Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 96
Skynfærin leika stóran þátt í lífi okkar, öll nema lyktar-
skynið. Ilmvötn og reykelsi eru
reyndar gerð fyrir nefið en samt
er ljóst að tungan, eyrun og augun
fá miklu meira til að dunda sér
við. Um það vitnar matargerðar-,
tón- og myndlistin. Hvar er lyktar-
listin? Fyrir utan odorama-mynd
John Waters, Polyester, man ég
ekki eftir neinu. Hvar eru sér-
síður í blöðum þar sem hin marg-
víslega lykt er krufin til mergjar
og henni gefnar stjörnur?
getur lyktin verið unaðs-
legri en flest önnur list, sérstak-
lega þegar ljúfsár lyktarminning
sprettur fram í heilanum. Á
Hverfisgötunni fann ég á dögun-
um ótrúlega góða bakaríslykt.
Þessi lykt er oft þarna en ég hef
aldrei áttað mig á því hvaðan hún
kemur. Lyktin æsti mig svo mikið
upp að ég þræddi öll bakarí mið-
bæjarins leitandi að sætabrauð-
inu sem mér fannst lyktin vera
af: gulum hveitiskeljum með
hvítu kremi á milli.
man vel eftir skítalyktinni
sem stundum lagði yfir borgina.
Lyktin hvarf alveg fyrir nokkrum
árum. Þetta var hin svokallaða
peningalykt sem enn má eflaust
finna í plássum sem byggja
afkomu sína á fiski. Það góða við
lyktina var að á tímum hennar
skildi maður efnahagslífið. Ah,
nú er verið að bræða fisk og búa
til peninga, hugsaði fólk, lét sig
hafa það og saug ánægt upp í
nefið.
er auðvitað löngu hætt-
ur að skilja efnahagslífið og það
hvernig menn fara að því að
græða jafn ótrúlega mikið og þeir
gera víst. Enda er allt orðið raf-
rænt og engin lykt af bankamilli-
færslum. Því væri ánægjulegt ef
bankarnir og aðrir sem stunda
gróðabrall myndu koma sér upp
mögnuðum útblástursmaskínum
á þökunum sínum. Þegar menn
gera góða díla og hagnast um
nokkrar skrilljónir, eða þegar
afkomutölurnar koma í hús,
mætti senda myndarlegt lyktar-
fret í gegnum tækin og yfir borg-
ina.
hefði sína einkennislykt
svo fólk vissi hver væri að græða
þann daginn. Einn væri með van-
illuilm, annar með angan af
nýslegnu grasi, og auðvitað eng-
inn með gömlu skítafýluna. Ég er
viss um að fólk yrði hrifið af
þessu. Ekki bara væri þetta snið-
ug tilvitnun í fortíðina heldur
fengi almenningur það á tilfinn-
inguna að hann væri virkur þátt-
takandi í stuðinu.
Peningalyktin
F
ít
o
n
/
S
ÍA
-
S
v
e
n
n
i
S
p
e
ig
h
t
Til þjónustu
reiðubúinn
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Tími þinn er dýrmætur. Markmið Vodafone er að leysa öll
vandamál í fyrsta símtali til að þú getir nýtt tímann sem best.
Við gefumst ekki upp fyrr en vandamálið hefur verið leyst.
1414 – og vandamálið er úr sögunni
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012