Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 36
fréttablaðið brúðkaup 15. FEBRÚAR 2007 FIMMTUDAGUR2
Hver brúður hefur sinn smekk á því hvers konar brúðarkjól
hún vill gifta sig í og sem betur fer er úr heilmiklu að velja
þegar farið er af stað. Þórunn Sigurðardóttir, kjólameistari
og eigandi Brúðarkjólaleigu Katrínar, gefur innsýn í hvað er
helst í tísku í brúðarkjólum ársins.
„Það sem er nýtt að skríða inn eru brons og gylltir tónar í
brúðarkjólum, auk antikbleika litsins,“ segir Þórunn. „Síðan í
fínni kjólum er það nýjasta að þeir séu í senjorítustíl. Þá er
efnið mikið rykkt og fellt auk þess sem á þeim er mikið af
pífum,“ bætir hún við. Þá segir Þórunn að taftefni sé að koma
sterkt inn í stað hins hefðbundna satínefnis.
Þórunn segir flestar konur vilja ermalausa kjóla en þær
sem vilja ermar geta fengið þær sérstaklega og geta þá klætt
sig úr þeim aftur. „Það er þó alltaf eitthvað til af kjólum með
ermum fyrir þær sem vilja. Pilsin á kjólunum eru mjög
breytileg. Sumar vilja hafa þau einföld og bein en aðrar kjósa
stærri og meiri.“
Spurð hvort mikið sé um svo kallaða rjómatertukjóla,
segir Þórunn: „Ég myndi nú ekki kalla neitt af þessum kjólum
rjómatertukjóla sem við erum með í dag. Það var meira hér
áður þegar ermarnar voru mikið púffaðar og kjóllinn náði
upp í háls. Það skiptir samt auðvitað máli að konan geti borið
kjólinn sinn vel en háar konur bera til dæmis mjög vel þessa
senjorítukjóla,“ segir Þórunn og bætir því við að mikilvægt
sé að tilvonandi brúðir taki sér tíma til að máta mismunandi
tegundir af kjólum og fái ráð frá starfsfólkinu um hvað henti
þeim best. „Þá fá þær klukkutíma mátun eða meira.“
Slörin segir Þórunn oftar vera einföld en tvöföld um þess-
ar mundir en þessi tvöföldu er hægt að leggja yfir andlitið.
„Slörin eru í öllum síddum og gerðum en þau ráðast dálítið út
frá kjólnum.“
Þórunn segir að alls ekki megi gleyma herrunum en tískan
fyrir þá er að vera í brúnum jakkafötum þetta árið. „Svo eru
alltaf hvítir, kremaðir og drapplitaðir tónar. Við seljum mjög
fín jakkaföt á herra en svo er náttúrulega hægt að fá leigð
sjakketföt og það er alltaf sígilt.“ - sig
Senjorítukjólar eru vinsælir í ár
Þórunn segir senjorítukjólana vinsæla um þessar mundir en þeir eru mikið felldir og rykktir auk þess að vera með pífum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nýir skór geta auðveldlega eyðilagt stóra daginn. Það
er að sjálfsögðu gaman að vera í fallegum nýjum skóm
við brúðardressið en kannski er ekki vitlaust að
kaupa kjól og skó með góðum fyrir-
vara.
Mikilvægast er að muna að
langflestir skór særa við fyrstu
notkun. Þá þarf að ganga til og
sérstaklega háa hæla.
Það getur verið ágætt að festa
kaup á skóm sem eru ekki mikið
hærri en hæstu hælarnir sem brúð-
urin gengur í venjulega því ekki er
gaman að flækjast í eigin hælum og
síðum kjól þegar á að skella sér í vals-
inn.
Heimavið er hægt að spígspora um
hálftíma og hálftíma í senn í þunnum sokk-
um og auka síðan tímann þangað til manni
finnst þægilegt að ganga í skónum. Einnig er
ráð að kaupa sérstaka hælsærisplástra sem fást í
flestum lyfjaverlsunum og hafa í veskinu í
brúðkaupinu. Síðan eru til innleg með gelfyllingu
sem er gott að hafa í háum hælum undir táberginu og
fást einnig í lyfjaverslunum. En síðan er ekki
vitlaust að taka með sér sæta skó sem eru með
lægri hæl og passa líka vel við kjólinn, því
allur er varinn góður.
Helst ekki með hælsæri upp altarið
Hælsæri eru ekki velkomin í
brúðkaup, þess vegna borgar sig
að ganga til skóna og taka með sér
auka par.