Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 80

Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 80
! Kl. 22.00 Hljómsveitin South River Band heldur tónleika á Café Rosenberg í Lækjargötu. Sveitin er að hljóð- rita nýtt efni um þessar mundir og mun leika það í bland við eldri lög. Á efnisskránni eru lög frá ýmsum heimshornum, auk laga og texta eftir meðlimi sveitarinnar. Ókeypis aðgangur á meðan húsrúm leyfir. Vetrardagskrá djassklúbbsins Múlans hefst á ný á Domo Bar í kvöld en sextán tónleikar eru fyr- irhugaðir þar á næstunni. Múlinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra hljómlistarmanna og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á helsta djassgeggjara þjóðarinnar, Jóni Múla Árnasyni, sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Dagskráin er að vanda bæði metnaðarfull og fjölbreytt og er gott dæmi um þá miklu grósku sem einkennir íslenskt djasstón- listarlíf og eiga allir straumar og stefnur heima í Múlanum. Auk tónleikanna sextán sem endast munu fram í júní verða sérstakir glæsilegir afmælistónleikar síðar í febrúar með hinum þekkta danska trommuleikara Alex Riel ásamt tríói hans. Í mars leikur Jazzbræðings- sveitin Gammar sem og tríó Ómars Guðjónssonar gítarleikara auk þess sem saxófónleikarinn Haukur Gröndal heldur tvenna tónleika ásamt félögum í kvintett og kvartett. Blúshátíð í Reykjavík fer fram á Domo Bar í apríl en Múlinn skipuleggur tónleika Kvintetts Jóels Pálssonar, tón- leika til heiðurs Ahmad Jamal tríóinu um miðjan aprílmánuð. Tregasveit Kristjönu Stefánsdótt- ur söngkonu rekur síðan lestina og flytur uppáhalds blúslög söng- konunnar 26. apríl. Með vorinu lætur Tómas R. Einarsson sjá sig ásamt Latínkvartett sem og Kvint- ett Andésar Þórs en í maí treður einnig upp óvenjulegur kvartett sem kennir sig við OC/DC en hans helsta aðalsmerki er músík saxóf- ónleikarans Ornettes Coleman. Það er þó glæný hljómsveit sem ríður á vaðið í kvöld en bandið The Riot skipa samt kunnuglegir kappar. Gítarleik- ararnir Björn Thoroddsen og Halldór Bragason leiða sveitina en sá síðarnefndi syngur jafn- framt, með þeim leika Jón Ólafsson píanóleikari, Jón Rafnsson bassaleikari og trommuleikarinn Ásgeir Ósk- arsson. Tónlistin sem þeir félag- ar leika verður „uppreisn gegn poppi, blús og djasstónlist, undir áhrifum frá kosmískum kröftum. Snarstefjaður sígauna- seiður að hætti galdramanna af ströndum við ljóð Snorra á Hús- felli og Roberts Johnson með takthrynjandi voodoo-galdra- manna Missisippi og seiðmanna Afríku“. Allir tónleikarnir hefjast kl. 21 en nánari upplýsingar um dag- skrá Múlans verður að finna á heimasíðunni jazz.is. Múlinn steðjar af stað Hinn eftirsótti Terem-kvartett heldur tónleika í Salnum í kvöld en þeir rússnesku snillingar hafa hlot- ið nafnbótina þjóðargersemi Rúss- lands hjá gagnrýnendum auk þess að fá blessun frá páfa og móður Theresu. Uppselt er á tónleikana í kvöld en vegna frábærrar aðsókn- ar hefur aukatónleikum verið bætt við á sama tíma annað kvöld. Þessi fjörugi og lífsglaði tónlist- arhópur kom fyrst fram á Íslandi á rússneskri menningarhátíð í Kópa- vogi fyrir tveimur árum og sló þá eftirminnilega í gegn. Þeir nutu dvalarinnar hér og vildu gjarnan koma á ný í Salinn og leika fyrir Íslendinga. Að þessu sinni óskuðu þeir eftir að fá söngkonuna Diddú í lið með sér og mun hún koma fram með þeim um helgina. Terem-kvartettinn var stofnað- ur í Pétursborg árið 1986 en hefur frá upphafi fetað ótroðnar slóðir í tónlistarflutningi sínum. Félagarn- ir leika á þjóðleg rússnesk hljóð- færi og hafa fundið nýjar leiðir til að laða fram hvers kyns tónlist en sköpunargleði hópsins er annáluð um allan heim sem og agi þeirra, kæti og leikræn tilþrif. Hópurinn viðar að sér tónlist úr ýmsum áttum og leikur allt frá umskrifunum fyrir breytta hljóð- færaskipan til þversagnakenndra tónævintýra sem byggð eru á þekktum stefjum eftir meistara á borð við Bach, Mozart, Rossini, Bizet og Piazzolla. Eftir hlé syngur Diddú með kvartettinum og þá eru einnig íslensk lög á efnisskránni. Tónleikarnir hefjast kl. 20 í kvöld og annað kvöld en nánari upplýsingar um flytjendurna má finna á heimasíðu Salarins. Terem-kvartettinn snýr aftur „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.