Fréttablaðið - 23.02.2007, Side 16
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
er heiðursverðlaunahafi Samfé-
lagsverðlauna Fréttablaðsins í ár.
Verðlaunin fær hún fyrir það frá-
bæra starf sem hún hefur unnið
með Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórn-
um en kórstjórn hennar spannar
nærri 40 ár. Þorgerður segir alltaf
gott að fá viðurkenningu fyrir að
gera rétta og góða hluti. „Það er
ekki daglegt brauð að fólk í kenn-
arastörfum, læknar eða aðrir þeir
sem vinna mennsk störf séu faðm-
aðir en samt vill maður hafa þetta
fólk þarna. Þetta hlýjar manni því
óneitanlega um hjartarætur og er
mjög gleðjandi. Þessi ár hafa verið
mjög gefandi en gefandi er
kannski ekki alltaf það sama og
auðvelt. Þetta hefur líka verið
krefjandi og ögrandi á jákvæðan
hátt og þetta er lifandi starf, upp-
eldisstarf og listrænt starf um leið
sem krefst þess að maður sé mann-
eskja. Þannig þarf að samræma
það að vera góð fyrirmynd, geta
tekið að sér þetta uppeldishlut-
verk en um leið verður að vinna
sem listamaður ef maður ætlar að
reyna að ná listrænum hæðum inn
á milli.“ Þorgerður segir mikil-
vægt að störfum sem snúa að
mannlegu hliðinni sé gert hátt
undir höfði, sérstaklega á þeim
tímum sem við lifum á nú. „Sam-
tími okkar og þjóðfélag er orðið
gegnumsýrt af yfirborðsmennsku
og miklu eirðarleysi þar sem eng-
inn hefur tíma til að vera til. Við
erum andlegar verur og þurfum
eitthvað til að vega upp á móti
græðgisgauragangi.“
Mennskt og listrænt starf
- úrval af ferskum fiski og
tilbúnum fiskréttum
Er matarboð
um helgina?
„Markmiðið með Samfé-
lagsverðlaununum er að
draga fram í dagsljósið
brot af öllum þeim kær-
leiksverkum sem unnin eru
í samfélaginu,“ sagði Stein-
unn Stefánsdóttir, formaður
dómnefndar og aðstoðar-
ritstjóri Fréttablaðsins, við
hátíðlega athöfn sem haldin
var í gær á Hótel Nordica
vegna veitingu Samfélags-
verðlauna Fréttablaðsins.
„Með verðlaununum er kastljósinu
beint að öllu því fólki sem dag
hvern leggur fram með áþreifan-
legum hætti sinn skerf til þess að
bæta samfélag okkar. Þetta er fólk
sem starfar í þeim anda að gera
alltaf eitthvað umfram það sem
starf þeirra eða borgaraleg skylda
segir til um og iðulega mikið
umfram. Markmiðið með Samfé-
lagsverðlaununum er að gera þessi
verk sýnileg, að heiðra þessa sam-
borgara okkar sem slík verk
ástunda og vinna iðulega störf sín í
hljóði. Þannig getur þetta fólk jafn-
vel orðið öðrum fyrirmynd.“ Að
svo sögðu voru hinir tilnefndu
kynntir einn af öðrum og verðlaun
voru veitt í sex flokkum.
Almenningi bauðst að senda til-
nefningar til Fréttablaðsins og
mikill fjöldi tilnefninga barst svo
úr vöndu var að ráða hjá dóm-
nefndinni. Hún var skipuð af Ölmu
Geirdal, fulltrúa Forma, samtaka
átröskunarsjúklinga, en þau sam-
tök hlutu Samfélagsverðlaunin í
fyrra, Gísla Marteini Baldurs-
syni,borgarfulltrúa, Hildi Peter-
sen, stjórnarformanni Sparisjóðs
Reykjavíkur, Svanfríði Jónasdótt-
ur, bæjarstjóra á Dalvík, og Stein-
unni Stefánsdóttur, aðstoðarrit-
stjóra Fréttablaðsins.
Þrír verðlaunahafar hlutu ferða-
vinning frá Iceland Express, tveir
verðlaunahafa fengu tölvuverð-
laun en Samfélagsverðlaunin sjálf
voru gjafabréf upp á eina milljón
króna. Þorsteinn Pálsson, ritstjóri
Fréttablaðsins afhenti þau Reyni
Ingibjartssyni, formanni AFA –
aðstandendafélags aldraðra. „Sam-
tökin hafa sýnt frumkvæði og elju-
semi við að vekja athygli á
málefnum aldraðra og stöðu þeirra
í íslensku samfélagi,“ sagði Þor-
steinn í ávarpi sínu. „Áherslan í
starfi samtakanna hefur einkum
legið í að þrýsta á stjórnvöld um
úrbætur í kjara- og húsnæðismál-
um aldraðra.“ Reynir Ingibjarts-
son, formaður Félags aðstandenda
aldraðra, tók við verðlaununum
fyrir hönd AFA með þakkarræðu
og sagði þau „stórkostlega hvatn-
ingu“. Reynir sagði milljónina
aldeilis koma sér vel fyrir samtök-
in og þeirra fyrsta starf yrði að
koma loksins á fót heimasíðu sam-
takanna. „Okkur hlýnar um hjarta-
rætur að fá þessa miklu viðurkenn-
ingu. Við erum stolt af því að vera
öflugur hópur sem hafði frum-
kvæði að því að virkja aðstandend-
ur til þess að hjálpa öldruðu fólki.
Ég hef sjaldan orðið eins hissa og
þegar ég fékk þessa upphringingu
um tilnefninguna, hún kom eins og
sending af himnum ofan.“ Heið-
ursverðlaun kvöldsins hlaut Þor-
gerður Ingólfsdóttir, stjórnandi
Hamrahlíðarkórsins, og veitti Jón
Kaldal, nýorðinn ritstjóri Frétta-
blaðsins henni verðlaun fyrir ómet-
anlegt framlag hennar til tónlistar-
uppeldis þess stóra hóps sem hún
hefur starfað með.
Verðlaun voru veitt í fimm
flokkum auk Samfélagsverðlaun-
anna sjálfra en þeir voru: Hvunn-
dagshetjan, Uppfræðari ársins,
Framlag til æskulýðsmála, ein-
staklingur eða hópar sem hafa
unnið ötullega að því að eyða for-
dómum í samfélaginu og heiðurs-
verðlaun. Þetta er í annað sinn sem
Samfélagsverðlaunin eru veitt en
Steinunn sagðist vera stolta af því
að festa þau í sessi.
„Við ýttum þeim úr vör í fyrra
og vorum mjög ánægð með hvern-
ig til tókst. Hugmyndin að Samfé-
lagsverðlaununum á sér enn lengri
sögu. Við stefnum að því að verð-
launaveitingin verði árlegur við-
burður sem beðið er með eftir-
væntingu.“
Um eitt hundrað gestir voru
viðstaddir athöfnina á Hótel Nord-
ica og hljómsveitin B3 tríó lék fyrir
gesti sem einnig gæddu sér á ljúf-
fengum veitingum.