Fréttablaðið - 15.02.2007, Side 45

Fréttablaðið - 15.02.2007, Side 45
Námið samþættir með markvissum hætti viðskipta- og lögfræðigreinar. Frá upphafi er því stefnt að sérhæfingu innan lögfræðinnar með því að veita nemendum traustan grunn á hagnýtu sviði viðskiptalífsins. Stjórnendanám. Hugmyndin á bakvið viðskiptalögfræðina er að búa nemendur undir að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem bíða stjórnenda í atvinnulífinu. Þar þarf að fást við viðfangsefni sem krefjast þekkingar, jafnt í viðskiptafræði sem og lögfræði. Námið er sex annir. Þú getur lokið BS námi á sex önnum. Metnaðarfullir nemendur geta lokið sex önnum á tveimur árum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu í smærri hópum og raunhæfum verkefnum. Reynslan hefur sýnt að útskrifaðir nemendur eru eftirsóttir starfskraftar víðsvegar í atvinnulífinu og eru m.a. vel undir það búnir að hefja feril sinn hjá fjármála-, endurskoðenda- og ráðgjafafyrirtækjum. Viðskiptalögfræði á Bifröst Framhaldsnám. Þeir sem hyggja á frekara nám eftir viðskiptalögfræðina geta tekið MS gráðu í viðskiptalögfræði. Standi hugur fólks til þess að stunda málflutningsstörf er hægt að taka ML gráðu í lögum sem framhaldsnám. Verið velkomin á kynningu okkar á Stóra háskóladeginum í Borgarleikhúsinu, laugardaginn 17. febrúar frá kl. 11:00-16:00. Stjórnenda- og leiðtogaskóli í 89 ár

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.