Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 33

Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 33
húsráð} Glerkarafla frá Georg Jensen er einstök prýði á borði. Hún er ætluð fyrir vatn. Vatnskaraflan frá Georg Jensen er hönnuð af Ole Palsby. Hún er með silfurstút og er sérstaklega hönnuð með tilliti til þess að ekki drjúpi af henni eftir að hellt hefur verið í glösin. Karaflan er frá- bært dæmi um stílhreina, skandinavíska hönnun. Stílhrein hönnun Árlega velur EISA – European Imaging and Sound Association – bestu raftækin í hverjum flokki. Ótrúlega mikið er framleitt af raftækjum. Þegar kemur að því að finna besta tækið miðað við verð og gæði er nær ógjörning- ur að komast í gegnum þann frumskóg og komast klakklaust að niðurstöðu. EISA ætti að geta aðstoðað þegar rata þarf rétta leið. EISA – European Imaging and Sound Association, eru samtök ritstjóra hljóð-, mynda- töku-, ljósmyndunar-, heima- bíó- og bíla-raftímarita. Tíma- ritin eru um 80 frá 20 löndum, en samtökin voru stofnuð árið 1982. Árlega veitir EISA verð- laun fyrir það besta sem kemur fram á árinu á sviði raftækja. Þetta er gert út frá ýmsum for- sendum eins og gæðum, hversu mikið fæst fyrir peninginn, út frá útliti og umhverfisvernd. Neytendur ættu að kanna heimasíðu EISA, www.eisa- awards.org, og kanna með hverju samtökin mæla í hverj- um flokki. Þegar kemur að því að velja dýr raftæki sem eiga að endast er nefnilega öll hjálp vel þegin. EISA-verð- launin Armadillo er brauðkassi sem hannað-ur er eftir útliti beltisdýrsins. Brauðkassinn Armadillo er til sölu á vef- síðunni wheredidyoubuythat.com og hefur hlotið mikla athygli. Armadillo er enskt heiti á beltisdýri, og líkir kassinn eftir útliti dýrsins. Kass- inn er úr áli, tré og plasti og passar utan um einn góðan brauðhleif eða nokkra osta. Brauðkassinn hentar einnig til að bera brauðið fram á kaffiborðið þar sem hægt er að láta hann standa opinn en botn kass- ans er eins og brauðbretti og því vel hægt að skera brauðið í kassanum. Beltisdýrið sem geymir brauðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.