Fréttablaðið - 23.02.2007, Síða 74
Virðisaukaskattur af tónlist lækkar 1. mars næstkomandi úr 24,5
prósentum í 7 prósent. Þegar VSK-frumvarp ríkisstjórnarinnar var
kynnt á síðasta ári var ekki gert ráð fyrir þessari lækkun og hún kom
þess vegna þægilega á óvart. Það er sjálfsagt réttlætismál að bóka- og
tónlistarútgáfur beri sömu VSK-prósentu og mikið fagnaðarefni að
stjórnvöld skuli hafa áttað sig og
lagað þetta.
Geisladiskar hafa lengi verið of dýrir
hér á landi. Með VSK-lækkuninni
færist verðið nær því sem viðgengst í
nágrannalöndunum. Í Evrópusam-
bandslöndunum er algengt verð á
nýjum geisladiskum 15-20 evrur
(1.300–1.750 kr.) og í Bretlandi 9–12
pund (1.170–1.560 kr.). Eftir lækkun á
Íslandi ætti verð á nýjum geisladisk-
um að fara niður í 1.700–1.900 kr. Þar
sem VSK-prósentan lækkar þá
lækkar allt sjálfkrafa um rúmlega 16 prósent, ekki bara nýir diskar: „2
fyrir 2000“ verður til dæmis „2 fyrir 1719“ og eitt lag á tónlist.is ætti
að fara úr 99 kr. í 85. Það munar um minna.
Það hefur færst í aukana að sækja sér tónlist á stafrænu formi til
afspilunar í MP3-spilurum. Play-listar taka við af plötum. Að mörgu
leyti er það hið besta mál. Aðgengi að alls konar tónlist hefur til dæmis
stóraukist. Play-listinn kemur samt aldrei í staðinn fyrir það að eiga
sjálfa plötuna.
1. mars 2007 er góður dagur fyrir tónlist á Íslandi. Það er tilvalið að
halda upp á hann með því að fara út í plötubúð og kaupa sér plötu. Til
dæmis eitthvað sígilt. Sgt. Pepper‘s með Bítlunum er 40 ára í ár. Heroes
með David Bowie 30 svo tvær af bestu plötum sögunnar séu nefndar.
Og svo var að koma út ný og mikið endurbætt útgáfa af einu af meist-
araverkum íslenskrar poppsögu: Tívolí með Stuðmönnum. Allar þrjár
ómissandi fyrir tónlistarheimili með snefil af sjálfsvirðingu …
Góður dagur fyrir tónlistina
Önnur breiðskífa kanad-
ísku hljómsveitarinnar The
Arcade Fire, Neon Bible,
kemur út 5. mars næstkom-
andi. Steinþór Helgi Arn-
steinsson rýndi í fárið sem
skapast hefur í kringum
útgáfu hennar.
Fyrsta plata The Arcade Fire sem
kom út árið 2004 og bar nafnið Fun-
eral er líklegast ein mest hampaða
tónlistarplata síðan Ok Computer
kom út með Radiohead. Allur tón-
listarheimurinn með tölu gat ekki
hætt að slefa, og ekki dvínaði
umtalið þegar margrómaðir tón-
leikar sveitarinnar fengu ofsafeng-
ið lof. Í kjölfarið túraði sveitin með
ekki ómerkari mönnum en David
Bowie og U2.
Velgengnin átti síðan afar stór-
an þátt í því að tónlist frá Kanada
virðist í tísku um þessar mundir.
Win Butler tilkynnti um vinnslu
nýju plötunnar á dagbók sinni á
netinu í júní síðastliðnum. Mánuð
þar á eftir tilkynnti Win það einn-
ig að hljómsveitin myndi sjálf
stýra upptökustjórn á nýju plöt-
unni. „Eftir töluverða umhugsun
um hvaða upptökustjóra við
ættum að fá til þess að hjálpa
okkur, komumst við eiginlega að
því að við vissum nú þegar hvern-
ig við vildum að hlutirnir hljóm-
uðu þannig að við ættum einfald-
lega að hlaupa á eftir þeim hljómi
eins hratt og við getum og ekki
treysta á neinn [annan] til þess að
stjórna hinu góða skipi Arcade
Fire,“ var ástæðan sem Win gaf
upp.
Sveitin fékk síðan Markus
Dravs (Björk og Brian Eno) og
Scott Colburn (Animal Collective)
til þess að aðstoða sig við tækni-
legu hlið upptaknanna.
Platan hefur vissulega annan
hljóm en Funeral, töluvert þyngri
og dekkri en venst fljótt og vel.
Sveitin kom sér fyrir í lítilli kirkju
í litlum bæ fyrir utan Montreal,
hóf upptökurnar og virtist ekki
vera að flýta sér en smám saman
byrjuðu lögin að taka á sig mynd. Í
kirkjuna tóku meðlimir síðan fullt
af alls konar hljóðfærum, til dæmis
hurdy gurdy, bassa hljóðgervla og
bassa-stál-trommur auk þess að
taka upp risa pípuorgel í kirkju í
Montreal.
Einnig kíktu vinir og vanda-
menn í heimsókn og hjálpuðu til,
meðal annars úr sveitunum Calex-
ico og Wolf Parade, hálgerður
íslenskur krútt-bragur yfir þessu
öllu saman. Listamaðurinn Final
Fantasy (Owen Pallett) sá síðan um
að útsetja strengina alveg eins og á
Funeral. Til þess að toppa þetta allt
saman fór sveitin til Búdapest þar
sem herkór og heil sinfóníusveit
voru fengin til aðstoðar.
Sjálfur lýsir Win hljómnum á plöt-
unni „við að standa út við sjóinn að
nóttu til.“ Ekki endilega fjarri lagi
enda má til dæmis finna lagaheiti á
borð við Ocean of Noise og The
Well and the Lighthouse. Lagaheit-
in bera flest reyndar með sér dökk-
an tón með orðum eins og black
(tvisvar), antichrist, cage, bad og
svo framvegis. Í tveimur laganna
er síðan að finna nafnorðið bíll og
fjalla bæði lögin um að komast á
annan, dularfyllri stað.
Dómar heimspressunnar eru
þegar byrjaðir að streyma inn og
svo virðist sem almennt ríki það
viðhorf að Arcade Fire hafi tekist
hið ómögulega, að standast vænt-
ingarnar og jafnvel að fara fram úr
þeim.
Almannarómur var reyndar
ekki svona jákvæður í byrjun
þegar platan lak en svo virðist sem
gæði plötunnar þar hafi verið allt-
of léleg og því ekki verið dómbær.
Allavega er gríðarlegur munur
að heyra þennan fyrsta leka og
síðan sjálfa plötuna á plasti.
Vinsælir í Katar
– Vel lesið
Vertu inní
Fréttablaðinu
með þitt
kynningarefni
Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband
í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is
Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög
Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
Notaðu mest lesna* blað landsins til að
dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina
*Gallup maí 2006