Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 84
... að það er hægt að stytta sér leið
við að þíða frystinn ef mikið liggur
á. Hitaðu vatn í potti og aftengdu
frystinn. Skelltu pottinum svo
inn þegar vatnið
sýður. Eftir stutta
stund ættu klaka-
breiðurnar að vera
horfnar.
Júlía Hannam, markaðs-
stjóri Þjóðleikhússins,
hefur í mörg horn að líta.
Eldamennskan fær að sitja
á hakanum þegar sem mest
er að gera.
Júlía er virkur félagi í Hugleik og
það er ýmislegt á döfinni hjá leik-
félaginu um þessar mundir. Hún
tekur þátt í sagnadagskrá félags-
ins, Einu sinni var, sem verður í
Þjóðleikhúskjallaranum á sunnu-
dag og þriðjudag. „Við segjum
sögur af forfeðrum. Þetta mæltist
ótrúlega vel fyrir í nóvember,“
sagði Júlía, sem æfir einnig leik-
ritið Bingó eftir Hrefnu Friðriks-
dóttur sem Hugleikur setur upp í
samstarfi við Leikfélag Kópavogs.
„Það er alveg fullt að gera,“ sagði
Júlía hlæjandi, en hún kvaðst ekki
hafa tíma til að elda nema stöku
sinnum þegar svona stendur á.
„Þá eldar maðurinn minn,“
sagði Júlía, en hún og maður henn-
ar skipta með sér verkum í eld-
húsinu. „Ég elda eiginlega alltaf
þegar við höfum fisk, en hann
þegar við erum með kjötrétti,“
sagði Júlía, sem er að eigin sögn
mikil fiskmanneskja. „Þegar við
Ragnar, maðurinn minn, förum
saman í Nóatún dregst hann alltaf
að kjötborðinu og ég að fiskborð-
inu: ég horfi girndaraugum á fisk-
réttina og hann á kjötið,“ sagði
hún og hló við. Það er því engin
furða að Júlía valdi að deila fisk-
uppskrift með lesendum Frétta-
blaðsins að þessu sinni.
Uppskriftir eru þó nánast af
skornum skammti í eldhúsi Júlíu.
„Ég elda svolítið í slurkum og
slöttum og finnst gaman að gera
tilraunir með krydd. Ég prófa mig
áfram og finn einhverja blöndu
sem virkar. Svo reyni ég bara að
muna hana næst þegar ég elda,“
sagði hún. „Þessi uppskrift, sem
ég fékk hjá Kristínu Geirsdóttur,
vinkonu minni, er æðislega góð.
Rétturinn er ekkert sterkur, bara
bragðmikill,“ sagði Júlía.
Bolludagurinn gengur í garð á
mánudag og eru margir eflaust
farnir að huga að bollubakstri.
Þeir sem ekki baka þurfa þó ekki
að sitja uppi bollulausir, því bak-
arar landsins hafa brett upp erm-
arnar og framleiða kræsingarnar
á færibandi.
Óttar B. Sveinsson, framleiðslu-
stjóri hjá Bakarameistaranum,
sagði menn þar á bæ hafa þjóf-
startað aðeins í bolluáti. „Við
vorum með smá smakk um síðustu
helgi og höfum verið að selja
aðeins síðan, svona til að koma
okkur í gang,“ sagði Óttar. „Það
eru svo sem engin læti í þessu
núna, það byrjar ekkert fyrr en á
laugardaginn,“ sagði hann. „Sunnu-
dagurinn er orðinn mjög vinsæll
hjá fjölskyldufólkinu og svo er
mánudagurinn langstærstur, þá
eru fyrirtækin líka að panta.“
Bakarameistarinn býður upp á
vatnsdeigsbollur, gerbollur og vín-
arbrauðsdeigsbollur, en Óttar
sagði vatnsdeigsbollurnar hafa
vinninginn í vinsældum. Þar með
er þó ekki allt upp talið, því velja
má á milli fjölmargra mismunandi
fyllinga. „Við erum með hefð-
bundnar rjómabollur, púnsbollur
með rommi, bollur með jarðar-
berjarjóma, súkkulaðirjóma og
irish coffee rjóma, svo eitthvað sé
nefnt.“ sagði Óttar. Að sögn hans
bætast nýjungar í hópinn á hverju
ári, og er þeim alltaf vel tekið.
„Nýjung ársins er daimkúlubolla,“
sagði Óttar.
Bollur í bílförmum
Kaliforníska vínfyrirtækið Delicato hefur náð undraverðri fótfestu á
Íslandsmarkaði á skömmum tíma. Er svo komið að vín fyrirtækisins
eru með allra vinsælustu vínum frá Ameríku í vínbúðum hér. Fyrir
þessu eru nokkrar ástæður og ber fyrst að nefna að vínin frá Delicato
eru stöðug og á góðu verði, kosta frá 1.090 kr. til 1.290 kr. og vín
fyrirtækisins sem seld eru undir nafninu Clay Station kosta 1.690 kr.
Þetta er meira en vel samkeppnishæft verð ef litið er til annarra
amerískra vína á markaðnum sem oft eru í dýrari kantinum séu borin
saman verð og gæði. En sjálfsagt er meginástæðan fyrir vinsældum
Delicato á Íslandi umboðsaðilinn Vífilfell sem ræður bæði yfir óhemju
öflugu dreifingarkerfi og dugmikilli markaðs- og kynningardeild sem
kann þá list að byggja upp vörumerki.
Í næstu viku hefst sala á nýjustu afurð Delicato, víninu Gnarly
Head sem gert er úr zinfandel-þrúgunni. Vínið kostar 1.590 kr. og mun
eflaust ná skjótum vinsældum hér á landi líkt og í Bandaríkjunum þar
sem það er sjötta mest selda zinfandel-vínið. Gnarly Head er nútíma-
legt vín, mýkra og ljúfara en mörg vín úr zinfandel frá Kaliforníu þar
sem krafturinn er í fyrirrúmi á kostnað jafnvægisins. Það er líka í
nútímalegum umbúðum þar sem kræklóttur og kvistóttur vínviðurinn
leikur aðalhlutverkið. Útlitið er einhverskonar sambræðing-
ur af myndskreytingum sem við þekkjum úr Grimmsævin-
týrum og útliti kalifornískra rokksveita og mótorhjólatöff-
ara. Enda eru víst barþjónarnir vestra farnir að húðflúra
sig með myndum af víninu, þó ekki varanlegum húð-
flúrum...
Nafnið Gnarly Head er tilvísun í vínviðinn sem er 80
ára gamall. Plönturnar eru ekki ræktaðar í röðum og
knýttar saman eins og algengast er í dag heldur stendur
hver planta sér og vex ansi frjálslega. Stórir og sterkleg-
ir kræklóttir og kvistóttir bolirnir eru tilkomumiklir að
sjá og vínviðurinn gefur af sér öflugar þrúgur.
Delicato er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var af
ítalska innflytjandanum Gaspare Indelicato árið
1924. Það hefur lengstum verið ræktandi frekar en
framleiðandi og enn þann dag í dag selur fyrirtækið
90 prósent af þrúgum sínum til annarra framleið-
enda. Síðan Delicato hóf að framleiða vín undir eigin
merkjum 1994 hefur vöxturinn verið gríðarlegur og
fyrirtækið er nú komið í fremstu röð framleiðenda í
Kaliforníu og hefur meðal annars verið valið besta
ameríska vínhúsið í tvígang á vínsýningunni
International Wine & Spirit Competition í London.
Kalifornískur kvistur
Finnst hákarl ógleymanlega hræðilegur