Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur
Talsverð
áskorun
Meðalverð trjánna um 40 þúsund
Romano Prodi fær að öllum
líkindum umboð til að
mynda nýja stjórn á Ítalíu.
Hann setur þó þau skilyrði
að meirihlutinn á þingi
verði traustari en sá sem
brást í vikunni.
Eftir afsögn Prodis á miðvikudag-
inn hefur forseti Ítalíu, Giorgio
Napolitano, boðað leiðtoga stjórn-
málaflokkanna á sinn fund til að
kanna hvort möguleiki sé á nýrri
meirihlutastjórn.
Þær viðræður halda áfram í
dag en að því búnu er búist við að
forsetinn feli Romano Prodi að
mynda nýja stjórn. Ef hins vegar
forsetinn sér enga möguleika á
nýjum meirihluta þá á hann ekki
annars kost en að boða til kosn-
inga, þótt aðeins séu liðnir tíu
mánuðir af fimm ára kjörtímabili
þingsins.
Óstöðugleiki hefur loðað við
ítölsk stjórnmál allt frá lokum
seinni heimsstyrjaldarinnar og
ríkisstjórn Prodis átti sér ekki
langa lífdaga – ekki frekar en
flestar aðrar stjórnir landsins síð-
ustu áratugina. Undantekningin
var ríkisstjórn Silvios Berluscon-
is, sem hélt út í heilt kjörtímabil
árin 2001 til 2006.
Prodi sigraði í þingkosningunum í
apríl síðastliðnum með afar naum-
um meirihluta, svo naumum
reyndar að í gjörvallri sögu
ítalskra stjórnmála hefur munur-
inn aldrei verið minni. Stjórn hans,
sem tók við völdum í maí, hefur
því alla tíð staðið afar tæpt og fyr-
irfram vitað að minnsti ágreining-
ur í stjórnarliðinu gæti orðið henni
að falli.
Það sem varð stjórninni að falli
núna voru áform hennar um að
hafa nærri tvö þúsund manna her-
lið áfram í Afganistan. Það var
forveri Prodis í embætti, Silvio
Berlusconi, sem á sínum tíma
ákvað að senda ítalskt herlið til
Afganistan. Þegar Prodi lýsti því
svo yfir að hann vildi hafa herliðið
þar áfram mætti hann strax mik-
illi andstöðu úr röðum eigin stjórn-
arliða og þá einkum frá róttækum
vinstri mönnum.
Einungis munaði tveimur atkvæð-
um til þess að utanríkisstefna
stjórnarinnar, og þar með vera
hersins í Afganistan, hlyti sam-
þykki í öldungadeildinni þegar
gengið var til atkvæða á miðviku-
daginn. Stjórnin þurfti 160 atkvæði
til þess að tryggja sér stuðning
deildarinnar, en fékk ekki nema
158 atkvæði.
Atkvæðagreiðslan var ekki
bindandi fyrir stjórnina og form-
lega séð snerist hún alls ekki um
stuðning við stjórnina, en Mass-
imo D‘Alema utanríkisráðherra
hafði áður lýst því yfir að stjórnin
ætti að segja af sér ef utanríkis-
stefnan hlyti ekki stuðning í deild-
inni.
Afsögnin þýðir þó ekki að Prodi
hafi gefist upp, því hann hefur
fullan áhuga á að vera forsætis-
ráðherra Ítalíu áfram. En þó ekki
skilyrðislaust.
„Prodi vill halda áfram ef, og
aðeins ef, hann fær tryggingu
fyrir fullum stuðningi frá öllum
stjórnarflokkum,“ hefur AP frétta-
stofan eftir talsmanni hans, Silvio
Sircana.
Líkur virðast á því að sumir
þingmenn frá miðju stjórn-
málanna, sem sagt hafa skilið við
hægribandalag Berlusconis, geti
hugsað sér að ganga til liðs við
stjórn Prodis.
„Að fela Prodi aftur umboð til
stjórnarmyndunar er sú leið sem
beinast liggur við, en hún getur
reynst varhugaverð. Það er nauð-
synlegt að forðast sömu mistökin
og þverstæðurnar sem leiddu til
falls þessarar stjórnar,“ segir
ítalski stjórnmálaskýrandinn
Stefano Folli, einnig í viðtali við
AP.
Fleira hefur orðið til þess að auka
andstöðu vinstri manna við stjórn
Prodis en sú ákvörðun að hafa
áfram ítalska hermenn í Afganist-
an.
Um helgina streymdu til dæmis
tugir þúsunda manna út á götur í
bænum Vicenza til þess að mót-
mæla því að bandaríska herstöðin,
sem þar er staðsett, verði stækkuð
og hermönnum þar fjölgað. Meðal
mótmælenda voru leiðtogar nokk-
urra vinstriflokka í samsteypu-
stjórn Prodis.
Þá aflaði stjórnin sér einnig
fyrir skemmstu óvinsælda meðal
kaþólsku kirkjunnar, og þar af
leiðandi einnig meðal þeirra
stjórnarliða sem tengjast kirkj-
unni, með því að samþykkja ný lög
sem heimila hjónum að fá lög-
skilnað og samkynhneigðum að
ganga í sambúð með blessun ríkis-
ins.
Allt þetta virðist hafa haft þau
áhrif að stjórnin stóð veikari og
náði ekki að afla sér stuðnings á
þingi við utanríkisstefnuna.
Prodi vill fá annað tækifæri
Sparidagar eldri borgara
- Fjölbreytt dagskrá alla daga
- Þriggja rétta kvöldverður öll kvöld
- Hádegisverður innifalinn (nýtt!)
Verð 29.800,- krónur á mann í tvíbýli
(5 nætur með kvöldverði og skemmtidagskrá)
Pantanir í síma 483 4700
18 - 16 febrúar: Uppselt
25 feb. - 2 mars: Uppselt
4 - 9 mars: Laus herbergi
11 - 16 mars: Uppselt
18 - 23 mars: Uppselt
25 - 30 mars: Uppselt
15 - 20 apríl: Uppselt
22 - 27 apríl: Uppselt
Gunnar Þorláksson
skemmtanastjóri