Fréttablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 2
Íslendingur sem nú situr í gæsluvarðhaldi í Bremer- haven, eftir að lögreglan þar fann hjá honum fíkniefni í kílóavís, sendi í haust fjórtán kíló af hassi í hraðsendingu hingað til lands. Hann var eftirlýstur af Interpol í kjölfar þeirrar sendingar. Söluandvirði fíkniefnanna sem Íslendingurinn var tekinn með í Bremerhaven nú nýverið er talið nema um 4,5 milljónum íslenskra króna, að sögn Uwe Mikloweit, upplýsingafulltrúa lögreglunnar þar. Maðurinn situr enn í gæslu- varðhaldi þar. Enn er ekki vitað hversu lengi það verður, að sögn upplýsingafulltrúans, og verður ekki ljóst fyrr en dómstólar hafa kveðið upp úrskurð þar að lútandi. Talið er að hann hafi verið burðar- dýr í því máli og að efnunum hafi átt að smygla hingað til lands. Maðurinn, sem er tæplega þrítug- ur að aldri og íslenskur ríkisborg- ari, kom með skipi frá Danmörku til Bremerhaven, að sögn Miklo- weit. Það var fyrir algjöra tilvilj- un að hann var handtekinn með fíkniefnin, því þegar hann ætlaði að taka út peninga í banka voru skilríki hans útrunnin. Lögreglan tók hann þá til athugunar og hún leiddi í ljós að hann var með fíkni- efni í fórum sínum, fimm kíló af hassi og um 700 grömm af örv- andi efnum sem talin eru vera amfetamín, að sögn upplýsinga- fulltrúans. Söluandvirði þessa magns er talið nema um fimmtíu þúsund evrum eins og áður sagði. „Ég get ekki tjáð mig frekar um málið á þessu stigi,“ sagði Mikloweit. „Lögreglan vinnur enn að rannsókn þess. Meðal annars er verið að kanna hvort maðurinn á einhverja samverkamenn og aðrar kringumstæður varðandi málið. Meðan svo er getum við því ekki gefið frekari upplýsingar.“ Þessi sami maður og nú situr í gæsluvarðhaldi í Bremerhaven er einnig til rannsóknar hjá íslensku fíkniefnalögreglunni og dönsku lögreglunni vegna 14 kílóa af hassi sem send voru hingað til lands frá Danmörku í haust. Um var að ræða hraðsendingu sem fíkniefnalögreglan hér náði í lok október. Hún leiddi til handtöku tveggja Íslendinga, sem sóttu pakkann, og báðir voru úrskurðaðir í gæslu- varðhald. Interpol lýsti eftir manninum vegna þess máls. Burðardýr sendi 14 kíló af hassi hingað Íslendingur sem nú situr í gæsluvarðhaldi í Bremerhaven, eftir að þarlend lögregla fann hjá honum fíkniefni í kílóavís, sendi í haust fjórtán kíló af hassi hingað til lands. Lögreglan náði efnunum og Interpol lýsti eftir manninum. Verð á listaverkum hefur farið hækkandi á Íslandi síðastliðin tvö ár, segir Tryggvi Páll Friðriksson, listmunasali hjá Gallerí Fold. Tryggvi keypti málverkið Hvítasunnudag eftir Jóhannes S. Kjarval, fyrir hönd ónafngreinds viðskiptavinar síns, á uppboði í Kaupmannahöfn á þriðjudaginn fyrir tæpar 25 milljónir íslenskra króna. Verkið er það dýrasta í íslenskri listasögu. „Kaupin á Hvítasunnudegi eru alveg spes. Það er mjög sjaldgæft að listaverk séu seld á meira en tíu milljónir,“ segir Tryggvi. Hann segir grósku í listaverkasölu í landinu; fleiri verk séu boðin upp og fleira fólk kaupi verk auk þess verð þeirra sé hærra en áður. Tryggvi segir að fölsunarmálin sem komu upp í listaheiminum hafi haft slæm áhrif á listaverkasölu í landinu og að það sé fyrst núna sem markaðurinn sé byrjaður að taka við sér aftur. Hafþór Ingvason, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, vildi að safnið eignaðist verk Kjarvals og bauð í það. Listasafn Reykjavíkur hefur hins vegar aðeins þrettán milljónir sem það getur eytt í listaverkakaup á ári, segir Hafþór. Hann tekur undir með Tryggva og segir að verð á listaverkum fari hækkandi hér á landi, sérstaklega á verk „gömlu meistaranna“. Hafþór segir hins vegar að verð á verkum eftir samtímalistamenn hafi ekki hækkað því söfnin séu svo fá hérlendis og lista- verkamarkaðurinn því óþroskaður. Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS OPEL ZAFIRA COMFORT 1.8 DVD EDITION Nýskr. 