Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 94
„Þetta verður það sama og með
geirfuglinn sem var boðinn upp úti
í London á sínum tíma. Það fór
fram söfnun og uppboðshaldarinn
úti vissi upp á krónu hvað safnað-
ist og fuglinn fór á það,“ segir
Tryggvi Páll Friðriksson í Gallerí
Fold og einn helsti uppboðshaldari
Íslands.
Eins og fram hefur komið í
fréttum, meðal annars á forsíðu
Morgunblaðsins á þriðjudag, hefur
komið fram áður óþekkt verk eftir
Kjarval, í kúbískum stíl, í Dan-
mörku og verður það boðið upp í
lok þessa mánaðar hjá Bruun
Rasmussen. Verkið er metið á 1,2
til 1,8 milljónir af Bruun en fast-
lega má gera ráð fyrir því að
áhugasamir kaupendur vilji gefa
allt að fimm milljónir fyrir það.
Í samtali við bæði Morgunblað-
ið og fréttastofu RÚV lét safnstjóri
Listasafns Reykjavíkur, Hafþór
Yngvason, þess svo getið að þarna
væri um mjög merkt verk að ræða
sem safnið vildi gjarnan eignast.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa þessi ummæli reynst
olía á eld áhugasamra listaverka-
kaupenda sem nú hafa fengið á því
staðfestingu að þarna sé dýrgripur
á ferð. Fréttablaðið hefur heimild-
ir fyrir því að nokkrir vellauðugir
listaverkakaupendur séu í start-
holunum og það hefur Tryggvi
einnig heyrt. Áhugi Hafþórs er
metinn á tveggja milljóna
króna hækkun á upp-
boðinu.
„Ég get ekki ímynd-
að mér annað. Já,
margir hafa áhuga á
þessu verki og
hann minnkar
ekki við þessi
ummæli safn-
stjórans. Þetta
er stór mynd
og gæti farið á fimm milljónir.
Jafnvel meira. Þessi mynd er góð,
mjög sérstök, það er hárrétt, og
það væri slys ef hún lenti ekki inni
á safni. En hins vegar myndi ég
ekki flíka því ef ég ætlaði að kaupa
hana. Þeir eru það margir sem
græða svo mikið hér á landi að þeir
depla ekki auga yfir tveimur millj-
ónum,“ segir Tryggvi í Fold sem
telur sénslaust að væntanlegir
kaupendur taki mark á því
þegar Hafþór höfðar til þjóð-
arhollustu þeirra og láti Lista-
safninu það eftir að bjóða eitt í
verkið.
„Við ætlum að bjóða og erum
með eitthvert fé til þess,“
segir Hafþór Yngvason
safnstjóri. Hann segir
eðlilegt að þegar verk
rati á forsíðu Morg-
unblaðsins þá veki
það athygli og hækki
verðið.
„En það myndi
skjóta skökku við ef ég segði ekki
þetta verk þess virði. Og ég tel
mikilvægt að það fari á opinbert
safn og verði sameign þjóðarinn-
ar.“
Safnið hefur ekki úr miklu fé að
spila og Hafþór segir það vissu-
lega verra ef menn færu að bjóða
af kappi á móti safninu spurður um
hvort hann sé að reyna að höfða til
þjóðarhollustu væntanlegra
íbjóðenda.
„En þetta er opinn mark-
aður. Nei, það er ekki
ákveðið hvort ég fari sjálf-
ur út til Danmerkur á
vegum safnsins eða ein-
hver annar.“
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Nei, sögurnar um það að Páll
Valsson sé að hætta hjá Eddu eru
stórlega orðum auknar,“ segir
Árni Einarsson, forstjóri Eddu
útgáfu.
Páll Valsson hefur verið útgáfu-
stjóri Máls og menningar um ára-
bil en nú verður breyting á starfs-
lýsingu hans. Að sögn Árna
stendur til að breyta um áherslur í
starfi hans, „smávægilegar innan-
hússbreytingar“, en Páll mun eftir
sem áður starfa innan Eddu
útgáfu, að sögn Árna. Kjarninn í
hans starfi verður svipaður og
verið hefur.
„Þú ert ekki fyrsti fréttamað-
urinn sem hringir og spyr um
þetta. Við grípum til þess að
senda frá okkur tilkynningu á
morgun [í dag] þar sem fram
kemur sannleikurinn í málinu.
Þessar sögur eru ættaðar ein-
hvers staðar annars staðar frá en
okkur. Það er svona sem íslensk-
ar kjaftasögur verða til,“ segir
Árni og má ljóst vera að honum
er ekki skemmt.
Ekki náðist í Pál í gær en nýver-
ið hætti Kristján Bjarki Jónasson
hjá fyrirtækinu en hann hafði
verið þróunarstjóri Eddu lengi
sem og Dröfn Þórisdóttir, útgáfu-
stjóri Vöku-Helgafells. Þannig
virðist sem nokkur endurskipu-
lagning innan fyrirtækisins sé nú í
gangi innan þessa stærsta forlags
Íslands.
Breytingar hjá Eddu útgáfu
„Ég er rífandi stolt af nafni mínu,
er fædd og skírð upp á norska vísu
í Nordstrandkyrkje,“ segir Björg
Siv Juhlin Friðleifsdóttir, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra, þegar hún er spurð um
nýlegan úrskurð mannanafna-
nefndar um að nafnið Siv sam-
ræmist ekki íslenskri hefð. „Ég fæ
vonandi að komast aftur inn í land-
ið,“ bætti Siv við en ráðherra var
staddur í Brussel þegar Frétta-
blaðið ræddi við hana.
Mannanafnanefnd hefur
úrskurðað að nafnið Siv sam-
ræmist ekki íslenskri hefð en þó
nokkrir hafa sótt um að fá að
skíra stúlkubörn sín þessu nafni.
Ekki voru gerðar neinar athuga-
semdir við nöfnin Eufemía,
Róbjörg, Líba og Marit og þá eru
nöfnin Jeanne og Íssól til skoð-
unar. En ljóst er að sannkristnir
framsóknarmenn geta ekki nefnt
börn sín eftir ráðherranum.
Samkvæmt Hagstofu bera fimm
konur nafnið Siv sem eiginnafn
og fjórar sem millinafn.
„Ég gæti náttúrlega laumast
inn með nafnið Björg sem er gott
og gilt íslenskt nafn,“ hvíslar
ráðherra sem er ekki að fetta
fingur út í mannanafnanefndina
umdeildu og segir hana bara
vera að vinna sitt verk. „Þeir eru
að huga að íslenskunni og vernda
hana eftir bestu getu. Og þessi
nefnd er ekki úrelt fyrirbæri,“
segir Siv. „Þrátt fyrir þennan
úrskurð,“ bætir hún við og tekur
þetta augljóslega ekki nærri
sér.
Nafnið Siv með v-i er komið úr
norrænni goðafræði og hét meðal
annars kona Þórs þessu nafni. „Ég
hef sjálf beygt þetta eftir íslensk-
um reglum en séð ýmislegt skraut-
legt þegar kemur að notkun þess.
Sumir hafa skrifað Svif eða jafn-
vel Svið,“ segir Sif og hlær.
Ólögleg Siv er ekkert sár
… fær Guðni Ágústsson, sem
lætur lélegt gengi Framsóknar
ekki lama sig og brá meira að
segja á leik með fjöllistamanni
á Klörubar á Kanaríeyjum um
helgina.
Gnoðavogi 44, s. 588 8686.
Opið alla laugardaga 11-14
SÚR HVALUR - SÚRT RENGI
HARÐFISKUR
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is