjarlögmað-
ur í Kópavogi er að ósk
bæjarráðsfulltrúa
Samfylkingarinnar að
taka saman álitsgerð um
hugsanlega skaðabóta-
skyldu Kópavogsbæjar
vegna mögulegra
bótakrafna bræðranna
Sigurðar og Karls
Hjaltested. Eins og
komið hefur fram í
Fréttablaðinu gera
bræðurnir kröfu til
hlutar í Vatnsendajörð-
inni sem Kópavogsbær
er að eignast nær alla með eignarnámssátt við ábúandann, Þorstein
Hjaltested. Hann er bróðursonur Sigurðar og Karls sem hyggjast höfða
mál til að hnekkja erfðaskrá er liggur til grundvallar eignarrétti
Þorsteins á Vatnsendajörðinni.