Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 27
Tískuhönnuðurinn Tommy
Hilfiger boðar endurkomu sína
með nýrri haustlínu.
Tommy Hilfiger boðaði endur-
komu sína í tískuheiminn með
sýningu á nýrri haustlínu í New
York um helgina, en eitt og hálft
ár er liðið síðan hönnuðurinn hélt
sýningu.
Sýningastúlkur voru sumar
hverjar klæddar í föt sem þóttu
minna á breska skólabúninga
sjöunda áratugarins og liðu eftir
svörtum sýningarpalli á meðan
tregafull tónlist Simons og Gar-
funkels var leikin undir. Svart,
hvítt og grátt voru áberandi, en
Hilfiger braut grámann upp með
sterkum litum.
Þannig blandaði hann gráum
sjóliðsfrakka saman við sítrónu-
gulan kjól og rauða skó. Rauðum
kjól og hönskum saman við gráa
skó með bláum slaufum og þar
fram eftir götum. Þá klæddust
margar stúlknanna gráum ullar-
sokkabuxum.
Herrarnir fengu svipaða með-
ferð. Kúluhöttum, ullarfrökkum,
köflóttum buxum, skyrtum og
bindum í gráu, svörtu, hvítu,
rauðu og gulu var þannig hagan-
lega blandað saman í herralín-
unni.
Hilfiger lét hafa eftir sér að
sýningu lokinni að hún markaði
nýtt skeið í hönnun sinni. „Mér
líður eins og ég sé endurfæddur.
Nýtt skeið í mínu lífi er runnið
upp.“ Hann bætti því við að engin
ástæða væri til að óttast að hann
tæki sér jafn langt hlé. Hann
væri nú þegar með aðra línu í
bígerð.
Hilfiger snýr aftur
með litríka línu
Franski snyrtivöruiðnaðurinn
skilaði að vanda hagnaði á síð-
asta ári og var það fertugasta
árið í röð. Mikilvægi ilmvatns-
iðnaðarins verður seint ofmetið
fyrir tískuiðnaðinn. En heimur-
inn breytist og markaðurinn um
leið, Asíulönd eins og Kína eiga
sífellt fleiri efnaða íbúa og sama
má segja um löndin í Austur-
Evrópu og því eykst útflutning-
urinn á ilmvötnum til þessara
landa. Útflutningur til Rúss-
lands jókst til dæmis um tæp 44
prósent á síðasta ári. Snyrti-
vöruiðnaðurinn er fjórða mikil-
vægasta útflutningsgreinin hér
í Frakklandi á eftir vínfram-
leiðslu, flugvéla- og bílaiðnaði.
Það er því ekki skrítið að hver
hönnuður vilji skapa sitt eigið
ilmvatn sem verður eins konar
tákn fyrir tískuhús hans og rak-
inn gróðavegur.
Það þarf hins vegar að leita
upphafs þessarar hefðar aftur
til ársins 1921 þegar Mademois-
elle Chanel fékk Ernest Beaux,
ilmvatnsblandara rússnesku
keisarafjölskyldunnar, til að
blanda ilmvatn fyrir sig og var
það fyrsta tískuhúsið sem eign-
aðist ilmvatn með sínu nafni.
Coco Chanel féll fyrir fimmtu
flöskunni og þannig var skapað
hið fræga ilmvatn Númer 5.
Chanel heldur áfram sögunni
því á mánudag var heimsfrum-
sýning á sex nýjum ilmum sem
aðeins eru seldir hjá tískuhús-
inu en ekki í ilmvatnsbúðum um
heim allan. Í dag er það Jacques
Polge sem er „nef“ Chanel eins
og það er kallað í ilmvatnsheim-
inum, hann er sá sem skapar
ilmvatnið og þekkir tíu mis-
mundandi ilmgjafa í sama ilm-
vatninu með nefinu einu saman.
Monsieur Polge fékk frjálsar
hendur og fjármagn til að skapa
nýja „exclusif“ ilm fyrir Chan-
el-búðirnar. Þeir bætast við hina
fjóra sem fyrir eru, Bois des
Îles, Gardénia, Cuir de Russie
og 22. Nýju ilmirnir sex eru allir
meira eða minna ættaðir úr
sköpunarheimi Coco Chanel.
Til dæmis Númer 31 sem
tengist 31, Rue Cambon í París
þar sem fyrsta Chanel-búðin var
opnuð og þar sem Karl Lager-
feld hannar enn í dag fyrir Chan-
el og hátískan er sömuleiðis til
húsa. Sama má segja um Númer
18 sem er einmitt heimilisfang
skartgripabúðar Coco Chanel á
Place Vendôme sem var beint á
móti Ritz-hótelinu þar sem hún
hafði íbúð. Bel Respiro var
fyrsta sumarhús Coco í sveit-
inni sem hún keypti 1920 og 28
La Pausa er annað hús sem hún
lét byggja svo einhver dæmis
séu tekin.
Hver ilmur endurspeglar
þann stað sem nafnið kemur frá.
Flöskurnar eru allar eins, ein-
faldar og stílhreinar, gerðar
fyrir einstaka ilmi. Það er þó
ólíklegt að einhver af hinum sex
nýju ilmum eigi eftir að taka
sæti Chanel númer 5 en í dag
selst flaska af Númer 5, sem er
mest selda ilmvatn í heimi, á tíu
sekúndna fresti.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI