Fréttablaðið - 23.02.2007, Page 21
Samkeppnisyfirvöld Evrópu-
sambandsins segja ákvörðun um
leyfi írska lággjaldaflugfélagsins
Ryanair til að yfirtaka Aer Lingus
liggi ekki fyrir fyrr en um mitt ár.
Ekki er ljóst hvort Ryanair
ætlar að leggja fram nýtt yfir-
tökutilboð í félagið en orðrómur
hefur verið uppi um að félagið ætli
að hækka það um allt að 15 pró-
sent. Stjórnendur Ryanair vísa því
á bug.
Ryanair lagði fram yfirtökutil-
boð í Aer Lingus síðasta haust eftir
að ríkið einkavæddi félagið og
skráði á markað. Yfirtökutilboðið
hljóðaði upp á 2,8 evrur á hlut, 1,48
milljarða evra, jafnvirði um 130
milljarða íslenskra króna.
Ryanair hækk-
ar ekki tilboðið
Siðanefnd danskra fjölmiðla segir
ekki tilefni til að gagnrýna vinnu-
brögð Ekstra Bladet í Danmörku í
skrifum þess um Kaupþing banka
síðasta haust. Í frétt Ekstra Bladet
er niðurlæging bankans sögð
algjör.
Bankinn og stjórnarformaður
hans, Sigurður Einarsson, kærðu
til siðanefndarinnar skrif blaðsins
um bankann í október og nóvem-
ber síðastliðnum. Öllum atriðum
kærunnar var vísað frá. Í skrifun-
um var fjallað um sveiflur í
íslensku efnahagslífi og not bank-
ans af skattaparadísum á borð við
Lúxemborg og Bresku Jómfrúar-
eyjarnar.
„Við vonuðumst eftir því að
nefndin kæmist að annarri niður-
stöðu. Það er hins vegar ekkert
annað að gera í stöðunni en að
sætta sig við hana,“ segir Bene-
dikt Sigurðsson, upplýsingafull-
trúi Kaupþings. Hann segir ekki
hafa komið til tals að fara með
málið fyrir dómstóla í Danmörku.
Kaupþing er einnig að íhuga
málsókn fyrir breskum dómstól-
um vegna sama máls á þeim
grunni að umfjöllun blaðsins um
bankann birtist líka í enskri þýð-
ingu á heimasíðu þess.
Segja Kaup-
þing niðurlægt
Hafmynd, sem þróar og hannar
smákafbáta, hlaut nýsköpunarverð-
laun Rannís og Útflutningsráðs í ár.
Nýsköpunarverðlaunin eru veitt
fyrirtækjum sem þykja hafa skarað
fram úr í þróun nýrrar vöru eða
þjónustu, sem byggð er á rannsókn-
ar- og vísindastarfi og náð hafa
árangri á markaði.
Torfi Þórhallsson, framkvæmda-
stjóri Hafmyndar, veitti verðlaun-
unum viðtöku á Nýsköpunarþingi á
Grand Hóteli Reykjavík í gær.
Kafbátarnir byggja á einingum
sem má raða saman þannig að henti
hverjum notanda. Á heimasíðu
Rannís segir að með einingakerfinu
hafi Hafmynd tekist að uppfylla
þarfir ólíkra markhópa. Fyrirtækið
hefur meðal annars selt tæknibún-
að til bandaríska sjóhersins, Rann-
sóknarráðs Kanada, Háskóla
Bresku-Kólumbíu, rannsóknar-
stofnun sjóhers Ástralíu auk ótil-
greinds flota innan NATO.
Hafmynd hlýtur ný-
sköpunarverðlaun
V e r ð l æ k k a n i r 1 . m a r s 2 0 0 7
Miklar breytingar eru í vændum á skattlagningu matvara. Verð á flestum
matvörum á að lækka um 6,1% og í nokkrum tilvikum um 14,1% við
lækkun virðisaukaskatts. Neytendastofa hvetur alla til að vera vakandi
og fylgjast með því hvort verð lækkar ekki örugglega 1. mars. Með
því að geyma kassakvittanir úr verslunum og bera saman eftir 1. mars
má greina verðbreytingarnar á einfaldan hátt. Leitið skýringa í verslun
ef verð lækkar ekki.
Á heimasíðu Neytendastofu, www.neytendastofa.is, hefur verið
opnuð vefgátt undir heitinu Verðlagsábendingar – láttu vita! Þar er
með skjótvirkum hætti hægt að koma á framfæri ábendingum um það
hvort lækkanir á vöruverði hafi ekki skilað sér. Á síðunni eru einnig
aðgengilegar upplýsingar um þær matvörur sem eiga að lækka í verði
sem og aðra þá þætti sem lækkunin tekur til, s.s. veitingaþjónustu,
hótelgistingu og fleira.
Neytendur – stöndum vaktina saman!
Fylgist með – og látið vita
Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • www.neytendastofa.is
Neytendastofa
Actavis hlaut þekkingarverðlaun
Félags viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga í þriðja sinn í gær. Ein-
róma niðurstaða dómnefndar var
að veita fyrirtækinu verðlaunin,
en þema verðlaunanna í ár er
„samrunar og yfirtökur“.
Auk Actavis voru fyrirtækin
Marel og Össur tilnefnd til verð-
launanna. Jón Gunnar Jónsson,
framkvæmdastjóri Actavis á Ís-
landi, tók við Þekkingarverðlaun-
unum úr hendi Geir H. Haarde
forsætisráðherra, sem fenginn
var til að afhenda þau.
Í rökstuðningi dómnefndar
segir að Actavis hafi náð frábær-
um árangri við yfirtökur og sam-
einingar um heim allan. „Fyrir-
tækið hefur vaxið hratt og þrátt
fyrir hraðan vöxt hafa stjórnend-
ur enn skýra framtíðarsýn,“ segir
í rökstuðningnum. Bent er á að
Actavis hafi tekið yfir vel á þriðja
tug fyrirtækja á síðustu árum,
bæði einkafyrirtæki og félög
skráð í kauphöllum og að tekjur
fyrirtækisins hafa vaxið um 58
prósent að meðaltali á ári síðustu
sjö ár.
Þá var einnig valinn viðskipta-
fræðingur ársins en þann heiður
hlaut að þessu sinni Andri Már
Ingólfsson ferðamálafrömuður, en
honum var hrósað fyrir að hafa
tekist að gera rekstur sinn þann
þriðja stærsta á Norðurlöndum í
sinni atvinnugrein. Á Þekkingar-
deginum var einnig gerður að heið-
ursfélaga í Félagi viðskiptafræð-
inga og hagfræðinga Árni
Vilhjálmsson, prófessor við við-
skiptadeild Háskóla Íslands.
Actavis fékk þekkingarverðlaunin