Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 46
fréttablaðið háskóladagurinn 15. FEBRÚAR 2007 FIMMTUDAGUR4
„Ég var orðin leið á traffíkinni í
bænum og langaði að prófa eitt-
hvað nýtt og meira spennandi
nám,“ segir Bryndís Ósk Jónsdótt-
ir sem skipti úr viðskiptanámi í
Reykjavík yfir í viðskiptalögfræði
við Háskólann á Bifröst. Hún mun
ljúka B.S.-gráðu frá skólanum nú í
vor og segir námið hafa gefið sér
mjög mikið. „Þetta er svo raun-
hæft nám. Maður er í endalausri
verkefnavinnu og finnst maður
kunna svo miklu meira heldur en
bara það sem stendur í bókinni.“
Á Bifröst hefur orðið til ákveð-
ið samfélag sem Bryndís segir
nemendur falla vel inn í. „Maður
býr eiginlega í skólanum og þekk-
ir nánast alla. Allir eru að gera
sömu hlutina; læra og vinna hérna
uppfrá. Fólk leitar stuðnings hvert
hjá öðru, þetta er ekki eins og í
bænum þar sem hver fer í sína átt-
ina eftir skóla,“ segir Bryndís. „Á
kvöldin er farið saman út að
skemmta sér, kíkt í pottinn eða á
kaffihúsið. Síðan stendur skólafé-
lagið meðal annars fyrir spurn-
ingakeppnum, böllum og kaffi-
húsakvöldum,“ segir Bryndís sem
kveðst alls ekki sakna Reykjavík-
ur þótt hún sé fædd og uppalin
þar.
Bryndís telur mikilvægt að
háskólanám sé í tengslum við
raunveruleikann. „Það skiptir
miklu máli að geta unnið raunhæf
verkefni og vera í tengslum við
atvinnulífið svo maður kunni að
takast á við og leysa raunveruleg
vandamál þegar komið er út á
vinnumarkaðinn. Á Bifröst er
einnig meirihluti námsins hópa-
vinna svo maður lærir svo vel að
vinna með fólki,“ segir Bryndís
sem ætlar ekki að segja skilið við
skólann strax heldur byrja í mast-
ersnámi þar næsta haust.
mariathora@frettabladid.is
Raunhæft nám í
sveitasælunni á Bifröst
„Manni finnst maður kunna svo miklu meira en bara það sem stendur í bókinni,“
segir Bryndís Ósk Jónsdóttir um námið á Háskólanum á Bifröst. ÚTÓPÍA HÖNNUNARSTOFA
„Ég er á þriðja ári og útskrifast í
vor með B.A.-próf í lögfræði. Að
því loknu þarf að taka tveggja ára
embættispróf til að verða lögfræð-
ingur,“ segir Margrét Kristín
Helgadóttir laganemi við Háskól-
ann á Akureyri.
Hún segir námið í Háskólanum
á Akureyri byggt upp á þriggja
vikna lotum. „Við tökum eitt nám-
skeið í einu og klárum það alveg af
á þrem vikum. Námið byggist á
símati og það eru verkefni og próf
í hverri viku. Þegar maður er
búinn að venjast þessu getur
maður ekki hugsað sér að fara yfir
í hitt kerfið. “
Margrét segir að mikið og gott
félagslíf sé í Háskólanum á Akur-
eyri og það hafi átt sinn þátt í því
að hann varð fyrir valinu. „Mig
langaði alltaf í lögfræði en var
ekki alveg viss hvort ég ætti að
fara í hana. Þegar að því kom
ákvað ég að láta slag standa og sé
alls ekki eftir því.“ Margrét segir
einn af kostunum við laganám í
Háskólanum á Akureyri vera auð-
velt aðgengi að kennurum. „Við
erum það fá að maður þekkir kenn-
arana og samnemendurna mjög
vel. Það er því mjög auðvelt að
leita til kennaranna sinna ef eitt-
hvað er.“
Margrét er í framboði til
Alþingis í vor og er meðal yngstu
frambjóðenda í Norðausturkjör-
dæmi, en hún skipar fjórða sæti á
lista Samfylkingarinnar. Hún segir
námið í lögfræði hafa gagnast sér
vel í kosningabaráttunni. „Vegna
þess hversu fá við erum í náminu,
fáum við miklu meiri þjálfun í því
að koma fram og halda ræður.“
Í laganámi við Háskólann á
Akureyri er lögð mikil áhersla á
alþjóðlega lögfræði. „Þetta er
alþjóðlegra en í öðrum háskólum.
Við fáum mikið af skiptikennurum
sem er auðvelt vegna þess hvernig
námið er byggt upp. Við höfum
verið með kennara frá Ítalíu, Kína,
Frakklandi og Skotlandi svo eitt-
hvað sé nefnt. Námið er að mestu
kennt á ensku og við höfum lagt
mikla áherslu á heimspeki lög-
fræðinnar.“ - öhö
Námið gagnast vel í
kosningabaráttunni
Margrét stundar nám í lögfræði við
Háskólann á Akureyri. Auk þess er hún í
framboði til Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/HNEFILL
Það gerist
hjá okkur
laugardaginn 17. febrúar kl. 11-16
- Alþjóðlegur háskóli
- Á fjórða hundrað námsleiðir
- Innlent og erlent rannsóknasamstarf
- Tækifæri til að vinna með fyrirtækjum
- Sveigjanlegt og fjölbreytt nám
- Kröfugt félagslíf
- Háskólanám sem nýtur trausts
Stúdentar og kennarar Háskóla Íslands
og Kennaraháskóla Íslands taka vel á
móti þér á Háskóladeginum.
Grunn- og framhaldsnám við Háskóla
Íslands er kynnt í Háskólabíói við Hagatorg.
Nýtt grunn- og framhaldsnám er kynnt í
Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð.
Eftirfarandi háskólar verða með kynningu í Borgarleikhúsi:
Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn í Reykjavík,
Háskólinn á Hólum - Hólaskóli, Landbúnaðarháskóli Íslands
og Listaháskóli Íslands. www.khi.is www.hi.is