Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 44
fréttablaðið háskóladagurinn 15. FEBRÚAR 2007 FIMMTUDAGUR2
Íslenskir háskólar standa að
sameiginlegri kynningu á
starfsemi sinni á háskóladag-
inn, laugardaginn 17. febrúar.
„Markmiðið með háskóladegin-
um er að kynna starfssemi háskól-
anna,“ segir Jóhann Hlíðar Harð-
arsson, markaðsstjóri Háskólans
í Reykjavík og einn forsvars-
manna háskóladagsins.
„Þetta er í fyrsta sinn sem allir
háskólar landsins taka þátt í sam-
eiginlegri kynningu,“ heldur
Jóhann áfram. „Áður fyrr héldu
þeir daginn hver í sínu lagi, oft
ekki á sama mánaðardegi. Það
gerði mörgum erfitt fyrir, til
dæmis fólki utan af landi sem
þurfti þá kannski að gera sér
margar ferðir í bæinn til að kynna
sér námið. Einn háskóladagur er
því hugsaður til hagræðingar og
sem bætt þjónusta fyrir almenn-
ing.“
Jóhann segir að margar áhuga-
verðar nýjungar verði kynntar á
deginum. „Listaháskóli Íslands
kynnir til dæmis sérhæfingu í
tónsmíðum, þar sem menn geta
lært nýmiðlunar, sviðs- og kvik-
myndatónlist. Háskólinn í Reykja-
vík mun meðal annars kynna nýtt
nám í alþjóðaviðskiptum. Þá legg-
ur Háskólinn á Bifröst áherslu á
sérstöðu sína sem eina háskóla-
svæðið þar sem menn geta lært
félagsvísindi. Svo eru Háskóli
Íslands og Kennaraháskóli
Íslands að sameinast. Loks kynn-
ir Landbúnaðarháskóli Íslands
nýtt nám í hestafræðum og svo
mætti lengi telja áfram.“
Háskólarnir munu kynna starf-
semi sína á þremur stöðum að
sögn Jóhanns. „Háskólinn á Akur-
eyri, Háskólinn á Bifröst, Háskól-
inn í Reykjavík, Hólaskóli -
Háskólinn á Hólum,
Landbúnaðarháskóli Íslands og
Listaháskóli Íslands verða í Borg-
arleikhúsinu, þar sem mennta-
málaráðherra Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir setur daginn.
Háskóli Íslands verður í Háskóla-
bíói og Kennaraháskóli Íslands í
núverandi húsnæði skólans við
Stakkahlíð. Kynningar hefjast
klukkan 11.00 og standa yfir til
16.00.Sams konar dagur verður
haldinn á Egilsstöðum, Ísafirði og
Akureyri í mars.“
Nánar á www.haskoladagur-
inn.is. roald@frettabladid.is
Hagræðing fyrir almenning
Jóhann Hlíðar Harðarsson, markaðsstjóri Háskólans í Reykjavík, er einn forsvars-
manna háskóladagsins sem háskólar landsins standa að. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hólaskóli býður upp á þrjár
greinar sem allar eru í sókn í
atvinnulífi landsmanna. Þær
eru ferðamál, fiskeldi og hesta-
mennska. Lilja Pálmadóttir,
húsfreyja á Hofi á Höfða-
strönd, er nemandi í þeirri
síðastnefndu.
Lilja byrjaði í skólanum í haust
og kveðst hafa lært gríðarlega
margt á þeim mánuðum sem liðn-
ir eru síðan. „Áherslan á fyrsta
ári námsins er á reiðmennskuna
og núna erum við að læra svokall-
aðar dressúr-æfingar. Þar eru fín-
stillingar, fimiæfingar og fleira
sem reynir á þolinmæðina en er
jafnframt mjög skemmtilegt. Hér
eru miklir gúrúar í reiðmennsku
sem endalaust er hægt að læra af.
Toppreiðkennarar,” segir hún.
Spurð hvað hafi orðið til þess
að hún fór í Hólaskóla svarar
Lilja. „Hestabakterían lét mig
ekki í friði. Þetta fag er kjörið
fyrir fólk sem hefur gaman af
hestamennsku og er með full-
komnunarþörf svo það hentar
mér vel. Ég hef verið í hestum frá
því ég var smákrakki en áhuginn
hefur ágerst með aldrinum. Nú
fannst mér kominn tími á að ná
lengra en vera bara áhugamaður í
greininni og reyna að eflast sem
fagmaður.“
Lilja segir námið vera strangt.
Mikið bóklegt og skóladaginn
langan. „Maður þarf að hafa sig
allan við,“ viðurkennir hún og
segir að persónulega hefði hún
viljað hafa verklega þáttinn
stærri en þann bóklega. „Á móti
kemur að margt af því sem maður
lærir af bókinni nýtist vel í öllu
hestahaldi,“ bætir hún svo við.
Hún kveðst vera með eigin hesta
í skólanum og fara á bak þeim á
hverjum degi enda séu reiðtímar
í skólanum daglega.
Þar sem margt rúmast undir
hatti hestamennskunnar svo sem
reiðmennska, tamningar, keppn-
ir, ferðamennska og ræktun er
Lilja spurð hvaða greinar heilli
hana mest. „Það eru fyrst og
fremst reiðmennskan og hrossa-
ræktin. Svo auðvitað ferðalög á
hestunum sem alltaf eru skemmti-
leg.“
Á öðrum vetri námsins er
áherslan á tamningar og þriðja
árið á þjálfun og reiðkennslu.
Skyldi Lilja ætla að klára pakk-
ann? „Maður verður nú fyrst að
ná í vor,” svarar hún kankvís og
bætir svo við: „Það er líklegra en
hitt að ég haldi áfram en ég hef
ekkert fengist við tamningar
fram að þessu.“
Margir nemenda Hólaskóla
búa á heimavist en Lilja keyrir
daglega milli Hofs og Hóla, 27
kílómetra leið. „Ég er 25 til 30
mínútur í hálku og myrkri.“ segir
hún hress og þegar henni eru
boðin lokaorð í viðtalið svarar
hún að bragði: „Bara – ríðum heim
til Hóla!“
gun@frettabladid.is
Ríðum heim til Hóla
Lilja með einn af hestum sínum sem heitir því hógværa nafni Sigur frá Húsavík. MYND/SÓLRÚN HARÐARDÓTTIR
Verð á yfir 1000 prentlausnum.
Pantaðu þitt eintak á www.oddi.is
Prentsmiðjan Oddi ehf. • Höfðabakka 3-7 • 110 Reykjavík • Sími 515 5000
SKOÐAÐU, VELDU,
PANTAÐU!
O
D
D
IH
Ö
N
N
U
N
P
07
.0
0.
42
2