07.05 - Sjálfskiptur - Ekinn 33 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 2.150 .000. - Kristinn, eru leigubílstjórar oft reittir til reiði? Ríkisstjórn Romanos Prodi tryggði sér áfram meiri- hluta á þingi í gær þegar stuðn- ingstillaga var samþykkt í öldungadeild ítalska þingsins. Prodi vann nauman sigur í deildinni, þar sem þingmenn skipt- ast í nokkuð jafnar fylkingar stjórnarliða og stjórnarandstæð- inga. Að lokum fór hann með sigur af hólmi, hlaut 162 atkvæði, en 157 fulltrúar kusu gegn honum. Stjórn Prodis hefur öruggan meirihluta í neðri deild þingsins. Prodi sagði af sér í síðustu viku eftir að stjórnin tapaði atkvæðagreiðslu um utanríkis- stefnu sína í öldungadeildinni. Forseti Ítalíu bað Prodi engu að síður að halda áfram og því var efnt til atkvæðagreiðslunnar í gær. Heldur velli enn um sinn Leiðtogar Demó- krataflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings virðast endanlega hættir við að beita fjárlagavaldi sínu til þess að draga úr umsvifum Bandaríkjahers í Írak. Þess í stað eru þeir að skoða þann möguleika að setja ófrávíkj- anlegar kröfur um að allir banda- rískir hermenn, sem sendir eru á vígvöllinn í Írak, þurfi sérstaka undanþágu frá Bandaríkjaforseta ef þeir standast ekki lágmarkskröf- ur eða hafa ekki fengið tilskilinn útbúnað til stríðsþátttöku. Jafnframt þurfi að tilkynna þinginu um allar slíkar undanþág- ur, og það eitt gæti George W. Bush forseta þótt nógu vandræðalegt til þess að hann hikaði við að senda mikið fleiri hermenn til Íraks. Nú þegar hafa svo margir her- menn verið sendir til Íraks á síð- ustu árum, og þar áður Afganist- ans, að erfiðlega hefur gengið að manna nýjar herdeildir með hæfum hermönnum. Sömuleiðis hefur útbúnaði hermanna nú seinni miss- erin stundum verið áfátt. Demókratar eru þó engan veg- inn á eitt sáttir um að fara þessa leið. Bush „hefur ekki til þessa gert neitt sem við höfum beðið hann um, svo ég skil ekki hvers vegna við ættum að halda að hann muni gera eitthvað í framtíðinni,“ sagði til dæmis Lynn Woolsey um fyrr- greinda tilkynningarskyldu, en Woolsey er demókrati sem vill án tafar ljúka stríðinu í Írak. Reyna nýja málamiðlun Jón Baldvin Hanni- balsson tekur ekki sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi alþingiskosningar. Hann segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hafi dregið tilboð þar að lútandi til baka, eftir að Jón birtist í sjónvarpsþættin- um Silfri Egils, en þar gagnrýndi hann Samfylkinguna. Ingibjörg Sólrún neitar að nokkuð tilboð hafi verið dregið til baka og segir að fjarvera Jóns af listanum komi sjónvarpsþættin- um ekkert við. Hvorugt vildi ræða málið í gær við Stöð 2, sem greindi frá þessu. Jón Baldvin ekki á listanum Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur beðið lögmann sinn að kæra spjöll á gróðri og eignum vegna umdeildra framkvæmda Kópavogsbæjar í Heiðmörk. Að mati Skógræktar- félags Íslands hafa glatast þúsund tré og 38 milljónir króna. Félagið hafði fallist á beiðni borgarstjóra um að bíða með kæruna til gærdags. Um miðjan dag í gær var ekki komið neitt samkomulag. „Við frestuðum [kærunni], en sjáum ekki ástæðu til að gera það lengur,“ segir Stefán P. Eggertsson, formaður Skógræktarfélagsins. Gunnar I. Birgisson bæjar- stjóri og félagið hafi enn ekki rætt málin. Skógræktin kærir spjöllin Á flokksþingi Fram- sóknar, sem fram fer um helgina, verður meðal annars ályktað um róttækar breytingar á kosninga- lögum, til að mynda um kjör- dæmamörk, og myndun þriðja dómstigsins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður einnig lagt til að Landsvirkjun og dótturfyrir- tæki hennar verði áfram í eigu ríkisins, að heilbrigðisþjónusta fari yfir til sveitarfélaga og að þróunaraðstoð verði aukin. Landsþingið verður haldið á Hótel Sögu, og hefst klukkan fimm á morgun. Kjördæmamörk og nýtt dómstig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.