Fréttablaðið - 15.02.2007, Side 13

Fréttablaðið - 15.02.2007, Side 13
 Palestínumenn ætla fljót- lega að hefja samningaviðræður um nýja þjóð- stjórn með þátttöku beggja helstu fylkinga þeirra, Hamas og Fatah. Mörg erfiðustu deilu- efni þeirra eru þó enn óleyst, eins og til dæmis hver fari með yfirsstjórn öryggissveitanna og hvað verði um vopnaðar sveitir Hamas- samtakanna. Sömuleiðis er enn alls óvíst hver viðbrögð Ísraelsstjórnar verða. Ísraelar hafa hingað til viljað ræða við Mahmoud Abbas, leiðtoga Fatah og forseta Palestínustjórnar, en neitað að eiga orðastað við Ismail Haniyeh, leiðtoga Hamas og forsætisráðherra stjórnarinnar, sem segir af sér í dag. Þeir Haniyeh og Abbas hitt- ast síðar í dag til að hefja viðræður sínar, en þeir þurfa að ljúka stjórnarmyndun innan fimm vikna. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur sagt að Ísraelsstjórn muni hugsanlega slíta öll tengsl við Abbas, telji hún þjóðstjórn- ina ekki ætla að uppfylla þau skilyrði að viður- kenna tilverurétt Ísraelsríkis, viðurkenna fyrri friðarsamninga og hafna öllu ofbeldi. Hörð átök hafa verið milli liðsmanna Fatah og Hamas svo legið hefur við borgarastríði, en á fundi leiðtoga beggja fylkinganna í Mekka í Sádi-Arabíu um helgina tókst sam- komulag milli þeirra, sem þó er óvíst hversu auðvelt verður að framkvæma. Á mánudaginn næsta ætlar Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að hitta bæði Haniyeh og Abbas á sameiginleg- um fundi þeirra þriggja, og þá gæti verið að málin skýrist eitthvað. Mörg erfiðustu deiluefnin enn óleyst Forfallakennari í bandarískum smábæ á yfir höfði sér allt að 40 ára fangelsisdóm eftir að hafa verið sakfelldur fyrir að sýna nemendum klám. Hin fertuga Julie Amero segist lítið hafa kunnað á tölvur og því verið ráðalaus þegar gluggar með klámfengnu efni tóku að birtast í sífellu á skjá skólatölvunnar í miðri kennslu. Saksóknari dró þetta í efa ásamt kviðdómi sem sakfelldi Amero. Tölvusérfræðingar hafa gagnrýnt úrskurðinn og segja þetta geta komið fyrir hvern sem er. Óumbeðnum forritum sé oft komið fyrir í tölvum sem geti síðan birt auglýsingar á borð við þær sem komu á skjá Amero. Klám birtist á tölvuskjá í tíma Bæjarstjórnir Bolungarvíkur og Ísafjarðar lýsa yfir fögnuði sínum með nýja samgönguáætlun Sturlu Böðvars- sonar samgönguráðherra sem kynnt var á mánudag. Óshlíðarjarðgöng, milli bæjanna tveggja, koma til með að leysa af hólmi viðsjárverðan veg og sameina sveitarfélögin í eitt atvinnu- og þjónustusvæði, segir í yfirlýsingu frá bæjarstjórnunum tveimur. Þverun Mjóafjarðar og Reykjarfjarðar er einnig fagnað þar vestra sem og fyrirsjáanlegri vegagerð um Arnkötludal. Að lokum segja bæjarstjórn- irnar það fagnaðarefni að gert sé ráð fyrir því í áætluninni að leggja göng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, því þannig tengist norður- og suðursvæði Vestfjarða með öruggum hætti. Sameinaðar í fögnuðinum Aflinn í janúar 2007 var 80.014 tonn sem er nær tvöfalt meiri afli en í janúar 2006 en þá var aflinn 41.536 tonn. Munar mest um meiri loðnuafla í ár. Botnfiskaflinn í janúar var 33.370 tonn sem er álíka og botnfiskaflinn í janúar í fyrra en þá var aflinn 32.368 tonn. Landað var 40.565 tonnum af loðnu í nýliðnum janúar. Loðnu- aflinn var minni í janúar 2006 en þá var aðeins landað 8.546 tonnum af loðnu. Nú var líka landað 5.329 tonnum af sumar- gotssíld af íslenskum skipum en í janúar 2006 var síldaraflinn 569 tonn. Heildarafli fiskveiðiársins 2006/2007 var kominn í tæplega 436 þúsund tonn í lok janúar. Meiri fiskafli nú

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.